Tollar frá fjórðungi og allt að helmingi verðsins á landbúnaðarvörum

Tollar og gjöld námu tæp­lega 50 pró­sent af verði ali­fugla­kjöts, um 40 pró­sent af unnum kjöt­vörum, 32 pró­sent af verði svína­kjöts og 26 pró­sent af verði nauta­kjöts árið 2013. Í öllum til­vikum hækk­aði toll­verndin milli ára. Sömu sögu má segja af ostum, en toll­vernd og útboðs­kostn­aður af þeim var 24,1 pró­sent árið 2013.

Þetta kemur fram í sam­an­burði í skýrslu starfs­hóps um tolla­mál á sviði land­bún­aðar, sem sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra skip­aði 3. mars í fyrra. Hópurinn skil­aði skýrsl­unni til ráðu­neyt­is­ins í des­em­ber, þann 15. des­em­ber ef marka má merk­ingu skýrsl­unnar á vef ráðu­neyt­is­ins. Hún var hins vegar hvorki birt á vef ráðu­neyt­is­ins né rædd á fundi rík­is­stjórnar fyrr en í dag.


Í skýrsl­unni kemur fram að ætla megi að íslenskir bændur fái greitt að með­al­tali 35 pró­senta hærra afurða­verð frá neyt­endum en þeir fengju ef engar hindr­anir væru á inn­flutn­ingi til Íslands.

[caption id="attachment_12503" align="align­right" width="150"] Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda.[/caption]

Mest er toll­vernd í ali­fugla­kjöti, unnum kjöt­vörum og svína­kjöti, en minni á nauta­kjöti, ostum, reyktu og sölt­uðu kjöti. Heild­ar­inn­flutn­ingur á land­bún­að­ar­vörum árið 2013 var rúm­lega 225 þús­und tonn, að verð­mæti 51,7 millj­örðum króna. Mest er flutt inn af ávöxtum og ýmsum unnum mat­vörum. 71% af öllu sem er flutt inn kemur frá ESB-ríkjum. Útflutn­ingur land­bún­ð­ar­vara var tæp 33 þús­und tonn, að verð­mæti 7,8 millj­örðum króna. Mest var flutt út af hrossum, kinda­kjöti og drykkj­ar­vörum. 38,3% af heild­ar­verð­mætum útflutn­ings fer til ESB.



Jafn­framt kemur fram að Ísland verður að lækka tolla og/eða veita betri mark­aðs­að­gang fyrir land­bún­að­ar­vöru, einkum frá Evrópu, til þess að auka gagn­kvæman mark­aðs­að­gang. Bæta þurfi mark­aðs­að­gang útflytj­enda fyrir mjólk­ur­af­urðir, vatn, bjór og sæl­gæti, að mati skýrslu­höf­unda.


Félag atvinnu­rek­enda gerir skýrsl­una að umtals­efni á heima­síðu sinni. Þar er haft eftir Ólafi Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóra FA, að skýrslan sé fyrst og fremst lýs­ing á umhverf­inu en engar til­lögur séu þar til breyt­inga. „Það verður þó æ skýr­ara að ekki verður lengur unað við núver­andi kerfi ofur­tolla og inn­flutn­ings­hafta. Öll áhersla stjórn­valda er á að vernda inn­lenda fram­leið­endur, á kostnað neyt­enda og inn­flutn­ings­versl­unar.“


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár