Húsnæðisfrumvörp ekki afgreidd fyrir páska - fara með afbrigðum inn í þingið

Tvö hús­næð­is­mála­frum­vörp Eyglóar Harð­ar­dóttur, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, voru ekki lögð fram á fundi rík­is­stjórn­ar­innar í dag. Fjár­mála­ráðu­neytið er enn að vinna kostn­að­ar­mat vegna frum­varpanna. Frum­vörpin eru ann­ars vegar um hús­næð­is­bætur og hins vegar um stofn­kostnað vegna félags­legs leigu­hús­næðis.

Þetta þýðir að frum­vörpin tvö, sem von­ast hafði verið til að yrðu afgreidd úr rík­is­stjórn í dag og skilað inn í þingið, koma ekki fram fyrr en eftir páska. Þá fara þau inn í rík­is­stjórn og þaðan inn í þingið. Hefð­bund­inn frestur til að leggja fram frum­vörp á Alþingi rennur út í kvöld og því er ljóst að frum­vörpin tvö þurfa að fara með afbrigðum inn í þingið.

Matthías Imsland, aðstoð­ar­maður Eyglóar Harð­ar­dóttur félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, stað­festir þetta við Kjarnann. Tafirnar breyti hins vegar engu um málið, Eygló sé algjör­lega stað­ráðin í að koma öllum hús­næð­is­frum­vörpum sínum í gegn.

Á auka­fundi rík­is­stjórn­ar­innar í gær voru tvö önnur frum­vörp Eyglóar um hús­næð­is­mál sam­þykkt. Það voru frum­varp til laga um breyt­ingu á húsa­leigu­lögum og frum­varp til laga um breyt­ingu á lögum um hús­næð­is­sam­vinnu­fé­lög.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár