Nýtt upphaf með Hamrén

Mun Hamrén reyn­ast sænskur happa­fengur eins og Lars Lagerback? Lands­liðið stendur um margt á tíma­mótum, eftir ævin­týra­lega vel­gengni. Ný við­mið hafa verið sett. Pressan á Hamrén er áþreif­an­leg.

Svíinn Erik Hamrén er tek­inn við íslenska karla­lands­lið­inu í fót­bolta og verður Freyr Alex­and­ers­son, sem þjálfað hefur kvenna­lands­liðið, honum til aðstoðar. Þetta var form­lega til­kynnt í dag en fót­bolta­vef­ur­inn Fotbolti.net greindi fyrstur miðla frá við­ræðum við Hamrén.

Nýju fólki fylgja strax breyt­ingar. Helgi Kol­viðs­son, sem var Heimi Hall­gríms­syni til aðstoðar, er hættur og Guð­mundur Hreið­ars­son, sem verið hefur mark­manns­þjálf­ari lands­liðs­ins, hættir einnig.

Nýtt teymi er komið í brúna. Nýtt upp­haf er stað­reynd.

Reynslan vegur þungt

Guðni Bergsson, for­maður KSÍ, nefndi reynslu Hamrén sér­stak­lega þegar hann var kynntur til leiks. Hamrén er 61 árs og meðal reynslu­mestu þjálf­ara Norð­ur­land­anna. Hann hefur þjálfað í 35 ár og náð góðum árangri í Danmörku, Noregi og Svíþjóð.

Hann gerði AaB að dönskum meist­urum árið 2008 og Ros­en­borg árið 2009 og 2010. AIK varð sænskur bik­ar­meist­ari undir hans stjórn árin 1996 og 1997 og Örgryte árið 2000.

Hann var lands­liðs­þjálf­ari Svía í sex ár og kom. Eftir að hafa tekið við lið­inu 2010 kom hann sænska lands­lið­inu á EM árin 2012 og 2016. Árið 2014 féll sænska liðið út í umspili gegn Portúgal, þar sem Cristiano Ronaldo og Zlatan Ibrahimovic voru í aðal­hlut­verkum fyrir sín lið. Vinn­ings­hlut­fall Hamrén með Svía var 54 pró­sent sem telst nokkuð gott.

Stærsta áskorunin

Það segir sína sögu að Hamrén skuli nefna það sér­stak­lega, á sínum fyrsta blaða­manna­fundi, að hans stærsta áskorun á ferl­inum sé að taka við Íslandi.

Árang­ur­inn undir stjórn Heimis Hall­gríms­sonar og Lars Lagerback hefur verið hreint út sagt ótrú­legur, og eng­inn gat séð það fyrir, áður en Lars og Heimir tóku við stjórn­ar­taumunum, að Íslandi yrði með í úrslita­keppni EM í Frakk­landi og HM í Rúss­landi.

Það kann að vera, að margir hafi séð mikla hæfi­leika í leik­mönnum liðs­ins, en stað­reyndin er sú að þetta afrek Íslands var lítið annað en draumur í huga flestra lands­manna, þegar Lars og Heimir tóku við taumunum. Leikmenn liðs­ins og þjálf­arar eiga allt hrós skilið fyrir stór­kost­legt afrek á liðnum árum.

En klysjan um að allt sé komið á upp­haf­s­punkt, þegar næsti leikur hefst, er oft sögð í heimi fót­bolt­ans af ástæðu. Árang­ur­inn á und­an­förnum árum hefur komið kast­ljós­inu á Ísland og á sama tíma sett ný við­mið. Hamrén er að taka við lið­inu á algjörum hápunkti í íslenskri knatt­spyrnu­sögu og það eitt og sér skapar pressu.

Mun hann ná að bæta leik liðs­ins? Eru kjarn­inn í lið­inu kom­inn yfir sitt besta? Eru ungu leik­menn­irnir til­búnir í slag­inn?

Ýmsar spurn­ingar vakna við þessi tíma­mót.

Leikmenn vilja festu

Eftir HM var ljóst að leik­menn Íslands vildu halda í þá umgjörð og festu sem skap­ast hefur í kringum lands­liðið á und­an­förnum árum. Leið­togar liðs­ins, Aron Einar Gunn­ars­son fyr­ir­liði og Gylfi Þór Sig­urðs­son, sögðu báðir í við­tölum eftir HM að þeir vildu ekki breyta of miklu. Nú þyrfti að byggja ofan á árang­ur­inn og halda áfram. Gera betur.

Engin ástæða er til þess að draga þá ályktun, að kjarn­inn í lands­lið­inu sé kom­inn yfir sitt besta. Vörnin þarfn­ast vissu­lega end­ur­nýj­unar en þar eigum við leik­menn sem ættu að geta stigið upp og fyllt í skarðið fyrir aðra leik­menn. Sumir leik­manna liðs­ins hafa lík elst vel og orðið að betri leik­mönnum með hækk­andi aldri.

Má nefna leik­menn eins og Birki Má Sæv­ars­son sem hefur verið stór­kost­legur með íslenska lands­lið­inu í mörg ár, og vart stigið feil­spor í leikjum liðs­ins.

Aron Einar og Gylfi eru á besta aldri fyrir miðju­menn og munu vafa­lítið gefa allt sitt fyrir lands­liðið og sýna Hamrén mik­il­vægi sitt. Þeir eru báðir fæddi 1989 og eiga því mörg ár eftir enn, ef meiðsli setja ekki of mik­inn strik í reikn­ing­inn.

Emil Hall­freðs­son er annar sem hefur spilað feyki­lega vel með lands­lið­inu þó hann sé kom­inn vel inn á seinni hluta fer­ils­ins. Emil er fæddur 1985. Þá yrði mik­ill styrkur fyrir liðið ef Kolbeinn Sig­þórs­son næði að yfir­stíga meiðsli og koma með hæfi­leika sína inn í liðið á nýjan leik.

Í bland við yngri leik­menn munu þessir leik­menn vafa­lítið verða í stórum hlut­verkum, en yngri leik­menn þurfa þó að taka meiri ábyrgð. Þeirra er ekki aðeins fram­tíðin heldur nú nútíðin.

Geta komið á óvart - aftur

Hvað sem öðru líður þá verður ekki fram­hjá því horft, að Hamrén og Freyr munu vafa­lítið þurfa að þola stans­lausan sam­an­burð við Lars og Heimi, frá fyrsta degi. Freyr þekkir vel þá umgjörð sem sköpuð hefur verið um liðið og Hamrén mun vafa­lítið njóta góðs af því. En þeir munu einnig þurfa að setja mark sitt á liðið og sýna að þeir séu réttu menn­irnir til að koma lið­inu enn lengra en það hefur farið nú þegar.

Ef það tekst þá verða Hamrén og Freyr á sama stalli og Lars og Heimir í sögu­bók­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár