Ragnheiður Elín: Hallærislegur borgarstjóri í pólitískum popúlisma

Ragnheiður Elín Árnadóttir, ráðherra ferðamála.
Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, ráð­herra ferða­mála. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, segir það „bein­línis hall­æris­legt af borg­ar­stjóra í póli­tískum popúl­isma að reyna að stilla okkur upp sem and­stæð­ingum“ í umræð­unni um hvernig tekjur af komu ferða­manna til Íslands renna til sveit­ar­fé­laga. Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík, hlekkj­aði í frétt af við­tal við Ragn­heiði Elínu á Facebook-síðu sinni í morgun þar sem hann gagn­rýndi „aðgerða- og áhuga­leysi“ ráð­herra ferða­mála í þessum efnum.

Ragn­heiður Elín svar­aði Degi á sama vett­vangi — Facebook-síðu sinni — og seg­ist eiga til með að svara „mjög önugum og ómál­efna­legum borg­ar­stjóra“ sem henni „skilst hafa verið að hnýta í [sig] á facebook síðu sinni fyrr í morgun“.

Dagur krækti í frétt af við­tali við Ragn­heiði Elínu Árna­dótt­ur, iðn­að­ar- og við­skipta­ráð­herra, í þætt­inum Þjóð­braut á Hring­braut þar sem hún seg­ist ekki vilja fara frek­ari tekju­leiðir stjórn­valda til að styðja við ferða­þjón­ust­una. Kjarninn fjall­aði um málið í hádeg­inu.

Ragn­heiður Elín sagði í við­tal­inu að í sam­heng­inu væri millj­arður „baun­ir“ við þær tekjur sem fást af ferða­fólki. Dagur spyr í færslu sinni hvort þarna sé komin ástæðan fyrir „al­geru aðgerða- og áhuga­leysi ráð­herra við að koma til móts við þá eðli­legu kröfu að gistin­átta­gjald renni til sveit­ar­fé­laga“.

Ragn­heiður Elín segir í svari sínu að það væri vitað að hún og borg­ar­stjór­inn væru ósam­mála um að gistin­átta­gjaldið væri sá gjald­stofn sem færa ætti yfir til sveit­ar­fé­lag­anna til þess að tryggja þeim hlut­deild í tekjum af ferða­mönnum. „Það er vegna þess í fyrsta lagi að það myndi skila sér með mjög ójöfnum hætti til sveit­ar­fé­lag­anna um landið og hvergi í sam­hengi við þann kostnað sem sveit­ar­fé­lögin - sér­stak­lega þau fámenn­ustu úti á landi - hafa af þjón­ustu og inn­viða­upp­bygg­ingu vegna ferða­þjón­ust­unnar,“ skrifar Ragn­heiður Elín. „Í öðru lagi gefur gistin­átta­gjaldið ekk­ert sér­stak­lega vel af sér, ef svo mætti til orða kom­ast, sér­stak­lega þegar haft er í huga hversu mikið ómak er af inn­heimtu þess, fjölda inn­heimtu­að­ila, margar und­an­þágur og litlar heimtur. Þetta ræddi ég allt í við­tal­inu sem Dagur vísar til.“

Hún segir þau hins vegar sam­mála um að finna þurfi leiðir til að auka hlut­deild sveit­ar­fé­lag­anna í tekjum af ferða­þjón­ust­unn og bendir á að þetta sé hluti af stefnu­mörkun rík­iss­ins. Það sé eitt af mark­miðum Vegvísis í ferða­þjón­ustu og að vinna við þetta sé hafin á vett­vangi stjórn­stöðvar ferða­mála. „Þar er að auki verið að skoða hvaða tekjur sveit­ar­fé­lögin hafa nú þegar af ferða­þjón­ust­unni,“ skrifar hún og heldur áfram:

„Við fyrstu sýn virð­ist manni þó að stærsta sveit­ar­fé­lagið í land­inu ætti að vera í lang­bestu stöð­unni - fast­eigna­gjöld af hót­elum sem rísa víða um borg­ina, útsvar af launum alls þess fjölda starfa sem orðið hafa til í ferða­þjón­ust­unni o.s.frv. - allt hlýtur þetta að telja og vera að minnsta kosti eitt­hvað upp í kostn­að­inn við þau "brýnu" verk­efni sem borgin er að ráð­ast í um þessar mundir, eins og þreng­ingu Grens­ás­vegar.“

Mikið hefur verið rætt um aðkomu rík­is­ins að upp­bygg­inu inn­viða í ferða­þjón­ustu, hvort sem það teng­ist sal­ernum eða annarri aðstöðu fyrir ferða­menn á vin­sælum ferða­manna­stöð­um. Ragn­heiður Elín segir virð­is­auka­skatts­kerfið duga til að tryggja rík­is­sjóði tekjur af ferða­þjón­ustu. Tekjur af gistin­átta­gjaldi eru 250 millj­ónir króna á ári og renna þær beint í rík­is­sjóð en ekki til sveit­ar­fé­laga. Ef hund­rað króna gistin­átta­gjald yrði fjór­faldað yrðu tekj­urnar millj­arð­ur. „Millj­arður er líka baunir í sam­hengi við allar þær tekjur sem fást af ferða­fólki,“ er haft eftir Ragn­heiði Elínu í frétt Hring­braut­ar.

„Ráð­herra gerir illt verra og hælist um og segir að allar kistur séu fullar af gulli hjá rík­inu. Það er í það minnsta ljóst að Ragn­heiður Elín ætlar að klára ráð­herra­tíð sína án þess að gera neitt í þessu,“ skrifar Dag­ur í færslu sinni í morgun. „Afrakstur heils kjör­tíma­bils: Inn­við­ina vantar víða, aðgerð­ar­leysið er algert og stuðn­ingur við sveit­ar­fé­lög í þessum mik­il­vægu verk­efnum eng­inn.“

Ragn­heiður Elín leggur til að Dagur hlusti á við­talið sem hann vísar til og hvetur hann til að vinna með rík­inu þar sem unnið sé „þvert á stjórn­sýsl­una, með sveit­ar­fé­lögum og grein­inni sjálfri“.

Borg­ar­ráð hefur skorað á Stjórn­stöð ferða­mála að beita sér fyrir að hludeild af tekjum af virð­is­auka­skatti, gistin­átta­gjaldi og öðrum sköttum af ferða­fólki renni til sveit­ar­fé­laga. „Aug­ljóst er að sveit­ar­fé­lög um allt land verða fyrir marg­vís­legum auknum kostn­aði vegna umhirðu og aðstöðu­sköp­un­ar, upp­bygg­ingar inn­viða og slits á veg­um,“ segir í álykt­un­inni sem afgreidd var úr borg­ar­stjórn 5. apríl síð­ast­lið­inn.

„Mál­flutn­ingur ráð­herra dregur ein­vörð­ungu fram hversu ósann­gjarnt er að sveit­ar­fé­lög beri fyrst og fremst kostnað en njóti í miklu minna mæli ábata af auk­inni ferða­þjón­ustu en rík­ið,“ segir einnig í álykt­un­inni. Reykja­vík er fjöl­sótt­asti ferða­manna­staður lands­ins. Sveit­ar­fé­lög hafa eins og er aðeins óbeinar tekjur af straumi ferða­manna. Engin hlut­deild af virð­is­auka­skatti, gistin­átta­gjaldi eða öðrum tekju­stofnum sem fengnir eru af ferða­mönnum renna til sveit­ar­fé­laga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár