Sér ekki hvernig sérstök smithætta eigi að vera af því að fólk setji upp tjald

Sótt­varna­læknir hefur meiri áhyggjur af hrein­læt­is­að­stöðu víðs vegar um landið fyrir ferða­menn en að flótta­fólk hafi safn­ast saman á Aust­ur­velli.

Flóttafólk mótmælir á Austurvelli. Búið er að taka tjaldið niður.
Flótta­fólk mót­mælir á Aust­ur­velli. Búið er að taka tjaldið niður. Mynd: Bára Huld Beck

„Ég sé ekki alveg hvernig sér­stök smit­hætta á að vera af því að fólk setji upp tjald eða safn­ist saman á Aust­ur­velli.“ Þetta segir Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans vegna skrifa Björns Bjarna­sonar, fyrr­ver­andi ráð­herra og þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Sótt­varna­læknir hefur meiri áhyggjur af hrein­læt­is­að­stöðu víðs vegar um landið fyrir ferða­menn. Í svar­inu segir Þórólfur að honum finn­ist þetta ekki eiga við um það að fólk safn­ist saman á Aust­ur­velli. Hann seg­ist jafn­framt enga sér­staka skoðun hafa á orðum Björns, hann viti hrein­lega ekki hvort þetta eigi að vera grín.

Björn skrif­aði pistil, sem birt­ist á blogg­síðu hans í gær, sem nefn­ist Frysting eyðir ekki smit­hættu. Þar fjallar hann um við­tal Morg­un­blaðs­ins við Katrínu Andr­és­dóttur sem var í áraraðir hér­aðs­dýra­læknir á Suð­ur­landi um smit­varnir og inn­flutn­ing á mat­vælum.

[links]

Spyr hvort gætt hafi verið allra nauðsynlegra hreinlætis- og öryggiskrafna

Björn hefur á orði í pistli sínum að í við­tal­inu við Katrínu hafi komið fram að með fleiri ferða­mönnum auk­ist hættan á því að smit og ónæmar bakt­er­íur ber­ist til lands­ins. Nauð­syn­legt væri að huga að sjúk­dóma­vörnum í því til­liti og gæta fyllsta hrein­lætis.

Með pistl­inum lætur Björn fylgja tvær myndir eftir Rúnar Gunn­ars­son af mót­mælum flótta­fólks og hæl­is­leit­enda á Aust­ur­velli. „Þær vekja spurn­ingar um hvort gætt hafi verið allra nauð­syn­legra hrein­lætis- og örygg­is­krafna með aðkomu réttra stjórn­valda þegar borg­ar­stjóri leyfði að Aust­ur­velli yrði breytt í tjald­stæði og stytt­unni af Jóni Sig­urðs­syni breytt í snaga fyrir mót­mæla­spjöld,“ skrifar Björn.

Hann segir enn­fremur að ákvörðun borg­ar­stjóra og að for­sætis­nefnd alþingis láti sér þetta lynda ýti enn undir hnign­andi virð­ingu borg­ar­stjórnar og þings­ins. „Áður fyrr þótti máli skipta að almenn­ingur kæmi saman á Aust­ur­velli til að láta í ljós vilja sinn til fagn­aðar eða and­mæla. Nú hefur allt yfir­bragð þarna breyst á þann veg að engin leið er að átta sig á hvort eitt­hvað skipti máli sem teng­ist aðgerðum á Aust­ur­velli eða ekki, risið hefur lækkað jafn og þétt. Mynd­irnar segja meira en mörg orð.“

Búin að taka niður tjaldið

Hæl­is­leit­end­urnir eru nú búnir að taka niður tjaldið á Aust­ur­velli. Elínborg Harpa Önund­ar­dóttir hjá No Borders-sam­tök­unum segir í sam­tali við Frétta­blaðið að ástæðan sé heilsu­leysi hæl­is­leit­end­anna, bæði and­legt og lík­am­legt, og mikil útlend­inga­andúð sem þau hafi orðið vör við und­an­farna viku.

„Það voru nokkrir byrj­aðir að veikj­ast þannig að okkur leist ekk­ert á blik­una þó að þeir sjálfir vildu vera áfram. En svo var búið að vera mikið af fólki með útlend­inga­andúð á Aust­ur­velli, sér­stak­lega í gær,“ segir Elínborg Harpa við Frétta­blaðið. „Þetta er ekki bara á sam­fé­lags­miðlum, það er lif­andi fólk á Aust­ur­velli sem kemur og er með dólg. Á hverjum degi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár