Björt framtíð ein um að taka ekki framlög frá fyrirtækjum

Af þeim þremur flokkum sem fengu engin fram­lög frá fyr­ir­tækjum í fyrra er einn í sömu stöðu í ár, Björt fram­tíð. Píratar og VG taka við fram­lögum frá fyr­ir­tækjum, líkt og hinir flokk­arnir.

Björt fram­tíð er eini stjórn­mála­flokk­ur­inn með full­trúa á Alþingi sem hefur tekið sér­staka ákvörðun um að taka ekki við styrkjum frá fyr­ir­tækjum, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans.

Í síð­ustu viku voru upp­lýs­ingar úr árs­reikn­ingum flokk­anna birtar, og í ljós kom að þrír af þeim sex stjórn­mála­flokkum sem hafa átt sæti á Alþingi fengu engin fram­lög frá fyr­ir­tækjum í fyrra. Það voru Píratar, Vinstri-græn og Björt fram­tíð. Kjarninn leit­aði upp­lýs­inga um það hvernig þessir flokkar hafa hagað þessum málum í ár, á kosn­ing­ar­ári. Aðrir flokkar sem munu lík­lega ná inn á þing hafa tekið við fram­lögum frá fyr­ir­tækjum.

Björt fram­tíð tók með­vit­aða ákvörðun um að sækj­ast ekki eftir styrkjum frá lög­að­ilum árið 2015, segir Unn­steinn Jóhanns­son, upp­lýs­inga­full­trúi flokks­ins. „Stjórn Bjartrar fram­tíðar kaus svo um málið í ár, að frum­kvæði stjórnar og tekin var end­an­leg ákvörðun um það á Ársfundi Bjartrar fram­tíðar að halda þeirri stefnu til streitu. Björt fram­tíð hefur hafnað þeim styrkjum sem boð­ist hafa að frum­kvæði fyr­ir­tækja í ár,“ segir hann í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Fyrirtækjum beint á Karolina Fund

Píratar hafa farið óhefð­bundna leið til að fjár­magna sína kosn­inga­bar­áttu, og leit­uðu á náðir hóp­fjár­mögn­un­ar­síð­unnar Karolina Fund. Þar hefur ríf­lega 4 millj­ónum verið safnað. Tólf lög­að­ilar hafa styrkt flokk­inn í gegnum Karolina Fund. Sigríður Bylgja Sig­ur­jóns­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Pírata, segir að lögð hafi verið áhersla á það að sækja ekki styrki til fyr­ir­tæki, og þau fyr­ir­tæki sem vilji styrkja flokk­inn geri það í gegnum hóp­fjár­mögn­un­ina. „Með því að forð­ast beina styrki frá fyr­ir­tækjum er hægt að koma í veg fyrir að óeðli­legt hags­muna­sam­band, eða vina­tengsl, mynd­ist á milli flokks­ins og fyr­ir­tæk­is­ins,“ segir hún í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Fjáröflun mikilvæg á kosningaári

Vinstri-græn eru þriðji flokk­ur­inn sem ekki fékk nein fram­lög frá fyr­ir­tækjum í fyrra, en Björg Eva Erlends­dóttir, fram­kvæmda­stjóri flokks­ins, segir að á þessu ári hafi flokk­ur­inn óskað eftir styrkjum frá fyr­ir­tækjum og víða verið vel tekið. „Meiri áhersla er lögð á fjár­öflun á kosn­inga­ári, en í annan tíma og það kann að skýra hvers­vegna ekki bár­ust nein fram­lög frá lög­að­ilum í fyrra.“

Hún segir að Vinstri-græn hafi líka nýtt ýmsar óhefð­bundnar aðferðir í fjár­öflun. „Við erum með lista­ver­ka­upp­boð og happ­drætti. Í bæði lista­verkin og vinn­ing­arnir í happ­drætt­inu, byggj­ast á fram­lögum lista­manna og þeirra sem gefa vinn­ing­ana. En vinn­ing­arnir fela oft­ast í sér kynn­ingu á fólki og stöðum sem tengj­ast VG á ein­hvern hátt, t.d. er einn vinn­ingur vika í Þistil­firði í sum­ar­bú­stað fjöl­skyldu Stein­gríms,“ segir Björg Eva meðal ann­ars í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans. Lista­verk eftir Ragnar Kjart­ans­son er stærsti vinn­ing­ur­inn í kosn­inga­happ­drætti VG, „en verð­mæti þess vinn­ings er aðeins of hátt, því það fer yfir 400 þús­und króna markið og því mun VG þurfa að borga Ragnari til baka 20 þús­und, svo hann sé ekki kom­inn yfir það hámark sem flokk­arnir mega taka við frá sama aðila,“ segir Björg Eva. Lang­flestir styrkirnir til flokks­ins séu þó komnir frá ein­stak­lingum, auk þess sem allir kjörnir full­trúar og starfs­menn leggja mán­að­ar­lega til flokks­ins hluta af launum sínum sam­kvæmt tíund­ar­kerfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár