Zuckerberg: Ábyrgðin er okkar

Mark Zuckerberg stofn­andi Facebook kom fyrir öld­unga­deild Banda­ríkja­þings í gær. Hann segir að Facebook beri ábyrgð á að Cambridge Analytica hafi notað gögn um 87 millj­óna not­enda Facebook.

Mark Zuckerberg, stofn­andi Facebook, segir fyr­ir­tækið bera ábyrgð á að ráð­gjafa- og grein­ing­ar­fyr­ir­tækið Cambridge Analytica hafi kom­ist yfir gögn um 87 millj­óna not­enda Facebook. Þetta kom fram við yfir­heyrslur banda­rísku öld­unga­deild­ar­innar í gær og greint var frá í The Guardian.

Yfir­heyrsl­urnar stóðu yfir í fimm klukku­tíma og skipt­ust 44 öld­unga­deild­ar­þing­menn á að spyrja Zuckerberg spurn­inga en þær snér­ust um Facebook og frið­helgi einka­lífs­ins. Í dag munu yfir­heyrsl­urnar svo halda áfram en þá kemur Zuckerberg fyrir full­trúa­deild­ar­þing­menn sem sitja í orku- og við­skipta­nefnd.

Kveikjan að yfir­heyrsl­unum er afhjúpun Channel 4 á vinnu­brögðum Cambridge Analytica. Afhjúp­unin hefur leitt í ljós að Cambridge Analytica hefur notað gögn frá Facebook í þeim til­gangi að hafa áhrif á kosn­ingar víða um heim. Fyr­ir­tækið hefur upp­lýs­ingar um 87 millj­ónir not­enda Facebook.

Mark­aðsvirði Facebook, sem hefur farið lækk­andi síð­ustu vikur, hækk­aði um 4,5 pró­sent í gær vegna yfir­heyrsl­anna. Zuckerberg hefur hlotið mikla gagn­rýni eftir að upp komst um málið en miðað við frammi­stöðu gær­dags­ins virð­ist almenn­ings­á­litið fara vax­andi á ný.

Gátu ekki útilokað Cambridge Analytica

Stjórn­endur Facebook vissu fyrst af notkun Cambridge Analytica árið 2015 en Zuckerberg sagði snemma í yfir­heyrsl­unum að sam­fé­lags­mið­il­inn hefði ekki getað úti­lokað fyr­ir­tækið frá Facebook því það er ekki aug­lýs­inga­að­ili.

Eftir hlé leið­rétti hann sig hins vegar og sagði að Cambridge Analytica hefði verið aug­lýs­inga­að­ili á Facebook árið 2015 og að það hefði verið mis­tök að banna fyr­ir­tækið ekki strax frá því að aug­lýsa á Facebook.

Beinskeyttar spurningar þingmanna

[links]Þingmenn spurðu tölu­vert ein­faldra spurn­inga um virkni sam­fé­lags­mið­ils­ins en þau hlífðu Zuckerberg þó ekki og spurðu margir bein­skeyttra spurn­inga um frið­helgi einka­lífs­ins og söfnun gagna.

Dick Durbin þing­maður demókrata spurði Zuckerberg hvort hann væri til­bú­inn til að deila því á hvaða hót­eli hann gisti í nótt. Zuckerberg kvaðst ekki vilja gera það. Durbin spurði hann því næst hvort hann vildi deila því hverjum hann hefði sent skila­boð í vik­unni en Zuckerberg vildi ekki heldur deila því á svo opin­berum vett­vangi.

Bill Nelson þing­maður demókrata tal­aði ekki undir rós til Zuckerberg. „Ég skal draga þetta saman fyrir þig. Ef Facebook og aðrir sam­fé­lags­miðlar taka sig ekki saman í and­lit­inu mun eng­inn njóta frið­helgi einka­lífs­ins lengur. Ef Facebook og aðrir sam­fé­lags­miðlar geta ekki varist árásum, þá verðum við að gera það. Við sem sitjum á þingi,“ sagði Nelson.

Repúblikan­inn John Kennedy fór ekki mjúkum höndum um Zuckerberg og sagði honum að fara heim og skrifa not­enda­skil­málana aftur. Skil­mál­arnir væru ein­göngu gerðir til þess að forða Facebook frá mál­sóknum en ekki til að upp­lýsa not­and­ann. Seinna spurði Ron Johnsson hann að því hvort hann vissi hversu margir lesa skil­málana. Zuckerberg sagð­ist ekki vita það en að allir hefðu tæki­færi til þess að lesa þá.

Ted Cruz öld­unga­deild­ar­þing­maður repúblik­ana og fyrr­ver­andi for­seta­fram­bjóð­andi mætti einnig til yfir­heyrsl­anna. Fjallað hefur verið um Cruz í fréttum en fram­boð hans keypti ráð­gjöf hjá Cambridge Analytica í for­vals kosn­ingum repúblik­ana fyrir for­seta­kosn­ing­arnar 2016.

Opinn fyrir löggjöf um gagnasöfnun samfélagsmiðla

Rauður þráður í gegnum yfir­heyrsl­urnar voru spurn­ingar um lög­gjöf um gagna­söfnun og sam­fé­lags­miðla. Zuckerberg virt­ist opinn fyrir því en ítrek­aði að útfærsla lag­anna skipti miklu máli. Hann svar­aði að það væri ekki spurn­ing um hvort þörf væri á lög­gjöf heldur hvernig lög­gjöf væri. Hún þarf að vera rétt, að hans mati.

Edward Markey þing­maður demókrata spurði hvort hann myndi styðja lög sem segja að Facebook, og önnur fyr­ir­tæki sem safna upp­lýs­ingum, þyrfti að fá leyfi til að safna upp­lýs­ingum, áður en þær séu not­aðar í eitt­hvað annað. Zuckerberg svar­aði að almennt teldi hann þetta vera réttu hug­mynd­ina að lögum en ef hann myndi styðja lög­gjöf sem þessa þá skiptu smá­at­riðin miklu máli.

Kosningar á árinu forgangsmál

Zuckerberg sagði enn fremur í yfir­heyrsl­unum að kosn­ingar víða um heim á árinu yrðu for­gangs­mál hjá Facebook. Hann sagði að fyr­ir­tækið hefði verið að rann­saka aðkomu Rússa að fyrri kosn­ingum og að í for­gangi væri að fyr­ir­byggja að óprút­tnir aðilar hefðu áhrif á lýð­ræð­is­legar kosn­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár