Hluthafar Árvakurs lánuðu félaginu 179 milljónir

Árvakur, útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins, skuld­aði hlut­höfum sínum 179 millj­ónir í lok síð­asta árs. Hlutaféð var hækkað um 200 millj­ónir í sumar og Kaup­fé­lag Skag­firð­inga lagði til stærstan hluta þess. Við­skipta­vild bók­færð vegna kaupa á útgáfu Andr­és­blaða.

Hlut­hafar Árvakurs, útgef­anda Morg­un­blaðs­ins, lán­uðu félag­inu 144 millj­ónir króna á árinu 2016. Samtals skuld­aði útgáfu­fé­lagið hlut­höfum sínum 179 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót. Þetta kemur fram í nýbirtum árs­reikn­ingi Árvakurs.

Hlut­hafar Árvakurs juku hlutafé félags­ins um 200 millj­ónir króna fyrr á þessu ári til að mæta þess­ari skuld. Í frétt í Morg­un­blað­inu þann 8. júlí síð­ast­lið­inn var haft eftir Haraldi Jóhann­es­sen, fram­kvæmda­stjóra Árvakurs og ann­ars rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins, að miklar launa­hækk­anir skýrðu þann halla sem varð á rekstri Árvakurs. Þá hafi árið ein­kennst af sókn­ar­hug þar sem fjár­fest var í kaupum á Eddu-útgáfu, sem gefur meðal ann­ars út Andr­és­blöð, og kaup á útvarps­stöðv­unum K100 og Retro af Símanum.

[links] Í árs­reikn­ingi Árvakurs kemur fram að félagið bók­færði virði Eddu-útgáfu á 40 millj­ónir króna. þar kemur einnig fram að Árvakur bók­færði 85,5 millj­ónir króna í við­skipta­vild vegna kaupa sinna á Eddu-útgáfu. Í skýr­ingum segir að sú við­skipta­vild „sé til­komin vegna kaupa móð­ur­fé­lags á öllum hlutum í Eddu-útgáfu ehf. á hærra verði en bók­færðu verði eigin fjár. Rekstur Eddu útgáfu verður með­tal­inn í rekstri sam­stæðu frá og með 1. jan­úar 2017 og frá þeim tíma verður við­skipta­vildin afskrifuð línu­lega á 10 árum.“ Ekki kemur fram hvað greitt var fyrir útvarps­stöðv­arnar tvær en sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans var það lág fjár­hæð.

Tapað rúmlega 1,5 milljarð á átta árum

Árvakur tap­aði 49,7 millj­ónum króna í fyrra. Frá því að nýir eig­endur tóku við rekstr­inum árið 2009 hefur félagið tapað yfir 1,5 millj­örðum króna. Tap hefur verið á rekstri Árvakurs öll árin frá því að eig­enda­skiptin urðu utan þess að Árvakur skil­aði sex millj­óna króna hagn­aði árið 2013. Hlut­hafar Árvakurs hafa sett inn rúm­lega 1,4 millj­arða króna hið minnsta í nýtt hlutafé á þeim tíma, þegar tekið er til­lit til þeirra 200 millj­óna króna sem bætt var við í ár.

[adspot] Við­skipta­banki Árvakurs, Íslands­banki, hefur afskrifað um 4,5 millj­arða króna af skuldum félags­ins frá árinu 2009. Síðari lota afskrifta átti sér stað árið 2011 og var upp á einn millj­arð króna. Þorri skulda Árvakurs við lána­stofn­anir, um 504 millj­ónir króna, eru á gjald­daga í ár. Handbært fé sam­stæð­unnar var um 15 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót og dugar því ekki til að greiða umræddan gjald­daga nema umtals­verður bati verði á rekstri Árvakurs á árinu 2017. Því þarf lík­ast til að end­ur­fjár­magna umræddar skuldir eða auka hlutafé til að greiða gjald­dag­ann.

Fyrir liggur að Árvakur hefur misst að minnsta kosti einn stóran við­skipta­vin það sem af er árinu 2017. Útgáfu­fé­lag Frétta­tím­ans var stór við­skipta­vinur Lands­prents, prent­smiðju í eigu Árvakurs. Á árs­grund­velli var kostn­aður Frétta­tím­ans við prentun og pappír allt að 150 millj­ónir króna á ári miðað við einn útgáfu­dag. Um tíma voru útgáfu­dagar Frétta­tím­ans þrír. Kostn­aður við prentun og pappír á árs­grund­velli miðað við þann fjölda útgáfu­daga var meira en 300 millj­ónir króna. Morg­un­dagur, útgáfu­fé­lag Frétta­tím­ans hefur verið gefið upp til gjald­þrota­skipta og ljóst að það mun ekki eiga í frek­ari við­skiptum við Lands­prent. Þar er því um að ræða tekjur sem munu ekki skila sér á árinu 2017.

Kaupfélag Skagfirðinga leggur til háar fjárhæðir

Eigandi Árvakurs er félagið Þórsmörk. Það félag hefur að mestu verið í eigu aðila sem tengj­ast stærstu stoðum íslensks sjáv­ar­út­vegs. Í lok síð­asta árs áttu slíkir aðilar um 96 pró­sent hlut í Þórsmörk og báru þar af leið­andi þorra þess kostn­aðar sem hlot­ist hefur af því að halda Morg­un­blað­inu lif­andi í gegnum tap­rekstur und­an­far­inna ára.

Í apríl var til­kynnt að Eyþór Arnalds, sem er þekkt­astur fyrir að hafa verið í hljóm­sveit­inni Tod­mobile, sveita­stjórn­ar­störf fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn á Suð­ur­landi og ýmis­konar fyr­ir­tækja­að­komu, hefði keypt 26,6 pró­sent hlut í Árvakri. Um væri að ræða allan hlut Sjáv­ar­út­vegs­ris­ans Samherja, hlut Síld­ar­vinnsl­unnar og Vísis hf. Aðkoma Eyþórs að fjöl­miðlum hafði áður tak­markast við gerð hans á mjög umdeildri skýrslu um þróun á starf­semi RÚV sem birt var síðla árs 2015. Skýrslan var unnin fyrir þáver­andi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra Illuga Gunn­ars­son.

Upp­lýs­ingar um eign­ar­hald Árvakurs voru upp­færðar á heima­síðu Fjöl­miðla­nefndar í byrjun júlí líkt og lög gera ráð fyrir. Frétta­blaðið greindi frá því í síð­ustu viku að þær upp­lýs­ingar end­ur­spegl­uðu eign­ar­haldið eftir að 200 millj­óna króna hluta­fjár­aukn­ing hefði átt sér stað. Í frétt blaðs­ins kom fram að Kaup­fé­lag Skag­firð­inga hefði lagt til mest af þeim pen­ingum sem lagðir voru til við­bótar í félagið og við það minnk­aði hlutur Ramses II, félags í eigu Eyþórs Arn­alds, um nærri tvö pró­sentu­stig, og er nú 22,87 pró­sent. Kaup­fé­lag Skag­firð­inga á nú 14,15 pró­sent í Þórs­mörk í gegnum félagið Íslenskar sjáv­ar­af­urðir.

Ísfélagsblokkin langstærsti eigandinn

Eyþór er enn stærsti ein­staki eig­andi Árvak­urs en félög tengd Ísfé­lagi Vest­manna­eyja eru hins vegar enn með sam­an­lagt stærstan eign­ar­hlut. Ísfé­lagið á sjálft 13,43 pró­sent hlut og félagið Hlynur A, í eigu Guð­bjargar Matth­í­as­dótt­ur, aðal­eig­anda Ísfé­lags­ins, á 16,45 pró­sent hlut. Auk þess á félagið Legalis 12,37 pró­sent hlut. Eig­endur þess eru m.a. Sig­­ur­­björn Magn­ús­­son, stjórn­­­ar­­for­­maður Árvak­­urs og stjórn­­­ar­­maður í Ísfé­lag­inu, og Gunn­laugur Sævar Gunn­laugs­­son, stjórn­­­ar­­for­­maður Ísfé­lags­ins. Sam­an­lagður hlutur þess­­arar blokkar í Árvakri er 42,25 pró­­sent.

Í umboði Þór­s­­merkur sitja fimm manns í stjórn Árvak­urs. Sig­­ur­­björn Magn­ús­­son er stjórn­­­ar­­for­­maður en auk hans sitja þar Ásdís Halla Braga­dóttir (fyrrum bæj­­­ar­­stjóri Garða­bæjar fyrir hönd Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins og einn aðal­­eig­anda heima­­þjón­ust­unnar Sinn­um), Bjarni Þórður Bjarna­­son (fram­­kvæmda­­stjóri Arctica Finance), Katrín Pét­­ur­s­dóttir (for­­stjóri Lýs­is) og Eyþór Arnalds í stjórn­inni.

Frið­­­björn Orri Ket­ils­­son (fyrrum rit­­stjóri og ábyrgð­­ar­­maður vefs­ins amx.is, sem hætti starf­­semi 1. októ­ber 2013) vék úr stjórn fyrir Eyþóri fyrr á þessu ári og er nú vara­maður ásamt Bolla Krist­ins­syni, oft­ast kenndum við tísku­vöru­versl­un­ina Sautján sem hann átti og rak um langt skeið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár