Ferðaþjónustufyrirtæki og samtök atvinnurekenda axli þegar í stað ábyrgð á brotum gegn erlendu starfsfólki

ASÍ kallar eftir því að lof­orð Lífs­kjara­samn­ing­anna um laga­legar heim­ildir til refs­inga vegna brota á kjara­samn­ingum verði upp­fyllt, enda sé ólíð­andi að slík brot, sem séu hreinn og klár þjófn­aður, við­gang­ist refsi­laust.

Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Drífa Snædal, for­seti ASÍ. Mynd: Bára Huld Beck

ASÍ skorar á ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki og sam­tök atvinnu­rek­enda að axla þegar í stað ábyrgð á brotum gegn erlendu starfs­fólki og fyr­ir­byggja slík brot til fram­tíðar, þar á meðal með því að tryggja fræðslu til rekstr­ar­að­ila. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá ASÍ í dag. 

Algeng­ustu brot sem erlent starfs­fólk í ferða­þjón­ustu verður fyrir eru vegna van­greiddra launa og brota á reglum um hvíld­ar­tíma og frí­daga, að því er fram í nýrri skýrslu Rann­sókn­ar­mið­stöðvar ferða­mála undir yfir­skrift­inni Aðstæður erlends starfs­fólks í ferða­þjón­ustu: Sjón­ar­horn stétt­ar­fé­laga og starfs­fólks.

Í til­kynn­ing­unni segir að nið­ur­stöður skýrsl­unnar séu í fullu sam­ræmi við fyrri skýrslur um sama efni og við reynslu stétt­ar­fé­laga og Vinnu­staða­eft­ir­lits ASÍ.

[links]„Eins og fram kemur í skýrsl­unni fjölg­aði erlendu starfs­fólki í ferða­þjón­ustu mikið í tengslum við hraðan vöxt ferða­þjón­ust­unnar. Dæmi eru um að fólk vinni full störf og jafn­vel meira fyrir lítil eða engin laun og að sjálf­boða­liða­störf séu notuð sem yfir­varp. Nokkuð algengt er að atvinnu­rek­endur útvegi starfs­fólki hús­næði. Leigu­upp­hæð er gjarnan yfir mark­aðs­verði á við­kom­andi svæði en hvorki stétt­ar­fé­lög né aðrir eft­ir­lits­að­ilar hafa heim­ildir til að fylgja því eftir að hús­næði sé við­un­andi.

Ráðn­ing­ar­sam­bandið er oft ótryggt og mik­ill mis­brestur á gerð ráðn­ing­ar­samn­inga og útgáfu launa­seðla. Þá eru fjöl­mörg dæmi um að fólk þori ekki að hafa sam­band við stétt­ar­fé­lög af ótta við brott­rekstur eða vegna slæmrar reynslu af stétt­ar­fé­lögum í heima­landi,“ segir í til­kynn­ing­unni.

ASÍ kallar eftir því að lof­orð Lífs­kjara­samn­ing­anna um laga­legar heim­ildir til refs­inga vegna brota á kjara­samn­ingum verði upp­fyllt, enda sé ólíð­andi að slík brot, sem séu hreinn og klár þjófn­aður, við­gang­ist refsi­laust. Þá þurfi að tryggja heim­ildir Vinnu­staða­eft­ir­lits stétt­ar­fé­lag­anna og opin­berra eft­ir­lits­að­ila, þ. á m. slökkvi­liðs og heil­brigð­is­eft­ir­lits, til að hafa eft­ir­lit með hús­næði sem atvinnu­rek­endur útvega starfs­fólki.

Réttur erlends launafólks í ferðaþjónustu víða fyrir borð borinn

María Lóa Frið­jóns­dóttir, verk­efna­stjóri Vinnu­staða­eft­ir­lits ASÍ, segir í til­kynn­ing­unni að verka­lýðs­hreyf­ingin hafi ítrekað verið sökuð um að ljúga og fara offari þegar greint er frá aðbún­aði og kjörum erlends starfs­fólks.

„Skýrsla Rann­sókn­ar­mið­stöðvar ferða­mála er mik­il­vægt inn­legg því hún sýnir svart á hvítu það sem fyrri úttektir og reynsla stétt­ar­fé­lag­anna hafa bent til, það er að réttur erlends launa­fólks í ferða­þjón­ustu er víða fyrir borð bor­inn. Þetta er full­kom­lega í sam­ræmi við þann veru­leika sem við í Vinnu­staða­eft­ir­liti ASÍ höfum orðið vitni að og kallað eftir aðgerðum gegn.

Fyrr á þessu ári gerðu ASÍ og ISAVIA samn­ing sín í milli um miðlun upp­lýs­inga til erlends launa­fólks um íslenskan vinnu­markað, kjara­samn­inga, rétt­indi og skyldur. Stétt­ar­fé­lög reyna einnig að ná sam­bandi við erlent launa­fólk til að tryggja rétt­indi þess og eft­ir­lits­full­trúar ASÍ og aðild­ar­fé­lag­anna dreifa bæk­lingum og upp­lýs­ingum um stétt­ar­fé­lögin í öllum vinnu­staða­heim­sóknum sínum. Við bíðum hins vegar enn eftir heim­ildum til að hafa eft­ir­lit með íbúð­ar­hús­næði og eftir því að refsi­heim­ildir vegna launa­þjófn­aðar verði settar í lög. Tími aðgerða hlýtur að vera runn­inn upp,“ segir hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár