Ríkisstjórnin með byr í segl

Þrátt fyrir að stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ar­flokk­anna mælist 48 pró­sent þá er stuðn­ing­ur­inn við rík­is­stjórn­ina mun meiri, eða 66 pró­sent.

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, Vinstri græn og Fram­sókn­ar­flokkur, mæl­ast sam­tals með 48 pró­sent fylgi sam­kvæmt nýrri könnun MMR. Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina er mun meiri, eða 66,7 pró­sent. „Þetta er meiri stuðn­ingur en nokkur rík­is­stjórn hefur notið frá hruni og ekki síst merki­legur fyrir þær sakir að mun færri, eða rúm 48%, segj­ast myndu kjósa rík­is­stjórn­ar­flokk­ana,“ segir í til­kynn­ingu frá MMR. Könnunin var fram­kvæmd 12. til 15. des­em­ber.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mæd­ist með með stuðn­ing 23,2 pró­sent fylgi og er þar með stærsti stjórn­mála­flokk­ur­inn á Alþingi.

Sam­fylk­ingin og Vinstri græn mæl­ast nokkurn vegin jafn stór, með tæp­lega 17 pró­sent fylgi, en Vinstri græn bæta við sig 3,7 pró­sentu­stigum frá því í síð­ustu könnun sem lauk þann þann 17. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn.

Píratar bæta við sig 4,2 pró­sentu­stigum milli kann­ana og Flokkur fólks­ins tapar 4,7 pró­sentu­stigum.

Um fram­kvæmd könn­un­ar­innar:
Úrtak: Ein­stak­lingar 18 ára og eldri, valdir handa­hófs­kennt úr hópi álits­gjafa MMR.
Álits­gjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir end­ur­spegli lýð­fræði­lega sam­setn­ingu þjóð­ar­innar á hverjum tíma.
Könn­un­ar­að­ferð: Spurn­inga­vagn MMR
Svar­fjöldi: 923 ein­stak­lingar, 18 ára og eldri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár