Hagar á tímamótum - stefnubreyting í arðgreiðslum

Smá­söluris­inn Hagar, sem rekur meðal ann­ars versl­anir undir merkjum Bónuss og Hagkaup, hefur átt góðu gengi að fagna síðan fyr­ir­tækið var skráð á markað í lok árs 2011. Skrán­ingin mark­aði upp­hafið á end­ur­reisn hluta­bréfa­mark­að­ar­ins eftir hrunið, en hann hrundi nær alveg til grunna með falli bank­anna haustið 2008. Frá skrán­ingu fyr­ir­tæk­is­ins á markað hefur fyr­ir­tækið greitt hlut­höfum, að stórum hluta íslenskum líf­eyr­is­sjóðum, 2,4 millj­arða króna í arð.

Mikil ávöxtun hlutafjár


Óhætt er að segja að fjár­festar hafi fengið góða ávöxtun á féð sem fór í hluta­bréf í Högum við upp­hafi skrán­ingar, en skrán­ing­ar­gengi félags­ins var 13,5 en gengi bréfa félags­ins í lok dags á föstu­dag, ríf­lega þremur árum eftir skrán­ing­una er 42,3. Fyr­ir­tækið hefur lítið breyst á þessum tíma en Finnur Árnason for­stjóri hefur sagt, að meg­in­mark­miðið hjá fyr­ir­tæk­inu sé að við­halda góðri afkomu af kjarna­starf­semi. Fá fyr­ir­tæki á Ísland, ef þá nokkur, eru í jafn miklum við­skiptum við almenn­ing og Hagar þegar kemur að nauð­synja­vörum ýmis konar, og gefur rekstur þess ákveðna mynd af því hvernig neysla Íslend­inga er að þró­ast.

Í frétta­til­kynn­ingu frá félag­inu, sam­hliða upp­gjöri fyrir þriðja árs­fjórð­ung rekstr­ar­árs­ins 2014 til 2015, má greina stefnu­breyt­ingu einkum þegar kemur að arð­greiðslu­stefnu. Greining Arion banka fer í gegnum þessar upp­lýs­ingar í nýrri grein­ingu til við­skipta­vina sinna, í til­efni af fyrr­nefndu upp­gjöri, sem Kjarninn hefur undir höndum. Fyr­ir­tækið er upp við vegg þegar kemur að vaxt­ar­mögu­leikum á mark­aði, svo að segja, þar sem vaxta­mögu­leikar eru tak­mark­aðir. Erfitt að sjá að hvernig fyr­ir­tækið á að geta vaxið meira, og raunar frekar spurn­ing hvernig fyr­ir­tæk­inu á eftir að takast að halda mark­aðs­hlut­deild í vax­andi sam­keppni, ekki síst ef alþjóð­legi versl­un­ar­ris­inn Costco opnar verslun hér á landi síðar á árinu, eins og fram hefur komið stefnt sé að. Þá er sam­keppni við erlenda verslun sífellt að harðna, ekki síst með auk­inni vef­verslun lands­manna.


Tekjur aukast lítið eitt


Tekjur félags­ins á síð­asta árs­fjórð­ungi námu 18,4 millj­örðum króna, en á sama tíma­bili ári fyrr námu þær tæp­lega átján millj­örðum. Það er meiri vöxtur en spár höfðu gert ráð fyrir, en nemur þó ekki nema 0,6 pró­sentum að teknu til­liti til verð­bólgu á tíma­bil­inu. Heild­ar­tekjur Haga á rekstr­ar­ár­inu 2014 til 2015 eru áætl­aðar 77,3 millj­arðar króna, sam­kvæmt spá Arion banka, en þær námu 76,1 millj­arði á síð­asta rekstr­ar­ári. Rekstur Haga hefur verið stöð­ugur eftir að félagið var skráð á markað, og skil­aði tæp­lega fjög­urra millj­arða króna hagn­aði á síð­asta heila rekstr­ar­ári, en spá gerir ráð fyrir lítið eitt meiri hagn­aði á yfir­stand­andi ári, eða ríf­lega fjög­urra millj­arða króna hagn­aði.

Stefnubreyting í arðgreiðslum


Í grein­ingu Arion banka á stöðu Haga kemur fram að stjórn félags­ins muni fyrir næsta aðal­fund kynna breyttar áherslur til að koma fjár­magni til hlut­hafa í ljósi þess að núver­andi skulda­staða félags­ins (NIBD/T12M EBITDA er 0,25) gefi til­efni til áherslu­breyt­inga.

bonuss
bon­uss

„Upp­haf­leg arð­greiðslu­stefnu mun þó áfram vera óbreytt og mun taka til sömu fjög­urra meg­in­þátta. Áherslan hefur einna helst verið á nið­ur­greiðslu skulda ásamt fast­eigna­kaupum að ein­hverju leyti, því má velta fyrir sér að með áherslu­breyt­ing­unni verði í auknum mæli horft til hinna tveggja þátta arð­greiðslu­stefnu félags­ins, þ.e. arð­greiðslna og eða kaupa á eigin bréfum,“ segir í grein­ingu Arion banka.

Þrír stærstu hlut­hafar Haga eru Gildi líf­eyr­is­sjóður, með tæp­lega 11 pró­sent hlut, Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins með 8,75 pró­sent hlut og Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna með 8,18 pró­sent hlut. Líf­eyr­is­sjóðir lands­manna eiga sam­an­lagt meira en helm­ing alls hluta­fjár í smá­söluris­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár