Segir ljóst að rekstrarmódel Hörpu geti aldrei orðið sjálfbært

Afkoma rekstr­ar­reikn­ings Hörpu reynd­ist nei­kvæð um 461 milljón króna í fyrra og eigið fé félags­ins nei­kvætt um 510 millj­ónir króna. Þórður Sverr­is­son, stjórn­ar­for­maður Hörpu, segir ljóst að rekst­ar­módel Hörpu sé ekki sjálf­bært og því þurfi að breyta.

Afkoma rekstr­ar­reikn­ings Hörpu var nei­kvæð um 461,5 millj­ónir króna í fyrra en árið áður nam tapið 243,4 millj­ónum. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi tón­list­ar­húss­ins sem birtur var í gær. Þórður Sverr­is­son, frá­far­andi stjórn­ar­for­maður Hörpu, segir tapið skýr­ast af því fyr­ir­komu­lagi að skulda­bréfa­lán til 35 ára, sem tekið var til að fjár­magna bygg­ingu húss­ins, sé vistað í dótt­ur­fé­lagi fyr­ir­tæk­is­ins. Hann segir ljóst að þetta rekst­ar­módel Hörpu hafi aldrei verið og geti aldrei orðið sjálf­bært. Þessu verði að breyta til að skapa Hörpu eðli­legan rekstr­ar­grund­völl til fram­tíðar.

Eigið fé neikvætt um rúmlega hálfan milljarð

Tón­listar- og ráð­stefnu­húsið Harpan er í 54 pró­sent eigu rík­is­ins og 46 pró­sent í eigu Reykja­vík­ur­borgar. Í árs­reikn­ingi félags­ins kemur fram að í Hörpu voru haldnir tæp­lega 1.500 við­burðir á síð­asta ári og tekjur af við­burða­haldi Hörpu voru 757 millj­ónir króna og juk­ust um tutt­ugu millj­ónir milli ára. Jafn­framt er annað árið í röð rekstr­ar­hagn­aður félags­ins, EBITA, jákvæður en hann nam rúmum 42 millj­ónum króna í ár en nam tæpum 57 millj­ónum árið 2017. Auk þess hækk­uðu leigu­tekjur lít­il­lega eða um þrjár millj­ónir og voru rúmar 179 millj­ónir. Þá var eigið fé félags­ins var nei­kvætt um 510 millj­arða króna.

Þórður Sverr­is­son ræddi árs­reikn­ing félags­ins og starf­semi Hörpu í ávarpi sínu á aðal­fundi Hörpu í gær. Hann sagði að rekstur Hörpu hefði gengið eins og áætlun hefði gert ráð fyrir og jafn­framt hefði afkoma sam­stæð­unnar án rekstr­ar­fram­laga batnað milli ára. Ríkið og Reykja­vík­ur­borg hefði fyrir milli­göngu eig­enda­nefndar lagt félag­inu til 400 millj­ónir króna rekstr­ar­fram­lag á liðnu ári og muni einnig leggja 450 millj­ónir króna til rekst­urs­ins í ár. Engu að síður sýndi nið­ur­staða rekstr­ar­reikn­ings 461 milljón króna tap og eigið fé er nei­kvætt um 510 millj­ónir króna.

Hann sagði það hins vegar mat stjórn­ar­innar að eigið fé Hörpu væri van­metið í árs­reikn­ingnum. „Þá er það mat frá­far­andi stjórnar að bók­fært verð eigin fjár sam­stæð­unnar sé veru­lega van­metið og efna­hags­staða Hörpu traust væri reikn­ings­skilum félags­ins breytt til sam­ræmis við fyr­ir­liggj­andi til­lögur um að eign­færa samn­ings­bundið fram­lag frá rík­inu og Reykja­vík­ur­borg vegna afborg­unar og vaxta af fjár­mögnun fast­eignar. Með þeim hætti næmi eigið fé Hörpu ohf. 12 millj­örðum króna,“ sagði Þórður.

Reikningurinn muni alltaf sýna verulegan rekstrarhalla

Jafn­framt sagði Þórður að það sem valdi þessum árlega tap­rekstri Hörpu og nei­kvæðu eig­infé væri sú ákvörðun eig­anda að nán­ast öll fjár­fest­ing í Hörpu er fjár­mögnuð með skulda­bréfa­láni til 35 ára og sú skuld er vistuð í dótt­ur­fé­lagi Hörpu og því hluti af sam­stæðu­reikn­ingi Hörpu. Hann sagði að þar með bók­ist allur fjár­magns­kostn­aður og verð­breyt­inga­færslur og afskriftir inn í rekstr­ar­reikn­ing­inn. Reikn­ing­ur­inn muni því alltaf sýna veru­legan rekstr­ar­halla, þrátt fyrir jákvætt greiðslu­streymi og EBIDTA.

„Það er morg­un­ljóst að þetta rekstr­ar­módel Hörpu hefur aldrei verið og getur aldrei orðið sjálf­bært. Því verður að breyta til að ná að skapa Hörpu ohf, sem hluta­fé­lagi eðli­legan rekstr­ar­grund­völl til fram­tíðar þannig að það nái að starfa sem sjálf­bært fyr­ir­tæki og geti gegnt sínu mik­il­væga hlut­verki,“ sagði Þórður.

Því hefði stjórn og eig­enda­nefnd unnið að því að finna trygg­ari rekstr­ar­grund­völl og að nú lægi fyrir að þessir aðilar kom­ist á næstu mán­uðum að nið­ur­stöðu um hvernig tryggja megi til fram­tíðar sjálf­bæran efna­hags- og rekstr­ar­grund­völl Hörpu.

Ingibjörg Ösp nýr stjórnarformaður Hörpu

Þórður hefur ákveðið að víkja úr stjórn eftir að hafa verið stjórn­ar­for­maður Hörpu í tvö ár og var Ingi­björg Ösp Stef­áns­dóttir kjörin nýr stjórn­ar­for­maður í hans stað á aðal­fund­inum í gær. Auk Ingi­bjargar Aspar kemur Guðni Tómasson nýr inn í stjórn­ina í stað Vil­hjálms Egils­sonar. Auk þeirra eru í stjórn­inni Aðal­heiður Magn­ús­dóttir, Arna Schram og Árni Geir Pálsson.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár