Mynd: EPA

PETA kaupir hlutabréf í sláturhúsum og kjötvinnslum

Hvað eiga fyr­ir­tækin Tyson Foods, Smit­hfi­eld Foods og Maple Leaf Foods sam­eig­in­legt fyrir utan að vera kjöt­fram­leið­endur og hafa glímt við hópsmit COVID-19 meðal starfs­manna? Svarið er: Dýra­vernd­un­ar­sam­tökin PETA.

Ef þú hefur borðað ham­borg­ara eða kjúkling­anagga í Banda­ríkj­unum eru meiri líkur en minni að dýr­inu hafi verið slátrað hjá Tyson Foods, öðrum stærsta kjöt­fram­leið­anda heims. Ef ekki þá er lík­legt að kjötið komi frá Smit­hfi­eld Foods. Bæði þessi fyr­ir­tæki og miklu fleiri í sama bransa hafa síð­ustu mán­uði hafið fram­leiðslu á vegan-fæðu. Í mörgum þeirra hafa komið upp hópsmit af nýju kór­ónu­veirunni og starf­semin því í upp­námi.

Þó að far­aldur COVID-19 hafi verið áfall fyrir heims­byggð­ina telja dýra­vernd­un­ar­sam­tökin PETA að læra verði af reynsl­unni: Flestir smit­sjúk­dómar í mönnum að und­an­förnu megi rekja til dýra. Og því sé tíma­bært að hætta stór­kost­legri fjölda­fram­leiðslu á kjöti með til­heyr­andi upp­eldi á millj­ónum dýra og slátrun þeirra og hefja í stað sjálf­bæra fram­leiðslu á mat­vöru úr jurta­rík­inu.

Talið er nær full­víst að upp­tök kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins megi rekja til blaut­mark­aðar (e. wet market) í Wuhan-borg í Kína. Á slíkum mörk­uðum eru seld bæði lif­andi og dauð dýr og hættan á því að veirur og bakt­er­íur ber­ist í fólk því mikil. Nú hafa þing­menn í tveimur ríkjum Banda­ríkj­anna, New York og Kali­forníu, kynnt áform um laga­breyt­ingar sem banna mark­aði með lif­andi dýr.

Það kann að koma fólki á óvart en í New York-borg einni saman eru yfir átta­tíu mark­aðir með lif­andi dýr þar sem kjúklingum, öndum, kalkúnum, kan­ínum, geitum og fleiri dýrum er slátrað á staðnum og kjötið selt við­skipta­vinum.

Í Kali­forn­íu­ríki vilja þing­menn ganga enn lengra og banna inn­flutn­ing og sölu á villtum dýrum, þar með talda veiði­m­inja­gripi úr ljónum, fílum og nas­hyrn­ingum svo dæmi séu tekin.

Sjúk­dómar sem ber­ast frá dýrum í menn gera það vegna nálægð­ar­innar og í heimi þar sem sífellt meira er fram­leitt af kjöti og sam­neyti dýra og manna er mikið eykst hættan á slíkum smitum. Vanda­málið er ekki bundið við Asíu og blaut­mark­að­ina. Yfir sex­tíu banda­rískir þing­menn tóku höndum saman í byrjun apríl og sendu Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni bréf þar sem hún var hvött til að banna mark­aði sem þessa í öllum heim­inum. Í því bréfi var þó áherslan lögð á Kína – þó að mark­aði þar sem dýrum er slátrað á staðnum á meðan kúnn­inn bíður megi finna mun víðar.

Veikur kjúklingur á stóru búi í Bandaríkjunum.
Veikur kjúklingur á stóru búi í Banda­ríkj­unum.

Dýra­vernd­un­ar­sam­tökin PETA hafa fagnað fyr­ir­hug­uðum laga­breyt­ingum í banda­rísku ríkj­unum tveimur og segir for­seti þeirra, Ingrid Newkirk, að mann­fólk þarfn­ist mark­aða með lif­andi dýr eins og „sund­maður þarfn­ast krókó­díls. Svo lengi sem við höldum þeim opnum setjum við líf okkar í hættu“.

Og PETA hefur ekki látið við það eitt sitja að hvetja aðra til góðra verka heldur hafa sam­tökin hafið kaup á hluta­bréfum í stærstu kjöt­fram­leið­endum Banda­ríkj­anna, m.a. Tyson Foods. Markmið sam­tak­anna er að geta tekið þátt í ákvörð­unum fyr­ir­tækj­anna þegar kemur að fram­tíð­ar­sýn þeirra og hvetja stjórn­endur til að fram­leiða og selja aðeins mat­vöru úr jurta­rík­inu.

Nokkrir stórir kjöt­fram­leið­endur í Banda­ríkj­unum hafa þegar tekið skref í þessa átt. Tyson Foods er einmitt eitt þeirra. Þar er hafin fram­leiðsla á kjöt­lausum nöggum. Hug­myndin er þó – enn sem komið er – að bjóða neyt­endum vörur bæði með kjöti og án þess.

Við vörum við­kvæma við mynd­band­inu hér að neðan en þar sjást starfs­menn slát­ur­húss slíta hausa af kjúklingum.

En tengj­ast risa­vöxnu slát­ur­húsin í Banda­ríkj­unum eitt­hvað far­aldri COVID-19? Heldur betur.

Hópsmit varð til dæmis í verk­smiðjum Smit­hfi­eld Foods, einum stærsta kjöt­fram­leið­anda Banda­ríkj­anna. Um þús­und starfs­menn smit­uð­ust. Starfs­menn­irnir vinna í mik­illi nálægð hver við annan og auð­vitað dýrin sem þeir slátra. Og stór hluti þeirra er inn­flytj­endur. Fólk sem hefur fyrir mörgum að sjá og er oft eina fyr­ir­vinnan í fjöl­skyld­unni. Það var því ekki hlaupið að því að taka sér frí frá vinnu þó að ótt­inn við kór­ónu­veiruna gerði vart við sig. Sömu sögu er að segja frá öðrum slát­ur­húsum og kjöt­vinnslum í land­inu. Þúsundir starfs­manna slíkra fyr­ir­tækja hafa greinst með COVID-19.

PETA hefur síð­ustu daga vakið athygli á þess­ari hræði­legu stöðu með aug­lýs­ingum í fjöl­miðlum og ítar­legum til­kynn­ingum um stöð­una á heima­síðu sinni. Þar kemur fram að sam­tökin hafi keypt hluti í nokkrum stórum kanadískum og banda­rískum kjöt­fram­leið­endum og eiga því héðan í frá full­trúa á aðal­fundum, geta átt í beinum sam­skiptum við aðra hlut­hafa og stjórn­endur og þar með þrýst á að fyr­ir­tækin skipti um stefnu og fram­leiði aðeins vegan-fæði. „Annar far­aldur er óum­flýj­an­legur ef okkur mann­fólk­inu tekst ekki að læra af þessum,“ segja sam­tökin. „Svo við þrýstum á kjöt­fram­leið­endur að loka slát­ur­hús­unum sínum og kveikja á vegan-fram­leiðsl­unni.“

Samtökin hafa gert rann­sóknir á aðbún­aði dýra í slát­ur­húsum m.a. hjá Tyson Foods. Við þá rann­sókn kom í ljós að dæmi voru um að starfs­menn slitu hausa af kjúklingum við slátrun. Stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins segja það engan veg­inn ásætt­an­legt og ekki sam­ræm­ast vinnu­ferlum.

Fyr­ir­tækið hefur þegar hafið fram­leiðslu á vegan-fæði og hvetur PETA stjórn­endur til að leggja meiri áherslu á þá fram­leiðslu.

Smit­hfi­eld Foods í Suður-Dakóta er í eigu WH Group sem er með höf­uð­stöðvar sínar í Hong Kong. Fyr­ir­tækið hefur líkt og Tyson Foods hafið fram­leiðslu á vegan-fæði undir merkjum Pure Farmland. Hópsmitið varð til þess að draga þurfti veru­lega úr fram­leiðsl­unni. PETA telur þar með hafa skap­ast kjörið tæki­færi til að skipta um kúrs og ein­beita sér að vegan-vörum.

Fram­leið­and­inn Hormel hefur verið undir smá­sjánni hjá PETA enda hafa starfs­menn orðið upp­vísir að stór­kost­legu dýra­níði. Þannig hafa grísir verið barðir með járn­stöngum, slegnir í höf­uðið, potað hefur verið í augu þeirra og sparkað í kyn­færi, sam­kvæmt rann­sókn sem PETA gerði á svína­búi fyr­ir­tæk­is­ins í Iowa. Hormel hefur sett á markað vegan-vöru­lín­una Happy Little Plants.

Svín á leið til slátrunar. Mynd: PETA
Svín á leið til slátr­unar. Mynd: PETA

Sömu sögu er að segja frá kanadíska kjöt­fram­leið­and­anum Maple Leaf Foods. Fyr­ir­tækið hóf nýverið fram­leiðslu á vegan-vörum undir nafn­inu Lightlife. „Hvers vegna ættu þeir að halda áfram að slátra kúm, kjúklingum og svínum sem elska að hlusta á tón­list, leika sér með bolta og að fá nudd?“ bendir PETA á.

Samtökin benda svo einnig á að svínaflens­una megi lík­lega rekja til banda­rísks svína­bús og að margir aðrir infú­ensu­far­aldrar eigi rætur að rekja til kjúklinga­búa. Vitna sam­tökin til Smit­sjúk­dóma­varna Banda­ríkj­anna sem hafa varað við því að um 75 pró­sent af nýlegum smit­sjúk­dómum í mönnum eigi upp­runa sinn í öðrum dýra­teg­undum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár