Mynd: EPA

Verksmiðjurnar sem framleiða kórónuveiruna

Vikum saman hafa slát­ur­hús um allan heim kom­ist í frétt­irnar vegna hóp­sýk­inga starfs­manna af COVID-19. Skýr­ing­arnar eru marg­vís­legar. Í slíkum verk­smiðjum er loftið kalt og rakt og fólk er þétt saman við vinnu sína.

Yfir 1.550 starfs­menn Tönnies-slát­ur­húss­ins greindust með kór­ónu­veirusmit í síð­asta mán­uði. Í kjöl­farið tóku sam­komu- og ferða­tak­mark­anir í borg­inni Guet­ersloh aftur gildi. Um 600 þús­und manns þurfa að hlíta þeim.

Tönnies-slát­ur­húsið er aðeins eitt af mörgum slát­ur­húsum og kjöt­vinnslu­stöðvum í Þýska­landi þar sem umfangs­mikil hópsmit hafa komið upp meðal starfs­manna. Og Þýska­land er aðeins eitt af mörgum löndum þar sem kór­ónu­veiran hefur náð mik­illi útbreiðslu meðal starfs­fólks í kjöt­iðn­aði. Kjarninn hefur þegar fjallað um ástandið í Banda­ríkj­unum en sífellt fleiri lönd bæt­ast í þennan hóp. Hol­lend­ingar hafa fengið sinn skerf og um helg­ina greindust til dæmis kór­ónu­veirusmit í starfs­mönnum þriggja slát­ur­húsa í Aust­ur­ríki.

Ef nýja kór­ónu­veiran SARS-CoV-2 mætti velja sér stað til að hreiðra um sig á yrðu slát­ur­hús ofar­lega á óska­list­anum. Ástæðan er sú að þar er allt til alls svo hún geti lifað, dafnað og fjölgað sér við kjörað­stæður. Í slát­ur­húsum og kjöt­vinnslu­stöðvum er loftið kalt og rakt. Þar standa iðnir verka­menn þétt saman við vinnu sína og svitna jafn­vel við erfið störfin. Allt getur þetta orðið til þess að veirur á borð við SARS-CoV-2 eiga auð­veld­ara en ella með að ber­ast frá manni til manns með dropa­smiti eða snert­ingu.

Veirunni skæðu, sem fyrst er talin hafa smit­ast yfir í menn á blaut­mark­aði í Kína þar sem verslað er með lif­andi og dauð dýr, hefur orðið að ósk sinni. Hún hefur hreiðrað um sig í slát­ur­húsum. Og hún hefur sýkt marga.

Það eru þó ekki aðeins slát­ur­húsin sjálf sem geta nán­ast orðið að verk­smiðjum fyrir veiruna ef ekki er farið að öllu með gát og öllum reglum um sótt­varnir – sem eru strangar í mat­væla­iðn­aði – fylgt.

Þýskir svínabændur eru í erfiðri stöðu. Svínin halda áfram að stækka en enginn kemur að sækja þau og flytja til slátrnunar.
Þýskir svína­bændur eru í erf­iðri stöðu. Svínin halda áfram að stækka en eng­inn kemur að sækja þau og flytja til slátrn­unar.

Í Þýska­landi er talið að skýr­ing­una á hóp­sýk­ingum meðal starfs­manna slát­ur­húsa megi líka rekja til fyr­ir­komu­lags þessa iðn­aðar í land­inu þar sem fram­leiðslu­fyr­ir­tækin fela oft und­ir­verk­tökum þennan hluta fram­leiðslu­keðj­unnar: Að slátra dýr­unum og brytja niður fyrir áhuga­sama kaup­endur.

Und­ir­verk­tak­arnir ráða far­and­verka­menn frá fátæk­ari löndum til starfs­ins. Starfs­fólk slát­ur­hús­anna er því upp til hópa inn­flytj­endur og far­and­verka­fólk. Inni í samn­ingnum er hús­næði – og akstur á vinnu­stað. Hljómar kannski ágæt­lega nema að hús­næðið er þröng ver­búð og far­ar­tækið sem notað er til að aka fólk­inu til vinnu er rúta þar sem þétt er setið. Þannig eru aðstæð­urnar að minnsta kosti í mörgum til­fellum eins og rakið er í ítar­legri úttekt Der Spiegel á aðbún­aði og aðstæðum fólks­ins sem vinnur við að slátra dýrum í Þýska­landi svo að ódýrt kjöt kom­ist á disk neyt­enda.

Það er því talið að smit­hættan sé í bæði vinnu­um­hverfi starfs­mann­anna, í híbýlum þeirra og á leið í vinnu. Sam­an­tekið: Hún er alltum­lykj­andi í öllu þeirra lífi.

„Það er mjög mik­il­vægt að gera sér grein fyrir að starfs­fólk í þessum verk­smiðjum – og sinnir þessu óvin­sæla starfi – er oft far­and­verka­fólk, útlend­ingar sem búa saman á heima­vistum. Og þeir búa og ferð­ast í mik­illi nánd,“ segir James Wood, deild­ar­for­seti dýra­lækn­inga­deildar Cambridge-háskóla.

Heima­vist, svefn­skáli eða ver­búð. Þetta eru lík­lega þau orð sem kom­ast næst því að lýsa híbýlum verka­mann­anna. Þangað koma þeir rétt til að halla sér á milli vakta.

Kanadískir og breskir vís­inda­menn tóku saman höndum og rann­sök­uðu aðstæður í kjöt­vinnslu­stöðvum og slát­ur­húsum. Þeir komust að því að „járn­fletir“ og „lágur hiti“ lengja líf­tíma veira á borð við SARS-CoV-2. Þeir benda í rann­sókn­inni einnig á að í slíkum verk­smiðjum er oft hávaði sem verður til þess að fólk þarf að hækka róm­inn til að yfir­gnæfa lætin. Það gæti, að mati vís­inda­mann­anna, aukið enn á smit­hætt­una. Þá er nið­ur­staða þeirra einnig sú að starfs­fólkið finni fyrir þrýst­ingi frá yfir­mönnum að halda áfram að mæta í vinn­una þó að það finni fyrir ein­kennum sem bent gætu til COVID-19.

Líftíminn lengdur

Ysta lag kór­ónu­veira er skel úr fitu sem verður til þess að þær þríf­ast vel í köldu lofti. Sýnt hefur verið fram á að nýja kór­ónu­veiran getur lifað í allt að 72 klukku­tíma á yfir­borði ef hita­stigið er 21-23 gráður. Í lægra hita­stigi lifa þær enn lengur. Mögulega dögum saman.

Þá berst veiran auð­veldar um kalt loft, sér­stak­lega því sem dælt er með loft­ræst­ingu hring eftir hring í sama rými. Þetta getur orðið til þess að aðeins örfáir smit­aðir starfs­menn séu nóg til að stað­bundið hópsmit verður, hefur Der Spiegel eftir Tom Jeffer­son, heilsu­sér­fræð­ingi við Oxford-háskóla. Þeir verða ofursmit­berar svo­kall­aðir. „Og ef starfs­menn­irnir búa svo saman, og taka sama stræt­is­vagn­inn til vinnu, þá er erfitt að stöðva útbreiðsl­una.“

Á hverjum degi, undir venjulegum kringumstæðum, er tugþúsundum svína slátrað í Tönnies-sláturhúsinu.
Á hverjum degi, undir venju­legum kring­um­stæðum, er tug­þús­undum svína slátrað í Tönnies-slát­ur­hús­inu.

Vís­inda­menn við smit­sjúk­dóma­stofnun Banda­ríkj­anna hafa rann­sakað til­felli COVID-19 í 114 slát­ur­húsum þar í landi. Að minnsta kosti 4.900 starfs­manna sýkt­ust og í byrjun apríl höfðu yfir tutt­ugu lát­ist vegna sjúk­dóms­ins. Stofn­unin krafð­ist grund­vall­ar­breyt­inga til að lág­marka hættu á smitum, m.a. hólfuð úti­svæði fyrir starfs­menn í pásum, strang­ari þrif og meiri sótt­hreinsun.

Jeffer­son telur að miklu frekar ætti að skima ræki­lega og reglu­lega fyrir veirunni hjá fólk­inu sem vinnur við þessar kjörað­stæður veirunnar.

Svefn­skála verka­manna í Münster, vest­ast í Þýska­landi, er vart hægt að kalla heim­ili, skrifa blaða­menn Der Spiegel í umfjöllun sinni. Og á síð­ustu dögum hefur þeim verið breytt í fang­elsi. Járn­hliðið við bygg­ing­una er harð­læst og eng­inn má yfir­gefa húsið. Inni eru far­and­verka­menn frá Rúmeníu. Þeir eru í sótt­kví – sumir reyndar í ein­angrun. Allir vinna þeir hjá Tönnies-slát­ur­hús­inu, því stærsta í Þýska­landi.

Fyrir nokkrum dögum bjuggu þeir fimmtán saman í litlu rými. Fimm greindust með smit. Þrír voru fluttir annað en tveir eru enn í hús­inu. Blaða­maður Der Spiegel tal­aði við einn verka­mann­inn í gegnum hliðið. Sá var ekki smit­aður, að minnsta kosti síð­ast þegar hann vissi. En hann býr í sama húsi og menn sem eru með COVID-19. Og vill gjarnan kom­ast í burtu. Hann hringdi meira að segja í lög­regl­una sem sagð­ist ekk­ert geta gert.

Á hefð­bundnum degi er tugum þús­unda svína slátrað í Tönnies-slát­ur­hús­inu. Rúm­en­arnir komu til Þýska­lands til að vinna þar. Starfs­ör­yggið er lítið og launin lág. Það var eins og eng­inn heims­far­aldur væri í gangi innan veggja. Við starfs­manna­inn­gang­inn átti að mæla hita starfs­manna. Það var ekki gert fyrr en tveimur dögum áður en allir voru sendir heim í ein­angrun og sótt­kví eftir að ljóst var að upp var komið stærsta hópsmit í allri Evrópu.

Eig­and­inn – stundum kall­aður Kjöt­bar­ón­inn – hefur í fleiri ár hag­rætt í starf­sem­inni til að ná meiri afköstum. Clemens Tönnies er sagður „meist­ari“ í því að ná sem mestu út úr starfs­fólk­inu og sömu­leiðis af skrokkum dýr­anna sem það slátrar. Hann selur kjötið ódýrt og er þess vegna eft­ir­lætis birgir lág­vöru­versl­ana Þýska­lands. Tönnies-veldið er með 30 pró­sent af svína­kjöts­mark­aði lands­ins. Slát­ur­húsin hans eru, eins og það er orðað í umfjöllun Der Spiegel, „lyk­il­hlekkur í þeirri fram­leiðslu­keðju þar sem dýrum er umbreytt í ódýrt kjöt“.

Með því að lág­marka kostnað, stækka og stækka, hefur Tönnies eitt og sér umbylt kjöt­iðn­að­inum og komið sér fyrir í ráð­andi stöðu.

Er skinkusneiðin þess virði?

Hvernig komið er fram við starfs­menn slát­ur­húsa og kjöt­vinnsla í Evrópu og Norður-Ameríku er eitt af því sem far­aldur COVID-19 hefur afhjúpað síð­ustu mán­uði. Hann hefur einnig afhjúpað hvernig komið er fram við dýrin sem þar er slátrað. „Þetta neyðir okkur ekki aðeins til að spyrja hvers vegna veiran getur breiðst svona hratt út í slát­ur­húsum,“ segir í grein blaða­manna Der Spiegel. „Þetta setur kast­ljósið einnig á þennan iðnað í heild: Hvað gengur í raun og veru á í kjöt­fram­leiðsl­unni? Við hvaða aðstæður þarf starfs­fólkið að vinna? Og er skinku­sneiðin þess virði?“

„Þetta setur kastljósið einnig á þennan iðnað í heild: Hvað gengur í raun og veru á í kjötframleiðslunni? Við hvaða aðstæður þarf starfsfólkið að vinna? Og er skinkusneiðin þess virði?“
„Þetta setur kast­ljósið einnig á þennan iðnað í heild: Hvað gengur í raun og veru á í kjöt­fram­leiðsl­unni? Við hvaða aðstæður þarf starfs­fólkið að vinna? Og er skinku­sneiðin þess virði?“

Stjórn­mála­menn eru hættir að mæra Tönnies. Það hafa minni hlut­hafar í fyr­ir­tæki hans einnig gert. Íbúar borg­anna tveggja sem þurfa að sæta ferða- og sam­komu­tak­mörk­unum, eru æfir.

Robert Habeck, vara­for­maður Græn­ingja­flokks­ins í Þýska­landi, segir að hópsmitin í kjöt­iðn­að­inum og „Tönnies-krísan“ hafi sýnt að nýrrar nálg­unar sé þörf. Breyt­ingar eru þegar í upp­sigl­ingu. Þýska rík­is­stjórnin ætlar sér að banna und­ir­verk­töku í kjöt­iðn­að­inum með nýrri lög­gjöf.

Hubertus Heil, atvinnu­mála­ráð­herra Þýska­lands, hefur sagt kjöt­bar­ón­inn Tönnies bera mikla ábyrgð. Hann hafi hagn­ast sví­virði­lega á slátrun svína. Karl-Josef Laumann, heil­brigð­is­ráð­herra í Norð­ur­rín-Vest­fa­líu, hefur kraf­ist laga­breyt­inga.

Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins hefur einnig blandað sér í málið. Ráðherra atvinnu- og félags­mála sam­bands­ins hefur sagt að til skoð­unar sé hvort að vinnu­lög­gjöf sam­bands­ins hafi verið brotin.

Svínakjöt frá Tönnies á tilboði

Ein stærsta mat­vöru­keðja Þýska­lands hefur líka sagt sína skoðun: Að fram­leiðslan væri í ekki í sam­ræmi við þá gæða­staðla sem fyr­ir­tækið standi fyrir. Hún selur reyndar enn kjöt frá Tönnies – og á enn meira til­boði þessa vik­una.

Bænd­urnir sem selja svín sín til Tönnies eru örvænt­ing­ar­fullir. Engir bílar koma og sækja dýrin og flytja þau til slátr­unar. Slát­ur­húsið er lokað vegna hóp­sýk­ingar. En svínin halda áfram að stækka. Sumir hafa gripið til þess ráðs að breyta fóð­ur­geymslum í svína­stíur. Þegar einn hlekkur í fram­leiðslu­keðj­unni dettur út þá hrann­ast vanda­málin á svína­bú­unum upp. Slát­ur­húsið er veikasti hlekk­ur­inn.

Clemens Tönnies er millj­arða­mær­ingur. Margir hafa litið upp til hans en nú er tónn­inn breyttur. Hann er orð­inn að tákn­mynd þess sem COVID-19 afhjúpaði: Oft á tíðum skelfi­legan aðbúnað dýra og fólks­ins sem slátrar þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár