Breið samstaða gegn þjóðarmorði

„Rík­is­stjórn Íslands – eins og rík­is­stjórnir ann­arra ríkja – verða að bregð­ast af hörku við mann­rétt­inda­brotum og glæpum,“ segir Tótla Sæmunds­dóttir fram­kvæmda­stjóri Barna­heilla. Yfir hund­rað sam­tök og félög taka þátt í fjölda­fund­inum Þjóð gegn þjóð­ar­morði á laug­ar­dag­inn. Tótla segir sam­stöð­una breiða enda teygi ógnin sig í margar áttir.

Þjóð gegn þjóðarmorði
Þjóð gegn þjóð­ar­morði Yfir hund­ruð sam­taka og félaga efna til fjölda­fund­ar­ins en þjóð­ar­morðið teygir anga sína víða og hefur meðal ann­ars verið talað um mennta­morð, menn­ing­ar­morð og vist­morð. Mynd: Golli

„Við erum öll búin að horfa upp á óbæri­legar þján­ingar almennra borg­ara í tvö ár. Við viljum öll raun­veru­legar aðgerðir,“ segir Tótla Sæmunds­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Barna­heilla. Samtökin eru á meðal rúm­lega hund­rað sam­taka og félaga sem taka þátt í fjölda­fund­inum Þjóð gegn þjóð­ar­morði á laug­ar­dag­inn.

„Við ákváðum að hafa þetta opinn sam­ráðs­vett­vang þar sem félög gátu skráð sig til leiks,“ segir Tótla og bætir við: „Þetta er í raun­inni leið fyrir flesta til að sýna sam­stöðu.“ 

Hún segir að fólk sé ein­dregið hvatt til þess að mæta en við­burð­ur­inn fer fram á sex stöðum víða um landið: Reykja­vík, Ísafirði, Stykk­is­hólmi, Akureyri, Egils­stöðum og Húsavík. „Þetta er ólíkur hópur með ólíkar raddir og kannski til­raun til að breikka sam­stöð­una. Þannig það eru öll vel­komin á þennan við­burð.“

Ísland þarf að bregðast við af hörku

Í lýs­ingu á fjölda­fund­inum segir: „Í nær tvö ár hefur heims­byggðin fylgst með sífellt …

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár