Sprengisandskapall „umfangsmikil og dýr“ framkvæmd fyrir „fáa kílómetra“ af jarðstreng í Blöndulínu

Landsnet tekur ekki undir þau sjón­ar­mið Samtaka um nátt­úru­vernd á Norð­ur­landi að skyn­sam­legt sé að leggja jarð­streng yfir Sprengisand til að auka mögu­leika á því að leggja hluta Blöndulínu 3 í jörð.

Myndin er fengin úr kerfisáætlun Landsnets 2016-2025. „DC-strengur á Sprengisandsleið hefur jákvæð áhrif á mögulega lengd jarðstrengja á Norðurlandi,“ segir í myndatexta.
Myndin er fengin úr kerf­is­á­ætlun Lands­nets 2016-2025. „DC-strengur á Sprengisands­leið hefur jákvæð áhrif á mögu­lega lengd jarð­strengja á Norð­ur­landi,“ segir í mynda­texta. Mynd: Landsnet

Það væri óráð­legt að hanna Blöndulínu 3 þannig að rekstur hennar stæði og félli með því að jafn­straumsteng­ing yfir Sprengisand væri í rekstri, segir í svari Lands­nets við fyr­ir­spurn Kjarnans um við­brögð við þeim hug­myndum Samtaka um nátt­úru­vernd á Norð­ur­landi (SUNN) að leggja jarð­streng með­fram Sprengisands­leið, tengja með honum virkj­anir á Norður- og og Suð­ur­landi og auka um leið mögu­leika á því að leggja áform­aða Blöndulínu 3 í jörð.

Aðal­val­kostur Lands­nets, sem fram var settur í umhverf­is­mats­skýrslu nýverið, er að Blöndulína 3 verði í lofti alla leið­ina frá Blöndu­stöð til Akur­eyrar. Þetta hafa m.a. sveit­ar­fé­lög á svæð­inu gagn­rýnt enda öll sagt að þau vilji að minnsta kosti hluta lín­unnar í jörð. En því verður ekki að heilsa því sam­kvæmt rann­sóknum Lands­nets verður aðeins ger­legt að leggja um 4-7 kíló­metra af hinni rúm­lega 100 kíló­metra löngu Blöndulínu í jörð.

[adspot]

SUNN sagði í umsögn sinni við umhverf­is­mats­skýrsl­una að með því að leggja streng með­fram Sprengisands­leið yrði slegið á þennan hnút og þar með það ósætti sem ríkt hefur árum saman um fram­kvæmd­ina. Bentu þau einnig á, máli sinu til stuðn­ings, að Landsnet hafi talað fyrir hálend­is­leið í sínum kerf­is­á­ætl­unum í mörg ár. Í þeim hafi m.a. komið fram að strengur á Sprengisands­leið hefði „jákvæð áhrif á mögu­lega lengd jarð­strengja á Norð­ur­landi“.

Nið­ur­staða athug­unar SUNN er sú að það sé raun­hæfur kostur að leggja jarð­streng yfir hálendið, bæði út frá tækni­legum for­sendum Lands­nets, raf­orku­lögum og lögum um umhverf­is­mat og að við Blöndulínu 3 beri að taka áhrif þessa val­kosts inn í mynd­ina. „Fráleitt“ sé að umhverf­is­mati geti lokið án þess að jarð­strengur yfir Sprengisand sé athug­aður. Að halda hálend­is­leið­inni utan umhverf­is­mats Blöndulínu 3 sé „mjög gagn­rýn­is­vert“ og ekk­ert í umhverf­is­mats­skýrsl­unni rök­styðji rétt­mæti þess, segir SUNN í umsögn sinni.

[links]Samtökin segja „fjöl­breyttar tölur um hámarks­lengd jarð­strengs í Blöndulínu 3 hafa í gegnum tíð­ina komið frá Landsnet. SUNN segir að ganga eigi út frá þeirri for­sendu að í Blöndulínu 3 sé hámarks­lengd jarð­strengja og til þess að ná því mark­miði, verði að líta til bæði tækni­kosta og for­gangs­röð­unar fram­kvæmda.

Það er enda tækni­legum tak­mörk­unum háð hversu langir kaflar flutn­ings­kerfis raf­orku geta verið í jörðu og jarð­strengs­lögn á einni línu getur haft áhrif á mögu­leika til slíks í annarri. Auðvitað hefur orðið fram­þróun í þessu líkt og öðru á síð­ari árum en engu að síður þarf að velja þá kafla vel sem teknir eru úr lofti og grafnir í jörð. Ágrein­ing­ur­inn í dag, sem m.a. birt­ist ágæt­lega í umsögn SUNN ann­ars vegar og hjá Lands­neti hins vegar, snýst fyrst og fremst um hversu langir þessir kaflar geta verið miðað við nútíma­tækni og útfærslu alls kerf­is­ins.

Í svari Lands­nets er farið yfir nokkur tækni­leg atriði sem fyr­ir­tækið telur skipta máli í þessu sam­hengi. Þegar rætt sé um jarð­streng yfir Sprengisand sé átt við svo­kall­aðan jafn­straums­streng (HVDC). Þar sem hálend­is­leiðin er löng, um 200 kíó­metrar sé hefð­bund­inn rið­straums­strengur úti­lok­aður. Jafn­straumsteng­ing sam­anstendur af svoköll­uðum umbreyti­stöðvum á sitt­hvorum enda teng­ing­ar­innar, segir Landsnet, sem hafi það hlut­verk að breyta rið­straum í jafn­straum á öðrum end­anum og öfugt á hinum end­anum. Þessi enda­bún­aður hafi ýmsa eig­in­leika sem bætt geti rekstur kerf­is­ins, m.a. með til­liti til spennu­stýr­ingar. „Það, eitt og sér, gefur færi á að leggja eitt­hvað lengri jarð­strengskafla í nær­liggj­andi rið­straumslínum,“ stendur í svari Lands­nets.

Hins vegar yrðu þær rið­straumslínur háðar því að enda­bún­að­ur­inn væri í rekstri, þ.e. ekki óvirkur vegna bil­ana eða við­halds. En við­halds­þörfin á bún­aði í umbreyti­stöðv­unum krefj­ist þess að þær séu teknar úr rekstri árlega, jafn­vel í nokkrar vikur senn. „Það ylli þá því að mögu­lega þyrfti að taka fyrr­nefndar rið­straumslínur einnig úr rekstri ef jarð­strengs­lengdir í þeim væru skil­greindar út frá jafn­straumsteng­ingu yfir hálendið. Það væri því óráð­legt að hanna t.d. Blöndulínu 3 þannig að rekstur hennar stæði og félli með því að jafn­straumsteng­ingin yfir Sprengisand væri í rekstri.“

Það sé mik­il­vægt að Blöndulína 3 sem og aðrar línur í meg­in­flutn­ings­kerf­inu séu „þannig úr garði gerðar að rekstur þeirra standi á eigin fótum, þ.e. sé ekki háður ein­hverjum öðrum bún­aði“.

Landsnet bendir enn­fremur á að enda­bún­að­ur­inn, þ.e. umbreyti­stöðv­arnar, sé „afar flók­inn og dýr“ sem geri jafn­straumsteng­ingu yfir Sprengisand hlut­falls­lega kostn­að­ar­sama miðað við hefð­bundnar rið­straumsteng­ingar. „Það væri miklu til kostað að ráð­ast í svo umfangs­mikla og dýra fram­kvæmd til þess að auka streng­mögu­leika í Blöndulínu 3 um fáa kíló­metra“ sem að auki væru svo ekki endi­lega í hendi.

„Ekki hefur verið tekin ákvörðun um að leggja flutn­ings­línu yfir Sprengisand og allt eins lík­legt að ný kyn­slóð byggða­línu verði kláruð með því að spennu­hækka núver­andi byggða­línu sunnan Vatna­jök­uls í 220 kV við end­ur­nýjun hennar sem vænt­an­lega verður fram­kvæmd á næsta ára­tug, en sá hluti byggða­lín­unnar verður 50 ára árið 2034,“ segir í svari Lands­nets.

Umhverf­is­mats­skýrsla Lands­nets á Blöndulínu 3 má lesa hér.

Umsögn SUNN í heild sinni má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

blöndulína3

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár