Endurkoma hinnar hefðbundu húsmóður

Þær eru sagðar birtingar­mynd hinnar fullkomnu konu og milljónir fylgja þeim á samfélags­miðlum, þar sem þær koma fram í kjólum á meðan þær elda mat frá grunni, sinna börnum og heimilis­haldi. Undir niðri liggja þó önnur og skaðlegri skilaboð.

Margir geta eflaust tengt við það hversu auðvelt getur verið að sogast inn í heim áhrifa­valda á samfélags­miðlum – fólks sem sýnir okkur frá daglegu lífi sínu, matnum sem það eldar og annað áhugavert. Á undan­förnum árum hefur nokkuð sérkennileg tísku­bylgja tröllriðið þessum miðlum þar sem ungar og fallegar konur sýna frá lífsstíl sem tilheyrir fortíðinni. Þær eru gjarnan kallaðar „tradwives“ sem er stytting á enska hugtakinu „traditional housewives“ og mætti þýða sem „hefð­bundnar húsfrúr“ upp á íslensku. Hefð­bundna húsfrúin helgar sig gamaldags kynhlutverki þar sem ábyrgð hennar snýr að langmestu leyti að góðu heimilis­haldi.

Hin fullkomna kona 

Það sem hefð­bundnar húsmæður eiga sameiginlegt er að líta til fortíðar og má segja að þær séu birtingar­mynd hinnar „fullkomnu konu“ eins og þær birtust í neyslu­samfélagi um miðja síðustu öld. Það er svo sem ekkert nýtt af nálinni að fólk fyllist fortíðarþrá. En eitthvað í nútíma­samfélagi virðist vera þess …

Kjósa
79
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana skrifaði
    Mér finst þetta leiđindar blađur, međ allri virđingu fyrir jafnrètti og upplýstum ákvörđunum.
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár