Svínin kæfð eða skotin og kurluð niður

Bændur í Banda­ríkj­unum hafa orðið að kæfa svín sín í tug­þús­unda­vís þar sem ekki er hægt að senda þau til slátr­unar. Of þröngt er orðið í eld­is­húsum eftir að kjöt­vinnslum var lokað vegna hópsmita.

Svín á leið til slátrunar í flutningabíl.
Svín á leið til slátr­unar í flutn­inga­bíl. Mynd: EPA

Tug­þús­undir svína eru aflífuð með gasi á hverjum degi á búum í Banda­ríkj­unum. Hópsmit hafa komið upp í hverri kjöt­vinnsl­unni á fætur annarri og ekki er hægt að flytja dýrin til slátr­unar. En þau halda áfram að stækka. Og það er orðið þröngt um þau í stí­unum. Bændur hafa því gripið til þess að reyna að hægja á vexti svín­anna með því að hækka hita­stigið í hús­unum svo þau missi mat­ar­lyst­ina eða að breyta fóðr­inu svo það sé ekki eins girni­legt. Þá hafa þeir eytt fóstrum gylta, fyllt í holur veggja í eld­is­hús­unum og dælt koltví­sýr­ingi inn í þau þar til dýrin drep­ast. Einn bóndi íhugar að setja svínin í flutn­inga­bíl og dæla inn í hann gas­inu. Annar skaut svínin sín í höf­uðið. Það tók hann allan dag­inn.

Svín líkt og önnur dýr sem ræktuð eru til matar, munu alltaf enda ævi sína í slát­ur­húsi og svo á diskum fólks. Á hverju ári er yfir 120 millj­ónum svína slátrað í Banda­ríkj­unum einum saman. Hver Banda­ríkja­maður (sem yfir höfuð borðar kjöt) borðar að með­al­tali 31 svín á lífs­leið­inni, tíu kýr (naut) og yfir 2.000 kjúklinga. Eft­ir­spurnin eftir kjöti er því mikil.

Víðs­vegar um Banda­ríkin hafa komið upp hópsmit af COVID-19 í um 170 kjöt­vinnslum, oft risa­stórum fyr­ir­tækjum sem slátra tug­þús­undum dýra dag hvern. Smit­sjúk­dóma­stofnun lands­ins segir að yfir 5.000 starfs­menn hafi veikst hjá þessum fyr­ir­tækjum og að minnsta kosti 45 lát­ist. Í ljós hefur komið að í ein­hverjum þeirra var ekki gripið til ráð­staf­ana eftir að fyrstu smitin greindust og starfs­fólkið, oft inn­flytj­endur, unnu áfram hlið við hlið, not­uðu sömu bún­ings­klefa og sama mat­sal­inn.

[adspot]

Þannig var það til dæmis hjá hinu risa­vaxna fyr­ir­tæki Smit­hfi­eld í Suður-Dakóta sem fram­leiðir um 5 pró­sent af öllu svína­kjöti sem neytt er í Banda­ríkj­unum. Þar vinna um 3.500 manns og síð­ari hluta mars­mán­aðar kom þar upp fyrsta stað­festa smitið. Þó að starfs­menn­irnir vissu af því gátu þeir ekki hætt að mæta í vinn­una, ver­andi fyr­ir­vinna margra. Svo fór að lokum að Í kringum eitt þús­und þeirra fengu COVID-19. Og loks um miðjan apríl ákváðu stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins að hætta starf­semi tíma­bundið. „Það eru raun­veru­legar mann­eskjur á bak við allar vörur sem þú kaupir út í búð,“ segir Sara Telahun Birthe, dóttir eins starfs­manns Smit­hfi­eld. „Þetta fólk hefur verið mis­notað.“

Alls hafa 38 kjöt­vinnslur hætt starf­semi allt frá nokkrum dögum upp í nokkrar vikur. Sér­fræð­ingar telja að und­an­farið hafi kjöt­fram­leiðsla í Banda­ríkj­unum dreg­ist saman um helm­ing af þessum sökum. Þess sjást glögg merki í kjöt­borðum versl­ana um allt landið. Versl­un­ar­keðjan Costco hefur m.a. gripið til þess ráðs að skammta við­skipta­vinum kjöt, hver og einn má ekki kaupa nema þrjár kjöt­vörur í einu. Skyndi­bita­staðir Wendy‘s geta ekki selt ham­borg­ara.

Þegar svín eru orðin 150-180 kíló eru þau orðin of þung fyrir búnað slát­ur­hús­anna. Þá verður að beita öðrum aðferðum til að drepa þau. „Á hverjum degi sem þú elur upp svín þá ertu að gera það svo það verði matur,“ segir svína­bónd­inn Mike Boerboom, í sam­tali við BBC. „Þú ert að rækta það til að setja það á borðið hjá ein­hverjum. Til­hugs­unin um að þurfa að taka það sem átti að verða matur og henda því... það veldur manni ógleði.“

Bændur hafa orðið fyrir miklu fjár­hagstjóni en það er líka mörgum þeirra erfitt að fella dýr sín með þessum hætti. Flest búin eru í mið­ríkjum Banda­ríkj­anna á svæðum þar sem atvinnu­lífið er fábreytt. Líklegt er að ein­hverjir bændur muni ekki sjá sér annað fært en að hætta búskap.

Í Iowa, þar sem svínabú eru flest í land­inu, þarf að öllum lík­indum að drepa um 600 þús­und svín utan slát­ur­húsa á næstu vikum. Þegar hafa um 90 þús­und verið felld.

Hætta á mengun

Hópur þing­manna í Iowa hefur biðlað til stjórn­valda að veita bændum aðstoð, bæði við að fella dýrin og fjár­hags­lega. Þeir vilja einnig að svína­bændur fái áfalla­hjálp. Ef bændur fá ekki aðstoð við að „grisja hjarð­irnar“ þá gæti það, að mati þing­mann­anna, haft áhrif á heilsu dýr­anna, skapað umhverf­isvá og að fjöl­margir bændur muni bregða búi.

[links]Svín eru ekki einu dýrin sem þjást í þessu ástandi þó að þau, stærðar sinnar vegna, séu fyrstu fórn­ar­lömbin. Hænsna- og eggja­bændur eru einnig farnir að drepa dýrin í eld­is­hús­unum. Millj­ónir kjúklinga hafa verið kæfðar með koltví­sýr­ingi.

Ástandið hefur opnað augu manna fyrir því hvað slátrun dýra og vinnsla kjöts hefur á síð­ustu árum færst á hendur fárra og risa­stórra fyr­ir­tækja. Þegar þau svo verða að hætta rekstri tíma­bundið eiga bændur engra ann­arra kosta völ.

Í grein New York Times kemur fram að fjölda­fram­leiðsla á svínum sé þannig að dýrin séu alin í eld­is­húsum í hálft ár eða þar til þau ná um 130 kílóum að þyngd. Þá eru þau send til slátr­unar. Ef þau eru mikið þyngri er ekki hægt að hengja skrokka þeirra upp á fram­leiðslu­línur slát­ur­hús­anna.

Risavaxin bú og risavaxnar kjötvinnslur

Einnig hefur nú ber­sýni­lega komið í ljós hversu stór svínabú eru orðin. Rúmlega 98 pró­sent allra svína eru alin upp á stór­búum, þ.e. búum þar sem alin eru hverju sinni hund­rað svín eða fleiri. Dýra­vernd­un­ar­sam­tök hafa bent á að eftir því sem búin stækka eykst hætta á því að svín­unum líði verr. Afhjúpað hefur verið að á búum sé gylt­unum haldið í þröngum stíum, fjarri grísum sínum.

Þau gagn­rýna nú, þegar millj­ónir dýra verða ekki færð til slátr­unar í við­ur­kenndum slát­ur­húsum, að kjöt­iðn­að­ur­inn hafi ekki átt til neinar neyð­ar­á­ætl­anir til að bregð­ast við ástandi sem þessu. Fjölda­fram­leiðsla hafi þurrkað út mann­úð­ina við upp­eldi og slátrun dýr­anna.

Bændur eru nú margir orðnir uppi­skroppa með pláss. Ræktunin gengur út á það að slátra reglu­lega svo færa megi aðra kyn­slóð grísa inn í húsin. Bóndinn Boerboom hefur reynt að kom­ast hjá því að fella svínin í eld­is­hús­unum. Hann hefur meðal ann­ars selt þau á Facebook. Hann segir að í síð­ustu viku hafi maður einn keypt 48 svín af honum og flutt þau til slátr­ara í Wisconsin. Kjötið hafi svo verið gefið til sam­taka sem útdeila mat til þurf­andi. Veiði­menn, sem kunna til verka við slátrun, hafa einnig keypt nokkur dýr af honum.

En stærstu dýrin þarf að drepa. Og einnig þau minnstu. Nokkrir bændur í Iowa eiga saman gyltur til undan­eldis. Þeir tóku þá erf­iðu ákvörðun í sam­ein­ingu að lóga grís­unum. Síðan þá hafa um 125 grísir verið drepnir á viku, sumir þeirra strax eftir got. Einn bænd­anna, Dean Meyer, segir í sam­tali við New York Times að hann viti ekki hvernig grís­irnir voru drepnir. Hann vilji ekki vita það. „Þetta gengur algjör­lega gegn öllum okkar gildum,“ segir Meyer. „Hin nátt­úru­lega leið er að halda öllu á lífi og hugsa eins vel um [dýrin] og við getum.“

Eitt þeirra vanda­mála sem bændur glíma við er hvernig eigi að losa sig við hræ svín­anna eftir að þau eru drepin. Þeir segja minna mál að losa sig við smáa grísi en risa­stór svín eru annað mál. Óttast er að ef ekki verði rétt að málum staðið geti mengun borist í ár, lækni og vötn.

Í Minnesota hafa heil­brigð­is­yf­ir­völd leigt stór land­svæði þar sem grafa á hræin. Á hverjum degi koma þangað stórir flutn­inga­bílar, fullir af svíns­hræjum. Hræin eru svo hökkuð niður í vél sem almennt er notuð er við að kurla niður tré.

Í miðjum far­aldri kór­ónu­veiru hefur neysla á vegan-fæði marg­fald­ast víða – í Banda­ríkj­unum um 280 pró­sent miðað við sama tíma­bil í fyrra. Skýr­ing­arnar eru marg­vís­legar en ein er talin fel­ast í því að fólk hefur farið að íhuga fæðu­val sitt í kjöl­far heims­far­ald­urs sem á upp­tök sín í dýrum. Þegar fólk fór að hamstra mat vegna far­ald­urs­ins, áður en kjöt­skorts­ins varð vart, jókst sala á kjöti hlut­falls­lega minna en ann­arra mat­vara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár