Mannanafnanefnd á móti frumvarpi sem myndi leggja niður mannanafnanefnd

Afar skiptar skoð­anir eru á nýju frum­varpi sem eykur frelsi til að ráða eigin nafni og myndi leggja niður manna­nafna­nefnd. Sumir sér­fræð­ingar telja málið mikla bót en aðrir að það sé firna­vont.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra lagði frumvarpið fram.
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra lagði frum­varpið fram. Mynd: Bára Huld Beck

„Manna­nafna­nefnd telur fyr­ir­liggj­andi frum­varp ekki vera til bóta og bein­línis skað­legt íslenskri tungu og leggst gegn því að það verði sam­þykkt.“

Svona hljómar nið­ur­lag umsagnar manna­nafna­nefndar um um frum­varp Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra, sem kveður á um að for­eldr­ar fái aukið frelsi til þess að nefna börn sín og að ein­stak­ling­ar fái aukið frelsi til þess að ráða eig­in nafni.

Einnig kveður það á um að ein­stak­ling­ar geti tekið upp ný ætt­ar­nöfn, að börn 15 ára og eldri fái að ráða sjálf eig­in nafni og ákveðin tak­mörk á að for­eldr­ar geti ekki gefið börn­um sín­um nöfn sem séu þeim til ama.“

Samkvæmt frum­varp­inu verður manna­nafna­nefnd lögð niður. Sú nefnd hefur meðal ann­ars haft þau verk­efni um ára­tuga­skeið að semja skrá um eig­innöfn og mill­i­nöfn sem telj­ast heimil, að vera prestum, for­stöðu­mönnum skráðra trú­fé­laga, Þjóðskrá Íslands og for­sjár­mönnum barna til ráðu­neytis um nafn­gjafir og skera úr álita- og ágrein­ings­efnum um nöfn sam­kvæmt lögum um manna­nöfn. Þá sker nefndin úr „öðrum álita- eða ágrein­ings­málum sem upp kunna að koma um nafn­gjafir, nafn­ritun og fleira þess háttar.“ Úrskurðum manna­nafna­nefndar er ekki unnt að skjóta til æðra stjórn­valds.

Áslaug Arna hefur þegar sagt frá því opin­ber­lega að hún telji að meiri­hluti sé fyrir sam­þykkt frum­varps­ins á þingi. Sam­bæri­leg frum­vörp hafa áður verið lögð fram en ekki hlotið braut­ar­gengi.

Mannanafnanefnd á móti því að vera lögð niður

Manna­nafna­nefnd gerir ýmis­konar efn­is­legar athuga­semdir við frum­varp ráð­herr­ans. Hún leggst til að mynda gegn því að gerð verði und­an­tekn­ing frá íslenskum rit­reglum hvað manna­nöfn varðar þannig að ein­stak­lingum verði í sjálf­vald sett hvernig þeir riti nöfn sín.

[adspot]Þá telur nefndin að mikil mis­tök yrðu gerð ef felld yrði úr gildi hin ævi­forna kenni­nafna­hefð Íslend­inga. „Nú þegar er heim­ilt skv. lögum að taka upp milli­nafn, sem almennt eru notuð eins og ætt­ar­nöfn, sem nefndin telur að tryggi rétt þeirra sem not­ast vilji við ætt­ar­nöfn. Manna­nafna­nefnd telur að það sé aðeins hávær minni­hluti sem vilji fella úr gildi ákvæði laga um kenn­inöfn og að rita beri íslensk nöfn í sam­ræmi við íslenskar rit­reglur og skorar á Alþingi að breyta ekki lögum hér um nema að vel athug­uðu máli.“

Þá er manna­nafna­nefnd andsnúin því að nefndin verði lögð niður. Í umsögn hennar segir: „Fær nefndin ekki séð að það sé til gagns að leggja nefnd­ina niður og fela starfs­mönnum Þjóð­skrár, sem ekki hafa til þess sér­staka menntun, að taka ákvarð­anir hér um sbr. einnig ákvarð­anir skv. 4. gr. frum­varps­ins. Bent skal á að sums staðar (til dæmis í Póllandi) eru ákvarð­anir um manna­nöfn einmitt teknar með þessum hætti.“

Í umsögn­inni, sem nefnd­ar­menn­irnir Auður Björg Jóns­dóttir lög­maður og Sigurður Kon­ráðs­son, pró­fessor í íslensku máli við Mennta­vís­inda­svið Háskóla Íslands skrifa undir, segir að núgild­andi lög séu ekki full­komin og manna­nafna­nefndin telji ýmsa van­kanta á þeim, sem þó sé ekki endi­lega leyst úr með fyr­ir­liggj­andi frum­varpi.

Nefndin telur eðli­leg­ast að sam­ráð yrði haft við hana um hvernig megi bæta núgilandi lög um manna­nöfn til að reglu­verkið „sé sem skýr­ast og sann­gjarn­ast en ekki sé ástæða til að fella lögin niður í heild sinni.“

„Ég veit ekki af hverju ég er að þessu“

Fleiri eru á móti frum­varp­inu. Þar á meðal Guðrún Kvaran, mál­fræð­ing­ur, pró­fess­or emeritus og fyrr­ver­andi nefnd­armaður í manna­nafna­nefnd.

Hún skrifar umsögn þrátt fyrir að hafa ekki ætlað sér að gera það. Í henni stendur meðal ann­ars: „Ég sendi inn tvö álit um frum­vörp til laga um manna­nöfn í mars og októ­ber 2018. Allt sem í þeim stendur er enn bjarg­föst skoðun mín. Ég mætti á fundi hjá alls­herj­ar­nefnd en mér fannst áhugi nefnd­ar­manna afar tak­mark­aður á því sem ég hafði að segja. Ég ætl­aði því ekki að skrifa um þetta frum­varp, var eig­in­lega búin að fá nóg af því að hjakka í sama far­inu, en fjöldi sam­tala við fólk á öllum aldri og af öllu land­inu hefur setið í mér og ég ákvað að setj­ast niður einu sinni enn og senda inn nú á síð­asta degi. Í gær­kvöldi hringdi nefni­lega öldruð kona frá Egils­stöðum og sagði: „Hvert erum við að stefna, Guðrún, hvað er Alþingi að hugsa?“ Við áttum langt og gott sam­tal og ég hygg að kon­unni hafi liðið betur þegar við kvödd­umst þótt ég hafi ekki átt gott svar handa henni en sjálfri leið mér ekki vel.“

[adspot]Guðrún gerir síðan marg­hátt­aðar athuga­semdir við frum­varpið og segir í lok umsagn­ar­innar að hún gæti skrifað mun lengra mál um fram­lagt frum­varp. „Mér finnst frum­varpið firna­vont og engu betra en þau tvö sem ég skrif­aði um 2018. Ég veit ekki af hverju ég er að þessu, e.t.v. fyrir öldr­uðu kon­una á Egils­stöðum.“

Ármann Jak­obs­son, pró­fessor, for­maður Íslenskrar mál­nefndar og bróðir Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, segir frum­varpið vand­virkn­is­lega unnið miðað við fyrri frum­vörp um málið. Einkum sé grein­ar­gerðin vönduð og ætti að hjálpa þing­mönnum að gera upp hug sinn í þessu flókna máli. Hann telur þó ekki heppi­legt að leggja niður manna­nafna­nefnd. Betra væri að hún yrði til áfram og „alþing­is­menn létu mold­viðrið gegn henni sem vind um eyru þjóta. Að minnsta kosti ætti hún að vera til sem ráð­gef­andi sér­fræð­inga.“

Fólk ætti að fá að kalla sig því nafni sem það kýs

Alls hafa borist 16 umsagnir um málið. Á meðal þeirra sem sendu inni slíka var Salvör Nordal, Umboðs­maður barna.

Í nið­ur­lagi umsagnar hennar segir að umboðs­maður barna hvetji til sam­þykktar frum­varps­ins „til að tryggja stálp­uðum börnum þau mik­il­vægu rétt­indi sem fel­ast í sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétti yfir eigin nafni, því sem helst ein­kennir okkur sem ein­stak­linga.“

Mann­rétt­inda­skrif­stofa Íslands styður sömu­leiðis frum­varpið, sam­kvæmt umsögn, enda telur hún að fólk ætti „almennt að fá að kalla sig því nafni sem það helst kýs.“

Eiríkur Rögn­valds­son, pró­fessor í íslenskri mál­fræði, er einnig jákvæður í garð frum­varps­ins. Hann kemst að eft­ir­far­andi nið­ur­stöðu í sinni umsögn: „Fyr­ir­liggj­andi frum­varp skaðar ekki íslenska tungu á nokkurn hátt, en er veru­leg rétt­ar­bót og afnemur þá mis­munun sem felst í gild­andi lögum og er í raun stjórn­ar­skrár og mann­rétt­inda­brot. Stífar reglur sem vísa í íslenska mál­stefnu en sam­ræm­ast ekki jafn­rétt­is­hug­myndum og stríða gegn rétt­læt­is­kennd fólks geta orðið til þess að ala á nei­kvæðum við­horfum fólks til íslensk­unnar. Því þarf hún síst af öllu á að halda um þessar mundir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár