Að vera fær um ást

Erfða­syndin er kjarninn í kvik­myndinni Elskuleg eftir norsk-íslensku leik­stýruna Lilju Ingólfs­dóttur. Myndin er opnunar­mynd RIFF, Alþjóð­legu kvikmynda­hátíðarinnar í Reykjavík sem hófst í vikunni. Elskuleg var heims­frumsýnd á kvikmynda­hátíðinni í Karlovy Vary í Tékklandi og vann þar fimm verðlaun, sem er met í sögu hátíðarinnar.

Lilja Ingólfsdóttir segir ævintýrið hafa verið eins og að fara út úr líkamanum.
Lilja Ing­ólfs­dóttir segir ævin­týrið hafa verið eins og að fara út úr lík­am­anum. Mynd: kviff.com

„Þetta var eins og að fara út úr líkamanum, þetta ævintýri allt saman. Þetta var alveg geggjað. Ég átti alls ekki von á að við fengjum fimm verðlaun. Ég var farin til Lissabon, á leiðinni var hringt – ég kom til Lissabon og var þar í þrjá tíma og sneri svo til baka, ég var búin að sofa í klukku­tíma þessa nótt – þetta var æðislegt,“ segir Lilja Ingólfs­dóttir mér stuttu eftir að mynd hennar Elskuleg, eða Elskling eins og hún nefnist á norsku, sópaði upp verð­launum á kvikmynda­hátíðinni í Karlovy Vary í sumar.

Verðlaun minni dómnefndanna voru tilkynnt fyrr um daginn – nánar tiltekið verðlaun gagnrýnenda­samtakanna FIPRESCI, verðlaun Europa Cinemas Label og verðlaun kirkju­dómnefndarinnar – og Elskling fékk þau öll. Um kvöldið voru svo aðal­verðlaunin og þar var Helga Guren valin besta leikkonan og myndin sjálf fær sérstök dómnefndar­verðlaun, í raun silfur­verðlaunin, og er fyrsta myndin í nærri …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár