Makrílkvótinn aldrei stærri

Sigurður Ingi Jóhanns­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra ákvað í dag kvóta fyrir helstu nytja­teg­undir í íslenskri lög­sögu fyrir næsta fisk­veiðiár (2015/2016). Ráðherra fór í öllum aðal­at­riðum eftir ráð­gjöf Hafró sem sett var fram á dög­unum. Ráð­herrar síð­ustu ára hafa farið að ráð­gjöf Hafró þegar kvóti helstu teg­unda er ákveð­inn. Margir mik­il­vægir nytja­stofnar eru í góðu ástandi, þar ber hæst þorsk­stofn­inn. Gott ástand helstu teg­unda telj­ast gleði­tíð­indi fyrir sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækin út um land sem halda áfram að styrkj­ast eftir gott árferði í grein­inni und­an­gengin ár.

Þorsk­stofn­inn á upp­leið
Þorsk­kvót­inn verður 239 þús. tonn á næsta fisk­veiði­ári og eykst um 10% frá núver­andi fisk­veiði­ári. Ýsu­kvót­inn verður auk­inn um 6 þús. tonn og munar tals­vert um það. Fram kemur í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins að alls gæti verð­mæta­aukn­ing vegna kvóta­aukn­ingar kom­andi árs numið 7-8 millj­örðum króna, hald­ist afurða­verð svipað því sem af er ári.

Kvóti hlýsjáv­ar­teg­unda dregst saman
Eins og vitað var er enn óvissa um nokkrar mik­il­vægar upp­sjáv­ar­fisk­teg­undir líkt og norsk-íslenska síld og loðnu en kvóti verður ákveð­inn síðar fyrir þær teg­undir. Hið eina nei­kvæða í kvóta­á­kvörðun ráð­herra og nýlegri ástands­skýrslu Hafró eru versn­andi horfur í keilu, löngu, blá­löngu,skötu­sel, lang­lúru, humri og fleiri teg­undum sem að mestu halda sig í hlýjum sjó við suður- og vest­ur­strönd­ina.

Risa mak­rílút­hlutun
Athygli vekur að mak­ríl­kvóti íslenskra skipa verður 173 þús. tonn sem er aukn­ing frá metár­inu í fyrra. Hlut­falls­leg skipt­ing mak­ríl­kvót­ans á milli flokka (upp­sjávar-, frysti- ísfisk­skip og smá­bátar) er með sama hætti og árið 2014. Kvótinn í ár er sá stærsti frá upp­hafi veiða í íslensku lög­sög­unni. Í fyrra nam útflutn­ings­verð­mæti mak­ríls 24 millj­örðum króna. Í ljósi þess hve kvót­inn er mik­ill í ár má búast við því að útflutn­ings­verð­mætið verði áfram hátt. Þó er óvissa um afurða­verð á mak­ríl­af­urðum vegna ástands­ins í Rúss­landi. Helsta óvissan um mak­ríl­veið­ina í ár er þó hvort breyt­ingar verði á göngu­mynstri mak­ríls í íslenska lög­sögu. Það skýrist á næstu vikum. Vegna þess að sjór­inn í lög­sög­unni er óvenju­lega kaldur er óvissan um mak­ríl­gengd í ár meiri en á síð­ustu árum. Mak­ríl­veiði íslenskra skipa hefur haf­ist í lok júní á síð­ustu árum. Mesta veiðin hefur farið fram í júlí og ágúst ár hvert.

makrilv
mak­rilv
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár