Tillögur um úrbætur í fjölmiðlaumhverfinu hafa ekki verið samþykktar

Nefnd um rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla vinnur að loka­frá­gangi skýrslu. Tillögur um breyt­ingar til úrbóta hafa ekki verið sam­þykktar í nefnd­inni, sem hefur keypt þjón­ustu af KOM. Gísli Freyr Val­dórs­son hefur unnið fyrir hana sem und­ir­verk­taki.

Unnið er að frá­gangi á skýrslu nefndar um bætt rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla á Íslandi, þar sem meðal ann­ars umgjörð og skil­yrði fjöl­miðla­rekst­urs á Íslandi verða borin saman við önnur lönd. Þetta kemur fram í svari mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um vinnu nefnd­ar­innar. Þar segir að sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá for­manni nefnd­ar­innar hafi málið taf­ist meðal ann­ars vegna gagna­öfl­unar erlendis frá og anna nefnd­ar­manna. Stefnt sé að því að mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra fái nið­ur­stöður nefnd­ar­innar fyrir sum­ar­leyfi.

Björgvin Guð­munds­son, for­maður nefnd­ar­innar og annar eig­enda almanna­tengsla­fyr­ir­tæk­is­ins KOM, segir að drög liggi fyrir og séu í yfir­lestri hjá hverjum og einum nefnd­ar­manni. Nefndin muni koma saman á fimmtu­dag til að ræða breyt­ingar og athuga­semdir. „Verk­efnið var að skila sam­hliða til­lögum um breyt­ingar til úrbóta á rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla. Drög að þeim liggja einnig fyrir en hafa ekki verið sam­þykktar. Þetta hefur dreg­ist, bæði vegna anna nefnd­ar­manna og sam­an­tektar á gögnum.“

Hafa sótt aðstoð til KOM og Gísli Freyr var undirverktaki

Að sögn Björg­vins hefur nefndin engan starfs­mann og þar sem nefnd­ar­menn eru allir í öðrum störfum, og flestir að sinna nefnd­ar­starf­inu utan síns vinnu­tíma, þá hafi hann óskað eftir aðstoð frá mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu við upp­lýs­inga­öflun, aðstoð við úrvinnslu gagna, und­ir­bún­ing og frá­gang. „Vegna anna í ráðu­neyti var erfitt að koma því við en ég fór þá fram á að geta sótt aðstoð til KOM og und­ir­verk­taka þegar á þyrfti. Það hef ég gert.“ Björgvin stað­festir einnig að KOM hafi fengið Gísla Frey Val­dórs­son, rit­stjóra Þjóðmála og fyrr­ver­andi aðstoð­ar­mann Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, til að vinna afmarkað verk­efni fyrir nefnd­ina.

Í skip­ana­bréfi nefnd­ar­innar kom fram að sér­stök þókn­ana­nefnd ákvarði greiðslur fyrir þá vinnu sem unnin er fyrir nefnd­ina. Því liggur ekki fyrir hvað greitt verður fyrir aðkeypta þjón­ustu vegna upp­lýs­inga­öfl­unar, aðstoð við úrvinnslu gagna, und­ir­bún­ing og frá­gang.

Vill skoða skattaívilnanir til fjölmiðla

Kristján Þór Júl­í­us­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, var gestur sjón­varps­þátt­ar­ins Kjarnans um miðjan maí og ræddi þar fjöl­miðlaum­hverfið á Íslandi. Þar sagð­ist hann hafa áhyggjur af stöðu þess. „Við erum í upp­sveiflu og þetta ætti að geta gengið þokka­lega vel. Ég hef veru­legar áhyggjur af því að þegar nið­ur­sveiflan kemur þá þrengi enn meira að þessu starf­i,“ sagði hann. Kristján Þór sagð­ist telja það skyn­sam­legt að skoða rekstr­ar­um­hverfið út frá skatta­lega þætt­in­um. „Skoða skatt­kerfið og íviln­anir þar til prent­miðla, til vef­miðla þess vegna, og svo fram­veg­is.“

Í þætt­inum sagði Kristján að hann vænti þess að nefnd um bætt rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla á Íslandi, sem for­veri hans Illugi Gunn­ars­son skip­aði, myndi skila af sér fyrir lok maí­mán­aðar. Þau skil hafa síðan taf­ist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár