Svona fjölgaði smitum á einni viku: 1, 2, 3, 7, 15, 22, 23, 74

Ástæða er til að gleðj­ast yfir stöð­unni á far­aldr­inum á Íslandi og njóta þess skjóls sem við erum í þessa dag­ana, segir Rögn­valdur Ólafsson aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn. „Á sama tíma er gott að hafa í huga að þessi staða er við­kvæm, hún getur breyst hratt.“

Rögnvaldur Ólafsson aðstoðaryfirlögregluþjónn.
Rögn­valdur Ólafsson aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn. Mynd: Almannavarnir

Staðan á far­aldr­inum á Ísland er alveg ágæt, sér­stak­lega ef við horfum til land­anna í kringum okkur, sagði Rögn­valdur Ólafsson, aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. „Það er ástæða til að gleðj­ast yfir því og njóta þess skjóls sem við verum í þessa dag­ana. En á sama tíma er gott að hafa í huga að þessi staða er við­kvæm, hún getur breyst hratt.“

Hann rifj­aði svo upp hver staðan á far­aldr­inum var í sept­em­ber. „Ef við skoðun 11. til 18. sept­em­ber þá vorum við fyrst með eitt til­felli, tvö, þrjú, sjö, fimmtán, 22, 23 og 74. Á þessu sjö daga tíma­bili förum við úr einu til­felli á dag og endum í 74. Þannig að þetta er mjög hratt að ger­ast.“

[adspot]

Rögn­valdur rifj­aði einnig upp orð Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis um að aðeins eitt smit þurfti til að koma stórri bylgju af stað. „Það er því engin ástæða til að slaka á gagn­vart COVID eða setja smit­varnir og ábyrga hegðun í annað sætið.“

[links]Rögn­valdur seg­ist sjá vís­bend­ingar um að fólk sé farið að slaka aðeins meira á en til­efni sé til, fleiri séu að hitt­ast og í stærri hópum. „Í því sam­hengi er gott að hugsa núna: Hvað ætlið þið að gera um helg­ina? Passar það við það sem við erum að reyna að gera?“

Hann sagði gott að spyrja sjálfan sig: „Hvað get ég sagt í fram­tíð­inni þegar ég fæ spurn­inga um hvað ég lagði að mörkum þegar COVID-far­ald­ur­inn gekk yfir? Get ég verið stolt af mínu fram­lagi eða var ég að þvæl­ast fyrir?“

Sýnatökukallinu svarað

Almenn­ingur hefur svarað kalli yfir­valda um að fara í sýna­töku ef minnstu ein­kenni finn­ast eftir að lægð varð í þeim fyrir nokkrum dögum. Fleiri sýni hafa því verið tekin síð­ustu daga en dag­ana á undan.

Þó að alvar­legur tónn hafi verið hjá Rögn­valdi og Þórólfi á fundi dags­ins ítrek­aði sá fyrr­nefndi að ástæða væri til að gleðj­ast yfir stöð­unni. „En það það þýðir þó ekki að við ætlum að vera með 100 manna partí.“

Hann ítrek­aði svo skila­boð sótt­varna­yf­ir­valda og almanna­varna: „Ekki slaka á, þetta er ekki búið. Þetta getur breyst mjög hratt. Förum í sýna­töku ef við finnum fyrir ein­kennum. Höldum hópa­myndun í lág­marki. Þannig getum við klárað þetta saman.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár