Stjórnarþingmaður segir frumvarp ríkisstjórnar bjánaskap

Frumvörp sem leggja til breyt­ingar á verð­trygg­ingu og stuðn­ing til kaupa á fyrstu íbúð hafa verið afgreidd úr efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis. Meiri­hluti nefnd­ar­innar hefur lagt til að bæði frum­vörpin taki smá­vægi­legum breyt­ingum, en Vil­hjálmur Bjarna­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og þar með meiri­hlut­ans, skil­aði minni­hluta­á­liti í báðum málum. Það gerði Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður VG, líka með stuðn­ingi Birgittu Jóns­dóttur, þing­manns Pírata.

Vil­hjálmur segir í áliti sínu að „bæði þessi frum­vörp virð­ast byggj­ast á áliti nefndar sem í voru sér­fræð­ingar. Það er margt í því nefnd­ar­á­liti sem stenst ekki skoðun. Þar er til dæmis ekki fjallað um tvö grund­vallar­hug­tök fjár­mála­fræð­innar, ávöxt­un­ar­kröfu og núvirð­ingu. Sam­an­burður á greiðslu­ferlum í áliti þess­arar svoköll­uðu „sér­fræð­inga­nefndar“ er alger­lega mark­laus.“

Hann gagn­rýnir að stjórn­völd geri þá kröfu að fólk geti ráð­stafað sér­eigna­líf­eyri sínum inn á óverð­tryggð lán en ekki verð­tryggð lán, auk þess sem hann gerir miklar athuga­semdir við að ekk­ert sé skil­greint hvað séu óverð­tryggð lán. „Í stuttu máli er mis­munur svo­kall­aðra „verð­tryggðra“ og „óverð­tryggðra“ lána eft­ir­far­andi: Vextir „verð­tryggðra lána“ eru ákvarð­aðir með hlut­lægri mæl­ingu, þ.e. verð­bóta­þáttur­inn, en vextir „óverð­tryggðra lána“ eru ákvarð­aðir með ágiskun um horfur á hverjum tíma og lán­veit­andi einn tekur ákvörðun um breyti­leika með ógagn­sæjum hætti.

Sem fyrr segir er nið­ur­staðan sú að á liðnum 25 árum hafa svokölluð „óverð­tryggð lán“ borið 0,5–1% hærri ávöxt­un­ar­kröfu en „verð­tryggð lán“. Bjána­skapur þessa frum­varps gagn­ast því engum nema lána­stofn­unum.“

Hann segir til­gang frum­varps­ins sem á að banna 40 ára verð­tryggð lán til sumra hópa vera þann „að koma í veg fyrir að venju­legt fólk geti tekið lán að eigin vali og að ganga frek­lega á samn­ings­rétt neyt­enda sem lán­taka og lán­veit­enda. Í frum­varp­inu er löng og alls óskilj­an­leg umfjöllun um eitt­hvað sem kallað hefur verið „Íslands­lán“, að því er virð­ist í háð­ungar- og lít­ils­virð­ing­ar­skyni. Það eitt og sér á að duga til að vísa þessu máli til rík­is­stjórn­ar­innar.“ Hann gagn­rýnir meiri­hluta nefnd­ar­innar harð­lega, og segir gengið langt inn á eðli­legt samn­ings­frelsi með frum­varp­inu. Frum­varpið muni að auki ekki taka á neinum vanda, heldur kunni að skapa fjöld­ann allan af nýjum vanda­málum.

Fyrst og fremst sáttaleið í augljósum ágreiningi ríkisstjórnarflokka

„Í stuttu máli sagt end­ur­spegla umsagnir og mál þeirra gesta sem komu á fund efna­hags- og við­skipta­nefndar óljós mark­mið frum­varps­ins og algjör­lega er óvíst hvort þær leiðir sem lagðar eru til skili nokkrum árangri í að ná hinum óljósu mark­miðum. Nið­ur­staða undir­rit­aðrar er að frum­varpið sé fyrst og fremst leið til ná sáttum í aug­ljósum skoð­ana­á­grein­ingi stjórn­ar­flokk­anna um verð­trygg­ing­una en það sé enn á huldu hvaða áhrif ákvæði þess muni hafa. Enn fremur er ljóst að for­taks­laust lof­orð Fram­sókn­ar­flokks­ins um afnám verð­trygg­ing­ar verður ekki efnt með þessu máli,“ segir Katrín Jak­obs­dóttir um verð­trygg­ing­ar­frum­varpið. 

Hún segir að málin tvö hafi verið kynnt með mik­illi við­höfn í Hörpu en við skoðun og rýni á þeim komi í ljós að þau dugi skammt til að upp­fylla yfir­lýst mark­mið. Um frum­varpið um fyrstu fast­eign segja þau Katrín og Guð­mundur Stein­gríms­son, auk Birgittu Jóns­dóttur áheyrn­ar­full­trúa, að „flumbru­gang­inn mætti fyr­ir­gefa ef ekki skini í gegn sú aug­ljósa stefna rík­is­stjórn­ar­innar að nýta sam­eig­in­lega sjóði skatt­greið­enda til að mis­muna ólíkum tekju­hópum þannig að þeir tekju­hærri fái hærri skatt­afslátt en hinir tekju­lægri og þar með hærra hlut­fall af opin­beru fé í hús­næð­is­stuðn­ing. Þetta er algjör stefnu­breyt­ing frá því hús­næð­is­stuðn­ings­kerfi sem um langt skeið hefur ríkt sæmi­leg sátt um.“ Þau segja að nú hafi vaxta­bóta­kerfið verði skorið niður en á móti lagðar til aðgerðir sem bein­línis auki mis­munun og ójöfnuð. „Fyrst og fremst mun þetta verða ráð­stöfun opin­bers fjár til tekju­hærri hópa. Það hlýtur að telj­ast afar óskyn­sam­leg ráð­stöfun á skattfé.“

Málin eru bæði á dag­skrá þing­fundar í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár