Skorað á íslensk stjórnvöld að gera betur í flóttamannamálum

Ríflega tvö þús­und manns hafa boðað komu sína á sam­stöðu­fund með flótta­fólki á Aust­ur­velli á morgun. Við­burð­ur­inn er hluti af Evr­ópskum degi aðgerða fyrir flótta­fólk, sem hald­inn verður víða um álf­una á morgun og 60 þús­und manns hafa boðað komu sína á á Facebook.

Til­gang­ur­inn með við­burð­inum á Aust­ur­velli er að láta allt það flótta­fólk sem nú flýr stríðs­á­tök vita að staðið sé með þeim og að það sé vel­komið.

Jovana Pavlović stjórn­mála­fræði­nemi, Steinunn Arn­þrúður Björns­dóttir prestur og Sigríður Víðis Jóns­dóttir upp­lýs­inga­full­trúi UNICEF munu ávarpa sam­kom­una á Aust­ur­velli. Jovana kom til Íslands árið 1999 eftir að hafa þurft að yfir­gefa heim­ili sitt vegna stríðs­ins í Júgóslavíu.

Þá hafa einnig um tvö þús­und manns skrifað undir áskorun Íslands­deildar Amnesty International, þar sem skorað er á íslensk stjórn­völd að tryggja öryggi, vernd og mann­rétt­indi flótta­fólks.

„Leið­togar allra Evr­ópu­ríkja, á Íslandi þeirra á meðal, verða að gera mun betur og tryggja vernd fyrir fleira fólk, deila ábyrgð­inni betur og sýna öðrum löndum og þeim sem eru í sár­ustu þörf­inni, sam­stöðu.“

Ríflega 20 sveit­ar­fé­lög á land­inu hafa lýst sig reiðu­búin til að taka á móti flótta­mönnum. Ráð­herra­nefnd stjórn­valda fund­aði í annað skiptið um flótta­manna­krís­una í dag, en engin nið­ur­staða varð af þeim fundi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár