Bítast um stuttan jarðstrengsspotta Blöndulínu 3

Sveit­ar­fé­lög á Norð­ur­landi vilja Blöndulínu 3 í jörð um lönd sín en þeir eru hins vegar örfáir, kíló­metr­arnir sem Landsnet telur jarð­streng mögu­legan á hinni 100 km löngu línu. Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök segja streng yfir Sprengisand höggva á hnút­inn.

Aðalvalkostur Landsnets er sá að Blöndulína 3 liggi um fimm sveitarfélög og í lofti alla leiðina.
Aðal­val­kostur Lands­nets er sá að Blöndulína 3 liggi um fimm sveit­ar­fé­lög og í lofti alla leið­ina. Mynd: Landsnet

„Sé það nið­ur­staða Lands­nets að [...] jarð­streng­ur­inn sé ekki í boði í dag er ljóst af hálfu sveit­ar­fé­lags­ins að for­sendur fyrir umræddri línu­leið eru vart til staðar.“

Sveit­ar­stjórn Sveit­ar­fé­lags­ins Skaga­fjarðar.

„Það er ein­dreg­inn vilji bæj­ar­stjórnar Akur­eyr­ar­bæjar og stefna að Blöndulína 3 verði lögð í jarð­streng frá tengi­virki við Rang­ár­velli og út að sveit­ar­fé­laga­mörkum við Hörg­ár­sveit, eða eins langt og mögu­legt er.“

Bæj­ar­stjórn Akur­eyr­ar­bæjar.

„Hörg­ár­sveit bendir á að í aðal­skipu­lagi sveit­ar­fé­lags­ins er gert ráð fyrir að flutn­ings­línur raf­orku verði í jörðu. Aðal­val­kostur sem kynntur er í mat­skýrslu Blöndulínu 3 gerir ráð fyrir að línan verði alfarið útfærð sem loft­lína innan marka sveit­ar­fé­lags­ins.“

Sveit­ar­stjórn Hörg­ársveitar.

Þrjú af þeim fimm sveit­ar­fé­lögum á Norð­ur­landi sem Landsnet áformar að Blöndulína 3 fari um vilja að hún verði lögð í jörðu en ekki í lofti um land innan sinna marka. Það er hins vegar ekki langur jarð­strengur til skipt­anna sam­kvæmt þeirri nið­ur­stöðu sem Landsnet setur fram í nýrri umhverf­is­mats­skýrslu sinni á fram­kvæmd­inni. Fyr­ir­tækið telur aðeins ger­legt að leggja 4-7 kíló­metra af hinni 100 kíló­metra löngu línu í jörð. Og reyndar er aðal­val­kostur þess loft­lína alla leið­ina frá Blöndu­stöð og til Rang­ár­valla á Akureyri.

[adspot]

Sveit­ar­fé­lagið Skaga­fjörður hefur sett fram kröfu um að jarð­strengskafl­inn hjá sér verði 3,7 kíló­metrar og Hörg­ár­sveit bendir á að í aðal­skipu­lagi sé gert ráð fyrir að flutn­ings­línur raf­orku verði í jörðu. Blöndulína 3 myndi sam­kvæmt hug­myndum Lands­nets liggja um 44 kíló­metra leið um sveit­ar­fé­lagið en í umsögn sveit­ar­stjórn­ar­innar við umhverf­is­mats­skýrsl­una er sér­stak­lega til­tek­inn um 5,7 kíló­metra langur jarð­strengskafli við Hraun og Hólahóla sem tek­inn var til mats hjá Lands­neti en er ekki aðal­val­kostur.

Akur­eyr­ar­bær vill að sem mestur hluti leið­ar­innar frá mörkum bæj­ar­ins að Hörg­ár­sveit og að tengi­virk­inu á Rang­ár­völlum verði lagður í jörð. Þetta er að minnsta kosti 2,3 kíló­metra leið.

Sveit­ar­fé­lögin þrjú eru því áfram um að í það minnsta 11,7 kíló­metra kafli Blöndulínu 3 fari í jörð. Ef tekið er til­lit til ítr­ustu krafna Hörg­ársveitar er kafl­inn orð­inn 50 kíló­metrar eða helm­ingur allrar lín­unnar.

[links]Í um tvo ára­tugi hefur verið stefnt að því að tengja Blöndu­stöð, fyrstu virkj­un­ina sem alfarið var hönnuð af Íslend­ingum, með öfl­ugri háspennu­línu til Akur­eyrar og tengja þannig flutn­ings­kerfi raf­orku frá Suð­vest­ur­landi og Norður- og Aust­ur­landi betur. Blöndu­stöð var reist árið 1991 og í dag fer orkan sem þar er unnin með Rang­ár­valla­línu 1, línu sem rekin er á 132 kV spennu og er hluti af svo­kall­aðri byggða­línu, til Rang­ár­valla á Akureyri.

Blöndulína 3 mun ef áætl­anir Lands­nets ganga eftir leysa Rang­ár­valla­línu 1 af hólmi, auka flutn­ings­getu kerf­is­ins, bæta orku­nýt­ingu innan þess með teng­ingu milli virkj­ana og auka afhend­ingar­ör­yggi víðs vegar um landið.

Í nýrri umhverf­is­mats­skýrslu Lands­nets kemur fram að aðal­val­kostur fyr­ir­tæk­is­ins sé að leggja Blöndulínu í lofti alla leið­ina, um heiðar, fjöll og dali, mela, móa og rækt­ar­lönd í fimm sveit­ar­fé­lögum; Húna­vatns­hreppi, Sveit­ar­fé­lag­inu Skaga­firði, Akra­hreppi, Hörg­ár­sveit og Akureyri.

Átján „raun­hæfir val­kostir“ voru metnir, segir Landsnet.

4-7 kílómetrar til skiptanna?

En eftir allt sam­ráðs­ferlið sem Landsnet segir hafa átt sér stað er enn mikil óánægja og kergja í hags­muna­að­ilum, ekki síst meðal land­eig­enda og sveit­ar­stjórna og snýst hún fyrst og fremst um hversu stór hluti hennar – eða lít­ill rétt­ara sagt – verður lagður í jörð.

Það er tak­mörk­unum háð hversu stór hluti kerf­is­ins á ólíkum stöðum á land­inu getur verið í jörðu og sam­kvæmt grein­ingu Lands­nets getur lengd jarð­strengja í Blöndulínu mest verið á bil­inu 4-7 kíló­metrar. Við val á því hvort aðal­val­kostur væri loft­lína alla leið eða loft­lína með jarð­strengskafla horfði Landsnet svo til tveggja þátta: Heildar upp­bygg­ingu flutn­ings­kerf­is­ins til fram­tíðar og umhverf­is­á­hrifa.

Það er hins vegar einmitt meðal ann­ars þetta tvennt sem sveit­ar­fé­lögin og fleiri hafa aðra skoðun en Landsnet á.

„Til þess að stuðla að auk­inni sátt og trausti á fyr­ir­hug­aðar fram­kvæmdir og for­sendur þeirra telur skipu­lags- og bygg­ing­ar­nefnd [Skaga­fjarðar] mjög mik­il­vægt að ráð­ist verði í óháða úttekt á lengd jarð­strengja í Blöndulínu 3 þar sem tekið verði til­lit til nýrra upp­lýs­inga,“ segir í umsögn Sveit­ar­fé­lags­ins Skaga­fjarðar. Bent er á að Landsnet hafi átt frum­kvæði að og margoft komið að vinnu við nýlegar aðal­skipu­lags­breyt­ingar vegna áfor­manna í sveit­ar­fé­lag­inu. „Öll sam­skipti sveit­ar­fé­lags­ins við full­trúa Lands­nets byggðu á því að það væru í boði nokkrir kíló­metrar af jarð­streng á línu­leið­inni.“

Því hafi verið ákveðið að setja fram kröfu um 3,8 kíló­metra jarð­streng sem þótti tækni­lega raun­hæft. Í umsögnum Lands­nets við end­ur­skoðun aðal­skipu­lags, síð­ast í sept­em­ber í fyrra, „kom aldrei fram að því hugn­að­ist ákveð­inn kostur umfram annan,“ segir í umsögn sveit­ar­fé­lags­ins. Skipu­lags­breyt­ingin var stað­fest fyrir skömmu og áfram gert ráð fyrir svo­nefndri Hér­aðs­vatna­leið með a.m.k. 3,8 km jarð­streng. „Sú breyt­ing var unnin með fullri vit­und Lands­nets á öllum stigum máls­ins enda opn­uðu þeir á þann mögu­leika að jarð­strengur væri hugs­an­lega í boði á línu­leið­inni.“

Þessi vinnu­brögð eru gagn­rýnd í umsögn Sveit­ar­fé­lags­ins Skaga­fjarðar og bent á að ráð­ist hafi verið í kostn­að­ar­samar og umdeildar aðal­skipu­lags­breyt­ingar að beiðni Lands­nets en „nokkrum mán­uðum síðar leggur Landsnet fram umhverf­is­mats­skýrslu þar sem kemur fram að sveit­ar­fé­lag­inu ber að breyta aðal­skipu­lagi sínu í sam­ræmi við aðal­val­kost Lands­nets“.

Jarð­strengur sé ein af meg­in­for­sendum fyrir legu Blöndulínu 3, að sögn sveit­ar­fé­lags­ins. „Sé það nið­ur­staða Lands­nets að umræddur jarð­strengur sé ekki í boði í dag er ljóst af hálfu sveit­ar­fé­lags­ins að for­sendur fyrir umræddri línu­leið eru vart til staðar.“

Niðurstaðan í berhögg við augljósar staðreyndir

Hörg­ár­sveit bendir í sinni umsögn í fyrsta lagi á að í aðal­skipu­lagi sveit­ar­fé­lags­ins er gert ráð fyrir að flutn­ings­línur raf­orku verði í jörðu. Því sam­ræm­ist aðal­val­kostur Lands­nets ekki gild­andi skipu­lagi.

Línuleið aðal­val­kostar Lands­nets um sveit­ar­fé­lagið er m.a. um Öxnadal og voru áhrif um 5,7 kíló­metra langs jarð­strengskafla við Hraun og Hólahóla metin í skýrsl­unni. Aðal­val­kost­ur­inn nýtir hins vegar ekki þann kost heldur gerir ráð fyrir loft­línu á umræddu svæði.

Í mat­skýrsl­unni kemur fram að Landsnet telji að þegar „á heild­ar­leiðir val­kosta [sé] litið [séu] jarð­strengskaflar við Stað­ar­bakka og við Hraun ekki að draga úr ein­kennum heild­ar­á­hrifa“ línu­mann­virk­is­ins. Af mats­skýrsl­unni má ráða, segir í umsögn Hörg­ársveitar, að Landsnet telji það ekki hafa hag­felld sjón­ræn áhrif að leggja lín­una í jörð á þessum kafla. „Hörg­ár­sveit hafnar þess­ari nið­ur­stöðu og átelur að nið­ur­staðan sem þarna er sett fram sé ber­sýni­lega ekki í sam­ræmi við grein­ing­ar­gögn sem fram koma í skýrsl­unni.“

Sveit­ar­stjórnin bendir á að Hraun og umhverfi þess sé ein­stakt á lands­vísu sökum nátt­úru­feg­urðar og sögu stað­ar­ins. „Áhrif loft­línu á nærum­hverfi sitt á þessu svæði eru án nokk­urs vafa veru­lega nei­kvæð“ og „útfærsla lín­unnar sem jarð­strengs á þessum kafla myndi aug­ljós­lega draga úr nei­kvæðum áhrifum mann­virk­is­ins á þessu verð­mæta og við­kvæma svæði.“

Nið­ur­staða mats Lands­nets gengur því að mati Hörg­ársveitar „í ber­högg við aug­ljósar stað­reyndir og gögn“ og er því „efn­is­lega röng“. Hörg­ár­sveit telur „óvið­un­andi að val aðal­val­kostar bygg­ist á vill­andi og órök­studdri mats­nið­ur­stöðu að þessu leyti“.

Hörg­ár­sveit gerir líka athuga­semd við valda línu­leið þar sem hún liggur næst bæjum í Öxnadal, á Þelamörk og í Kræk­linga­hlíð. Gert er ráð fyrir að línan sé jafn­vel í aðeins 230 metra fjar­lægð frá bæj­ar­húsum sem skerði umhverf­is­gæði fólks.

[adspot]

Akur­eyr­ar­bær er langstærsta þétt­býli lands­ins utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins en jafn­framt land­lítið sveit­ar­fé­lag. Til að tryggja áfram­hald­andi upp­bygg­ingu bæj­ar­ins til fram­tíðar er mik­il­vægt að ekki sé farið í fram­kvæmdir sem geta tak­markað nýt­ingu á bygg­ing­ar­hæfu landi til lengri tíma, segir í umsögn bæj­ar­stjórn­ar­innar. „Með nýrri 220 kV háspennu­línu alveg að tengi­virki á Rang­ár­völlum í háspennu­möstrum er verið að tak­marka nýt­ingu á landi norðan megin við Rang­ár­velli, vestan megin við Gilja­hverfi, til næstu ára­tuga og jafn­vel lengur.“

Í umsögn­inni segir enn­fremur að þegar sá kostur að setja loft­línu fram yfir jarð­streng var met­inn hafi Landsnet fyrst og fremst litið til fram­kvæmda­kostn­aðar en ekki að línu­stæðið er eina loft­línu­stæðið í þétt­býli. „Akur­eyr­ar­bær telur að í mats­skýrslu sé ekki hugað nægi­lega vel að öðrum kostum, m.t.t. þess að í fram­tíð­inni gæti verið skipu­lagt íbúð­ar­hverfi við línu­stæðið vegna lít­illa land­kosta sveit­ar­fé­lags­ins og að línu­stæðið er innan þétt­býl­is­marka.“

„Sam­an­tekið að þá er það „ein­dreg­inn vilji bæj­ar­stjórnar Akur­eyr­ar­bæjar og stefna að Blöndulína 3 verði lögð í jarð­streng frá tengi­virki við Rang­ár­velli og út að sveit­ar­fé­laga­mörkum við Hörg­ár­sveit“.

Jarðstrengur um Sprengisand lausnin?

Hrepps­nefnd Akra­hrepps gerir ekki athuga­semd við umhverf­is­mats­skýrsl­una og styður fram­lagðan aðal­val­kost, Kiða­skarðs­leið, gegnum Skaga­fjörð. Akra­hreppur mun form­lega sam­ein­ast Sveit­ar­fé­lag­inu Skaga­firði eftir um tvær vikur. Samkvæmt aðal­val­kosti Lands­nets mun Blöndulína 3 þá sam­an­lagt liggja um 37 kíló­metra leið um hið nýja sam­ein­aða sveit­ar­fé­lag.

Fimmta sveit­ar­fé­lagið sem Blöndulína mun liggja um, alls 18 kíló­metra, er Húna­vatns­hreppur sem ákveðið hefur verið að sam­eina Blöndu­ósbæ. Hið nýja sveit­ar­fé­lag verður form­lega að veru­leika 29. maí.

Samtök um nátt­úru­vernd á Norð­ur­landi (SUNN) setja fram þá hug­mynd í sinni umsögn að Landsnet setji í for­gang lagn­ingu jarð­strengs um Sprengisand og tengi þannig virkj­anir sunn­an­lands og norðan stystu leið. Þar með myndi það mark­mið að styrkja flutn­ings­kerfið nást og á sama tíma mætti þyrma frið­lýstum og verð­mætum úti­vist­ar­svæðum á áform­aðri leið Blöndulínu 3 því með þessu myndu mögu­leikar til lagn­ingar hennar í jörð aukast.

Í ítar­legri umsögn SUNN er bent á að Landsnet hafi talað fyrir hálend­is­leið í sínum kerf­is­á­ætl­unum í mörg ár og þar komið fram að strengur á Sprengisands­leið hefði „jákvæð áhrif á mögu­lega lengd jarð­strengja á Norð­ur­landi“.

Frestur til að gera athuga­semd eða senda umsögn við umhverf­is­mats­skýrslu Lands­nets um Blöndulínu 3 rann út í gær, 16. maí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

blöndulína3

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár