Búið að slíta Alþingi

Þingflokksformenn allra flokka á Alþingi stóðu saman og kvöddu Einar K. Guðfinnsson, forseta Alþingis, við lok þingfundar.
Þing­flokks­for­menn allra flokka á Alþingi stóðu saman og kvöddu Einar K. Guð­finns­son, for­seta Alþingis, við lok þing­fundar.

Alþingi hefur verið slitið og nýtt þing kemur saman á nýju kjör­tíma­bili að loknum kosn­ingum. Á síð­asta degi þings­ins voru sam­þykkt lög um aðgerðir stjórn­valda gegn skattsvikum, fast­eigna­lán til neyt­enda, stofnun milli­dóm­stigs, Græn­lands­sjóð og breyt­ingar á útlend­inga­lögum.

Síðasta þing­málið sem var sam­þykkt á þessu þingi var þings­á­lykt­un­ar­til­laga um það hvernig skuli fagna ald­ar­af­mæli sjálf­stæðis og full­veldis Íslands. Tillagan var sam­þykkt með 56 sam­hljóða atkvæðum.

Meðal mála sem ekki voru afgreidd á þing­inu voru LÍN-frum­varpið, breyt­ingar á líf­eyr­is­málum og breyt­ingar á lögum um vexti og verð­trygg­ingu.

Þingið, sem nú er að ljúka, er óvenju­legt að mörgu leyti, sagði Einar K. Guð­finns­son, for­seti Alþingis. Þetta var lengsta þingið í þing­funda­dögum talið, 147 dagar fóru í þing­hald. Aldrei hafa ráð­herrar svarað eins mörgum óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum og á þessu þingi. Bara einu sinni áður hafa verið fleiri sér­stakar umræður á einu þingi. 107 frum­vörp urðu að lögum á þessu þingi og aldrei áður hafa eins margar þings­á­lykt­un­ar­til­lögur verið sam­þykktar og á þessu ári, 72 tals­ins. Hann sagði því ljóst að þingið hefði verið athafna­samt.

Einar beindi orðum sínum til ungs fólks og bað það fólk sem áhuga hefði á því, að sækj­ast eftir störfum á Alþingi. Hann sagði sann­ar­lega margt gagn­rýni­vert við störf þings­ins, og að það hafi verið honum von­brigði að ekki hafi verið hægt að breyta þing­sköpum.

Einar er einn þeirra fjöl­mörgu þing­manna sem hætta nú störfum á Alþingi. Fjöldi þing­manna hefur í dag og und­an­farna daga nýtt tæki­færið til að kveðja Alþingi úr ræðu­stól. Einar minnt­ist á alla þing­menn­ina sem ætla nú að hætta og þakk­aði fyrir sam­starfið, auk þess sem hann minnt­ist tveggja þing­manna sem féllu frá á kjör­tíma­bil­inu, þeirra Péturs Blöndal og Guð­bjarts Hann­es­sonar. Hann þakk­aði öllum þing­mönnum og starfs­fólki Alþingis fyrir sam­starf, auk þess sem hann þakk­aði fjöl­miðla­fólki.

Að lok­inni ræðu Einars hélt Svandís Svav­ars­dóttir, þing­flokks­for­maður Vinstri-grænna, ræðu til að kveðja Einar sem þing­for­seta. Við hlið hennar stóðu þing­flokks­for­menn allra þing­flokka. „Alþingi er hjartað í lýð­ræð­inu á Íslandi,“ sagði hún. „Við þurfum að standa með þing­ræð­inu, sem er gott stjórn­ar­form, það er oft sein­legt og vesen finnst okkur, en það er ekk­ert betra til.“

Hún sagði einnig að Einar hefði með sinni fram­göngu sem for­seti stuðlað að því að auka virð­ingu Alþingis. Hún þakk­aði honum fyrir störf sín og sam­starfið, og afhenti honum blóm­vönd frá þing­mönnum. Að lokum stóðu allir þing­menn úr sætum sínum til að taka undir orð hennar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár