Lög banna að sagt sé frá afbrotum þeirra sem hafa fengið uppreist æru

Samkvæmt núgild­andi hegn­ing­ar­lögum getur það varðað refs­ingu ef rifjuð eru upp afbrot dæmdra manna sem hlotið hafa upp­reist æru. Hæsta­rétt­ar­lög­maður telur að ákvæði gæti brotið gegn tján­ing­ar­frels­inu.

Robert Downey
Robert Downey Hefur verið dæmdur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn fimm börnum og nú hefur sjötta konan kært hann.

Almenn hegn­ing­ar­lög banna að rifjuð séu upp afbrot þeirra sem hafa hlotið „upp­reist æru“. 

Veiting upp­reistar æru hefur verið rædd und­an­farnar vikur frá því að greint var frá að Robert Downey, áður Róbert Árni Hreið­ars­son, hefði verið veitt „óflekkað mann­orð“ með stað­fest­ingu for­seta Íslands og starf­andi dóms­mála­ráð­herra, Bjarna Bene­dikts­syni.

Samkvæmt núgild­andi meið­yrða­lögum geta afbrota­menn sem hlotið hafa upp­reist æru farið í æru­meið­inga­mál við þá sem rifja upp afbrot þeirra. Þannig segir í 238. grein almennra hegn­ing­ar­laga: „Hafi maður, er sætt hefur refsi­dómi fyrir ein­hvern verknað, síðar öðl­ast upp­reist æru, er ekki heim­ilt að bera hann framar þeim sökum, og leysir sönnun því ekki undan refs­ingu, ef svo stendur á.“

Eins og segir í ákvæð­inu skiptir engu þótt satt sé að við­kom­andi hafi framið verkn­að­inn, engu að síður má ekki nefna það. Í til­fellum þar sem menn hljóta upp­reist æru er almennt komin fram sönnun um afbrot þeirra …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár