Leggja til jarðstreng um Sprengisand

Með jarð­strengi yfir Sprengisand mætti þyrma frið­lýstum og verð­mætum úti­vist­ar­svæðum á leið Blöndulínu 3, tengja virkj­anir sunn­an­lands og norðan stystu leið og styrkja flutn­ings­kerfið, segja Samtök um nátt­úru­vernd á Norð­ur­landi.

Á Sprengisandsleið.
Á Sprengisands­leið. Mynd: Ingibjörg Eiríksdóttir

SUNN, sam­tök um nátt­úru­vernd á Norð­ur­landi gera alvar­legar athuga­semdir við nýja umhverf­is­mats­skýrslu Lands­nets um Blöndulínu 3 og telja að hún upp­fylli í nokkrum grund­vall­ar­at­riðum „alls ekki“ lög.

Krefjast sam­tökin þess að raf­orku­flutn­ingur milli Blöndu og Akur­eyrar til fram­tíðar taki mið af teng­ingu virkj­ana á Suð­ur­landi við Norð­ur­land með 200 kíló­metra jarð­streng með­fram núver­andi og óbreyttum Sprengisands­vegi. Jarð­strengur þar muni ekki skerða víð­erni meira en orðið er og gæti tengst nýju loft­lín­unni úr Eyja­firði, Hóla­sands­línu 3, í Bárð­ar­dal. Meðfram teng­ing­unni mætti svo leggja streng til að tryggja orku­skipti á Sprengisands­leið sjálfri.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í umsögn SUNN til Skipu­lags­stofn­unar á umhverf­is­mats­skýrslu Lands­nets um Blöndulínu 3.

[adspot]

Samtökin benda á að sú lausn að leggja streng með Sprengisands­leið komi að mati Lands­nets sjálfs umhverf­is­lega best út. Sú jarð­lína myndi styrkja flutn­ings­kerfið á Norð­ur­landi og auki mögu­leik­ana á því að lengja jarð­strengskafla fyr­ir­hug­aðrar Blöndulínu. Þannig yrði hægt að setja háspennu­línu um Hraun í Öxnadal til dæmis í jörð í stað þess að við þetta frið­lýsta og verð­mæta úti­vist­ar­svæði yrðu reist þrjá­tíu möstur.

Umdeild framkvæmd í tvo áratugi

Í um tvo ára­tugi hefur verið stefnt að því að tengja Blöndu­stöð, fyrstu virkj­un­ina sem alfarið var hönnuð af Íslend­ingum, með öfl­ugri háspennu­línu til Akur­eyrar og tengja þannig flutn­ings­kerfi raf­orku frá Suð­vest­ur­landi og Norður- og Aust­ur­landi betur. Orkan fer í dag um línu sem reist var fyrir um hálfri öld.

[links]En Blöndulína 3 er afar umdeild. Og hefur verið lengi. Nú er komið að enda­punkti umhverf­is­mats hennar, og það í annað sinn. Því í fyrra skiptið voru margir þættir gagn­rýndir, m.a. af Skipu­lags­stofnun, sem gaf út álit sitt árið 2013, sem og fleiri aðilum. Af hverju átti ekki að leggja stærri hluta Blöndulínu 3 í jörð? Og af hverju voru ekki fleiri val­kostir á línu­leið­inni metnir með til­liti til umhverf­is­á­hrifa?

Eigendur jarða sem línan átti að fara um voru enda margir hverjir ekki par­hrifnir af áætl­un­unum af ýmsum ástæðum og sögðu lítið sem ekk­ert sam­ráð við þá haft. Sumir hafa kallað lín­una „stór­iðju­línu“, segja hana fyrst og fremst koma stór­iðju­fyr­ir­tækj­unum til góða og að tækni­lega séð væri vel hægt að leggja stóran hluta hennar í jörð, öfugt við það sem Landsnet hélt og heldur enn fram.

Landsnet hóf að lokum allt umhverf­is­mats­ferlið á nýjan leik. Með að eigin sögn meira sam­ráði við land­eig­endur, fjölda kynn­inga fyrir íbúa og aðra hags­muna­að­ila, fleiri val­kostum á línu­leið­inni og síð­ast en ekki síst með grein­ingu á mögu­leikum á jarð­strengjum í stað loft­línu á þessum rúm­lega hund­rað kíló­metrum sem eru frá Blöndu­stöð til Akur­eyrar.

Í nýrri umhverf­is­mats­skýrslu Lands­nets, sem er aug­lýst til umsagna til 16. maí, kemur fram að aðal­val­kostur fyr­ir­tæk­is­ins sé að leggja Blöndulínu í loft­línu alla leið­ina, um heiðar, fjöll og dali, mela, móa og rækt­ar­lönd í fimm sveit­ar­fé­lögum; Húna­vatns­hreppi, Sveit­ar­fé­lag­inu Skaga­firði, Akra­hreppi, Hörg­ár­sveit og Akureyri.

Samkvæmt grein­ingu Lands­nets getur lengd jarð­strengja í Blöndulínu mest verið á bil­inu 4-7 kíló­metrar af hinni rúm­lega 100 kíló­metra leið. Að auki er það nið­ur­staða fyr­ir­tæk­is­ins að val­kostir með jarð­strengjum hafi „ívið meiri nei­kvæð umhverf­is­á­hrif en hrein loft­lína“.

Þessari nið­ur­stöðu hafna Samtök um nátt­úru­vernd á Norð­ur­landi algjör­lega, jarð­rask vegna strengja­lagna jafni sig á 1-2 árum, en loft­lína, möstur sem henni fylgja og línu­vegir, blasi við um ókomna tíð. Þau gagn­rýna m.a. Landsnet fyrir að birta ekki nið­ur­stöður um hver tæki­færi til jarð­strengslagna nyrðra yrðu ef strengur yrði lagður um Sprengisand áður en Blöndulína 3 yrði reist. „Það er ámæl­is­vert, enda er ljóst að það myndi auka stórum jarð­strengs­tæki­færin.“

Öflug tenging milli landshluta

Í ítar­legri umsögn SUNN er bent á að Landsnet hafi talað fyrir hálend­is­leið í sínum kerf­is­á­ætl­unum í mörg ár. Í fyrri kerf­is­á­ætl­unum Lands­nets hafi sagt að strengur á Sprengisands­leið hefði „jákvæð áhrif á mögu­lega lengd jarð­strengja á Norð­ur­landi“.

Í núgild­andi kerf­is­á­ætlun segir að styrk­leikar hálend­is­leiðar séu að um er að ræða stystu leið­ina á milli megin orku­öfl­un­ar­svæða lands­ins. Einnig er talið að um lítil óaft­ur­kræf áhrif á umhverfi sé að ræða, að með teng­ing­unni náist fram öflug teng­ing á milli Norður- og Aust­ur­lands við virkj­ana­svæðið við Þjórsá- og Tungnaá, sem aftur auka mun nýt­ing­ar­mögu­leika virkj­ana og vatna­svæða auk þess sem það mun auka afhend­ingar­ör­yggi enn frekar. „Hægt verður að nýta tækni­legar lausnir til að vinna gegn umhverf­is­á­hrifum og ef farin verður sú leið að leggja jafn­straums­streng yfir hálendið mun það auka mögu­leika til stýr­ingar á kerf­inu sem talið er að muni auka nýt­ingu ann­ara orku­mann­virkja.“

Nið­ur­staða athug­unar SUNN er sú að það sé raun­hæfur kostur að leggja jarð­streng yfir hálendið, bæði út frá tækni­legum for­sendum Lands­nets, raf­orku­lögum og lögum um umhverf­is­mat og að við Blöndulínu 3 beri að taka áhrif þessa val­kosts inn í mynd­ina. „Fráleitt sé að umhverf­is­mati geti lokið án þess að þessi val­kostur sé skoð­aður.“ Að halda hálend­is­leið­inni utan umhverf­is­mats Blöndulínu 3 „er mjög gagn­rýni­vert og ekk­ert í umhverf­is­mats­skýrsl­unni sem rök­styður rétt­mæti þess. Þess vegna er umhverf­is­mats­skýrslan ekki í sam­ræmi við lög og mats­á­ætlun,“ segir SUNN í umsögn sinni.

Þyrfti ekki að taka langan tíma

Fólk og hópar sem lagst hafa ein­dregið gegn upp­bygg­ingu Sprengisands­leiðar og raf­línu­möstrum sem hvoru tveggja myndi skerða víð­erni, „gera sér auð­vitað grein fyrir að allt öðru máli gegnir um jarð­streng eins og hér er rætt um og óbreytta Sprengisands­leið,“ segir SUNN. Ekki sé lík­legt að máls­með­ferð­ar­tími slíkrar teng­ingar yrði langur, en byrja þyrfti á mats­skyldu­fyr­ir­spurn til Skipu­lags­stofn­unar, þar sem jarð­strengir eru ekki sjálf­krafa umhverf­is­mats­skyldir. „Ekki verður séð hvernig slíkur jarð­strengur myndi valda tog­streitu því honum fylgir ekki aukið aðgengi að hálend­inu.“

SUNN seg­ist svo geta „full­vissað“ Skipu­lags­stofnun um það, að jafn­straums­strengur með­fram eða undir núver­andi Sprengisands­leið „mun sam­kvæmt nýj­ustu og bestu vís­inda­legum gögnum ekki skerða óbyggð víð­erni frekar en orðið er, en það myndu loft­línur gera“.

„Meint en ekki metin“ áhrif jarðstrengja

Samtökin segj­ast ekki kom­ast hjá því að benda á hve hlið­holl umhverf­is­mats­skýrslan um Blöndulínu 3 er loft­línum en ýki „meint en ekki metin“ umhverf­is­á­hrif jarð­strengja. Umfjöllun Lands­nets um umhverf­is­á­hrif hugs­an­legs 5,7 kíló­metra jarð­strengs fyrir framan fólk­vang­inn að Hrauni í Öxnadal er að mati sam­tak­anna „til hábor­innar skammar“ því þar er full­yrt án rök­stuðn­ings um nei­kvæð áhrif á land­búnað. Rök­stuðn­ing­ur­inn er hvorki mál­efna­legur eða sann­fær­andi, „allt rask er stór­lega ýkt“ án vís­inda­legs grunns. „Það fór ekk­ert raun­veru­legt umhverf­is­mat fram á jarð­streng við Hraun í Öxnadal og eng­inn við­aukanna með umhverf­is­mats­ský­sl­unni fjall­aði heldur um þennan val­kost, heldur bara loft­línu.“

[adspot]

Nið­ur­staða umhverf­is­mats­ins­skýrsl­unnar um að engin munur umhverf­is­á­hrifa yrði á lands­lag, ásýnd, ferða­þjón­ustu og úti­vist, hvort lagður yrði jarð­strengur eða loft­lína, „vekur sann­ar­lega upp áleitnar spurn­ingar um aðferð­ar­fræði þessa mats yfir höfuð“.

Áhrif loftlína ekki umhverfismetin

Landsnet kom­ist hins vegar að því í skýrsl­unni að þegar á heild­ar­leiðir val­kosta sé litið þá megni „við­kvæmni lands­lags­heild­ar­innar Hrauns og áhrifin af sýn á yfir 30 möstur og til­heyr­andi línu­vegi frá öllum 14 göngu­leið­unum í fólk­vang­inum ekki að hafa nein áhrif í umhverf­is­mati“.

Þessu hafnar SUNN alfarið. Nið­ur­staða SUNN er að áhrif loft­lína hafi ekki verið umhverf­is­metin með full­nægj­andi hætti fyrir fólk­vang­inum í Hrauni að því er varðar lands­lag, ásýnd, ferða­þjón­ustu og úti­vist. Þá hafi það sem sagt er val­kostur um jarð­streng annað hvort alls ekki verið metið eða á alls ófull­nægj­andi hátt.

Full­yrð­ing í sam­an­tekt umhverf­is­mats­skýrslu þar sem segir að val­kostir með jarð­strengjum hafi „ívið meiri nei­kvæð umhverf­is­á­hrif en hrein loft­lína“ er að mati SUNN byggð á svo vil­höllum grunni, að nið­ur­staðan er alger­lega ómark­tæk.

Skýrslan „í alvarlegum atriðum“ í ósamræmi við lög

„Nið­ur­staða SUNN er að umhverf­is­mats­skýrslan sé í svo alvar­legum atriðum í ósam­ræmi við mats­á­ætlun og lög að öðru leyti, að hún geti ekki orðið grund­völlur lög­mæts fram­kvæmda­leyfis. SUNN telur að ekki verði kom­ist hjá því að beita þeim úrræðum sem tæk eru, þar á meðal vísa skýrsl­unni frá, láta sjálf­stætt mat fara fram á þeim þáttum sem út af standa eða að minnsta kosti afgreiða hana með rök­studdri nið­ur­stöðu Skipu­lags­stofn­unar þar sem skýrt er að hvaða leyti umhverf­is­mat fram­kvæmd­ar­innar er veru­legum ann­mörkum háð og getur ekki orðið grund­völlur fram­kvæmda­leyfa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

blöndulína3

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár