Vond vika hjá Zuckerberg

Ferill Mark Zuckerberg hefur verið ævin­týri lík­astur. Hann er að mestu bund­inn við gríð­ar­lega hraða útbreiðslu Facebook. En nú eru blikur á lofti.

Mark Zuckerberg hefur á undra­skjótum tíma orðið einn af rík­ustu mönnum heims. Hinn 33 ára gam­ali Zuckerberg byrj­aði að efn­ast hratt eftir að Facebook varð til, en hann er einn stofn­enda og nú for­stjóri og stærsti eig­andi fyr­ir­tæk­is­ins.

Mark­aðsvirði þess nemur nú um 500 millj­örðum Banda­ríkja­dala, eða um 50 þús­und millj­örðum króna. Þessi verð­mæti hafa orðið til á 14 ára tíma­bili, en þó að mestu á und­an­förnum ára­tug, þegar Facebook hóf að breið­ast hratt út um heim­inn. Nú eru virkir not­endur yfir tveir millj­arðar manna, og er mið­ill­inn sér­stak­lega mikið útbreiddur á vest­ur­löndum.

Eftir að mis­notkun fyr­ir­tæk­is­ins Cambridge Analytica, með not­enda­upp­lýs­ingar Facebook, var gerð opin­ber þá hafa spjótin beins að Zuckerberg. Mark­aðsvirði Facebook hefur lækkað um 60 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 6 þús­und millj­örðum. Það er upp­hæð sem nemur virði allra fast­eigna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, svo hún sé sett í íslenskt sam­hengi.

Fjallað var ítar­lega um málið í Tækni­varp­inu, í hlað­varpi Kjarnans í vik­unni.

Þrátt fyrir þetta eru virði eigna Zuckerbergs áætlað um 64 millj­arðar Banda­ríkja­dala, eða um 6.400 millj­örðum króna, sam­kvæmt upp­færðum lista Forbes. Eign­ar­hlutur Zuckerbergs er á milli 12 og 13 pró­sent af heild­ar­virði Facebook, en félagið er skráð á markað.

Ekki eru öll kurl komin til grafar enn hjá Facebook, en opin­berar rann­sóknir eru nú í gangi á starf­semi Cambridge Analytica, bæði í Bret­landi og í Banda­ríkj­unum. Í þessum rann­sóknum bein­ast spjót­inn að Facebook, ekki síst, og því hvernig fyr­ir­tækið hefur farið með per­sónu­upp­lýs­ingar not­enda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár