Þingmaður tekur við fótboltaliði

Willum Þór Þórsson, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, hefur verið ráð­inn þjálf­ari KR. Hann stýrði lið­inu áður árin 2002 til 2004 og varð KR þá Íslands­meist­ari tvö ár í röð.

Willum Þór hefur setið á þingi fyrir Framsóknarflokkinn í þrjú ár.
Willum Þór hefur setið á þingi fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn í þrjú ár. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Willum Þór Þórsson, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, hefur verið ráð­inn nýr þjálf­ari KR í Pepsi-deild karla í fót­bolta. Hann hefur tekið við lið­inu af Bjarna Guð­jóns­syni sem var rek­inn í gær. Willum var þjálf­ari KR árin 2002 til 2004 og þá varð liðið Íslands­meist­ari tvö ár í röð.

Willum hefur setið á þingi í þrjú ár fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann á sæti í efna­hags- og við­skipta­nefnd, stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd, þing­manna­nefnd Íslands og Evrópu­sam­bands­ins og Íslands­deild þing­manna­nefnda EFTA og EES.

Á Vísi segir að Arnar Gunn­laugs­son verði aðstoð­ar­maður Willums en fyrsti leikur KR-liðs­ins undir þeirra stjórn verður Evr­ópu­leikur á móti norður-írska lið­inu Glenavon á KR-vell­inum á fimmtu­dag­inn. Fyrsti deild­ar­leik­ur­inn verður aftur á móti á móti Víkingur Ólafsvík sunnu­dag­inn 10. júlí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár