Seldu 50 tonn af graskerjum fyrir hrekkjarvökuna

Við­skipta­vinir í Mela­búð­inni slóg­ust um graskerin fyrir hrekkja­vök­una í ár. Þetta segir Pétur Alan Guð­munds­son, kaup­maður í Mela­búð­inni, sem segir hvert ein­asta grasker hafa selst og það tveimur dögum fyrir hrekkja­vöku. Bananar ehf. seldu versl­unum og veit­inga­stöðum 50 tonn af graskerjum fyrir hrekkja­vök­una, sem er fimm­földun frá árinu 2010.

Útskorið grasker
Útskorið grasker Stjórn­endur Mela­búð­ar­innar voru búnir að birgja sig upp af graskerjum í ár. Þeir voru þrátt fyrir það ekki búnir undir spreng­ing­una sem varð en öll graskerin seld­ust upp tveimur dögum fyrir hrekkja­vöku. Mynd: Flickr/William Warby

„Þetta var eig­in­lega bara ótrú­legt þetta árið. Salan jókst mikið í fyrra en núna varð algjör spreng­ing. Það klárað­ist allt á laug­ar­deg­inum, tveimur dögum fyrir hrekkja­vöku, og það var sleg­ist um síð­ustu graskerin,“ segir Pétur Alan Guð­munds­son, kaup­maður í Mela­búð­inni. Höfðu kaup­menn þar þó und­ir­búið sig vel, birgt sig ræki­lega upp og meðal stillt upp graskerjum í stóru keri utan við búð­ina. „Sumar fjöl­skyldur voru að kaupa tvö, jafn­vel þrjú grasker. Eitt á hvert barn.“

Hann segir það aug­ljós­lega hafa ýtt undir hrekkj­ar­vöku­á­huga Vest­ur­bæ­inga að búið var að búið var að bera miða í hús sem fólk var hvatt til að hengja út í glugga, ef það var til­búið til að „taka á móti nornum, draugum og öðrum óvættum í nammi­leit.“ Fjöldi fólks brást vel við skila­boð­unum og var mikil stemn­ing í hverf­inu þetta kvöld, skelfi­legar litlar verur á stjái um allar trissur og log­andi grasker við þriðja hvert hús.  

Bananar, stærsti inn­flytj­andi græn­metis og ávaxta, seldu nær allt það magn sem þeir fluttu inn fyrir hrekkja­vök­una í ár. „Þetta hefur stig­magn­ast hjá okkur ár frá ári. Það er nær ekk­ert eftir af því sem við fluttum inn í ár, ekki nema eitt lítið kar,“ segir Örvar Karlsson, sölu- og mark­aðs­stjóri Banana. Í ár hafi Bananar selt versl­unum og veit­inga­stöðum 50 tonn af graskerjum. Árið 2010 hafi tonnin verið tíu. Salan hafi því fimm­fald­ast á nokkrum árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár