Heiðrún Lind: Engar vísbendingar um skaðleg áhrif samþjöppunar í sjávarútvegi

Fram­kvæmda­stjóri Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi segir „örð­ugt að skilja hvað átt er við þegar rætt er um að sam­þjöppun sé jafn­vel orðin of mikil í sjáv­ar­út­vegi. Ef litið er til við­miða sam­keppn­is­rétt­ar­ins telst sam­þjöpp­unin ekki skað­leg“.

Heiðrún Lind Marteinsdóttir og Svandís Svavarsdóttir.
Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir og Svandís Svav­ars­dóttir. Mynd: Samsett mynd

Ljóst er að sam­þjöppun í sjáv­ar­út­vegi á Íslandi er hvergi nærri við­miðum sam­keppn­is­réttar sem gefa vís­bend­ingu um að hún sé orðin skað­leg.

Þetta skrifar Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, í grein á vef sam­tak­anna.

„Sam­þjöppun í sjáv­ar­út­vegi var lífs­nauð­syn­leg og hún hefur sann­ar­lega verið tölu­verð á umliðnum árum. Það er þessi þróun sem leiddi til þess að sjáv­ar­út­vegur er í dag horn­steinn margra byggð­ar­laga, drif­kraftur atvinnu allt árið um kring og upp­spretta þekk­ingar og nýsköp­unar. Þessi staða er ekki til­viljun, hún skap­að­ist vegna þess að sjáv­ar­út­vegur fékk svig­rúm til að efl­ast og njóta hag­kvæmni stærðar. Þannig hefur allt sam­fé­lagið notið góðs af. Á vett­vangi stjórn­mál­anna hlýtur verk­efnið að fel­ast í því að treysta að svo verði áfram.“

[adspot]

Svandís Svav­ars­dóttir, ráð­herra sjáv­ar­út­vegs­mála, sagði í síð­ustu viku að taka þyrfti til hend­inni hvað varði sam­þjöppun valds og auð­magns í kvóta­kerf­inu. Sagði hún að í sjón­varps­þátt­unum Ver­búð­inni hafi áhorf­endur séð „óþægi­lega gott dæmi“ um það þegar stjórn­málin og við­skiptin fara í eina sæng „og úr því verður kjör­lendi fyrir spill­ingu, fyrir þróun sem að verður erfið og kemur niður á öllum almenn­ingi“.

[links]Ráð­herr­ann sagði að í grunn­inn væri sjáv­ar­ú­veg­ur­inn að ganga vel. Kvóta­kerfið hefði komið til vegna þess að nauð­syn­legt var að vernda fiski­stofn­ana og koma í veg fyrir offjár­fest­ingu í grein­inni. „Sumir hlutar kerf­is­ins hafa algjör­lega þjónað þeim mark­miðum.“

Hins vegar sagði hún „of fáa hafa orðið of ríka“ og að sjáv­ar­pláss hefðu sum hver „í raun og veru algjör­lega liðið fyrir þessa kerf­is­breyt­ingu. Þetta þýðir það að við þurfum að taka til hend­inni að því er varðar sam­þjöppun valds og sam­þjöppun auð­magns í þessu kerfi.“

Til­teknar breyt­ingar væri hægt að gera strax, m.a. að skerpa á eft­ir­liti og hefur Svandís þegar hafið þá vinnu. En síðan þurfi að taka kerfið í heild til end­ur­skoð­unar, í sam­ræmi við stjórn­ar­sátt­mál­ann.

Sérstakt að setja skorður á útflutningsgrein

Heiðrún Lind segir í grein sinni að „nauð­syn­leg sam­þjöppun og hag­ræð­ing“ hafi verið ein ástæða þess að fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu var komið á. „Nú þykir sumum nóg komið, hag­ræð­ingin hafi gengið of langt,“ skrifar hún og því sé mik­il­vægt að varpa ljósi á hver sam­þjöpp­unin raun­veru­lega sé. „Mér segir svo hugur að það átti sig ekki allir á því.”

Sjáv­ar­út­veg­ur­inn selur um 98 pró­sent afurða sinna á erlenda mark­aði og skrifar Heiðrún Lind að það sé „að vissu leyti sér­stakt, út frá sam­keppn­is­legum sjón­ar­miðum, að setja skorður á útflutn­ings­grein“.

Þegar afla­heim­ildir þriggja stærstu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna séu lagðar saman, þá sé hlut­deild þeirra ríf­lega 23 pró­sent af heild­ar­verð­mæti afla­hlut­deilda allra teg­unda. „Sam­þjöppun í þess­ari starf­semi er því víðs fjarri þeirri sam­þjöppun sem tíðkast á mik­il­vægum íslenskum neyt­enda­mörk­uðum,“ segir Heiðrún Lind. „Því er örð­ugt að skilja hvað átt er við þegar rætt er um að sam­þjöppun sé jafn­vel orðin of mikil í sjáv­ar­út­vegi. Ef litið er til við­miða sam­keppn­is­rétt­ar­ins telst sam­þjöpp­unin ekki skað­leg. Og hún er reyndar langt frá því.“

Lögin eru skýr

Til að veiða fisk í íslenskri lög­sögu þarf að kom­ast yfir úthlut­aðan kvóta sem úthlutað er í sam­ræmi við lög um stjórn fisk­veiða. Umrædd lög eru skýr. Þau segja að eng­inn hópur tengdra aðila megi halda á meira en tólf pró­sent af heild­ar­afla. Þau mörk eiga að koma í veg fyrir of mikla sam­þjöppun í sjáv­ar­út­vegi á meðal þeirra fyr­ir­tækja sem fá að vera vörslu­að­ili fiski­mið­anna, sem eru sam­kvæmt lögum þó ekki eign þeirra heldur þjóð­ar­innar.

[adspot]

Til að telj­ast tengdur aðili er þó gerð krafa um meiri­hluta­eign eða raun­veru­leg yfir­ráð. Í því felst að aðili þurfi að eiga meira en 50 pró­sent í öðrum aðila eða ráða yfir honum með öðrum hætti til að þeir séu taldir tengdir aðilar. Þau mörk hafa verið harð­lega gagn­rýnd, enda mjög há í öllum sam­an­burði.

Mikil sam­þjöppun hefur átt sér stað í sjáv­ar­út­vegi á Íslandi á und­an­förnum ára­tugum, eftir að fram­sal kvóta var gefið frjálst og sér­stak­lega eftir að heim­ilt var að veð­setja afla­heim­ildir fyrir banka­lánum, þótt útgerð­ar­fyr­ir­tækin eigi þær ekki í raun heldur þjóðin. Slík heim­ild var veitt árið 1997.

Tíu stærstu með rúmlega 67 prósent kvótans

Haustið 2020 héldu tíu stærstu útgerðir lands­ins sam­an­lagt á 53 pró­sentum af úthlut­uðum kvóta, en Kjarninn greindi frá því í nóv­em­ber í fyrra að það hlut­fall væri komið upp í rúm­lega 67 pró­sent.

Samhliða þess­ari þróun hefur hagn­aður sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja auk­ist gríð­ar­lega. Hagnaður geirans fyrir skatta og gjöld frá byrjun árs 2009 og út árið 2020 var alls um 665 millj­arðar króna, sam­kvæmt sjáv­ar­út­vegs gagna­grunni Deloitte. Af þeirri upp­hæð fór undir 30 pró­sent til íslenskra rík­is­ins, eig­anda auð­lind­ar­innar, í formi tekju­skatts, trygg­inga­gjalds og veiði­gjalda. En rúm­lega 70 pró­sent sat eftir hjá eig­endum fyr­ir­tækj­anna.

Fjórar blokkir með meirihluta kvótans

Þegar Fiski­stofa birti síð­ast tölur um sam­þjöppun afla­heim­ilda var eitt fyr­ir­tæki yfir þeim lög­bundnu tólf pró­sent hámarki, Brim sem skráð er á íslenskan hluta­bréfa­markað. Brim leysti úr þeirri stöðu 18. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn þegar það seldi afla­hlut­deild fyrir 3,4 millj­arða króna til Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur. Eigandi Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur, Guð­mundur Krist­jáns­son, er for­stjóri Brim og stærsti ein­staki eig­andi þess fyr­ir­tækis.

Fjórar blokkir, kenndar við Samherja, Brim, Kaup­fé­lag Skag­firð­inga og Ísfé­lagið, halda á rúm­lega 60 pró­sent af öllum úthlut­uðum kvóta á Íslandi en aðilar innan þeirra eru ekki í öllum til­vikum skil­greindir sem tengdir sam­kvæmt gild­andi lögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár