Yfirlæknar segja einkaspítala geta orðið verulega ógn við heilbrigðiskerfið

Áætlaður einka­spít­ali í Mos­fellsbæ mun geta ógnað heil­brigð­is­kerf­inu á Íslandi og stefna jöfn­uði í kerf­inu í hættu. Þetta segja þrír yfir­læknar á Land­spít­ala.

Ef einka­sjúkra­húsið í Mos­fellsbæ verður að veru­leika getur það verið veru­leg ógn við heil­brigð­is­kerfið á Íslandi. Það mun einnig geta stefnt jöfn­uði í heil­brigð­is­kerf­inu í voða. Það ber því að stíga mjög var­lega til jarðar í mál­inu. Þetta segja þrír yfir­læknar á hjarta­deild Land­spít­al­ans í grein í Morg­un­blað­inu í dag.

Lækn­arnir, Davíð O. Arnar, Ingi­björg Guð­munds­dóttir og Karl Andersen, gera ýmsar athuga­semdir við fyr­ir­ætl­anir um einka­sjúkra­húsið í grein sinni. Mjög margt sé óljóst um starf­sem­ina sem og eign­ar­haldið á sjúkra­hús­inu. „Eins vekur umfang hug­mynd­anna furðu,“ skrifa lækn­arnir, sem bend á að for­svars­menn verk­efn­is­ins hafi áður kynnt miklu minni áform. „Því er ljóst að þetta verk­efni er nú af allt annarri stærð­argráðu og vekur það upp fjöl­margar spurn­ingar til við­bótar um raun­veru­legar fyr­ir­ætl­anir þeirra sem að því standa.“

Áætlað sé að um þús­und starfs­menn verði á þessum spít­ala, en óljóst sé hvaðan þeir eigi að koma. „Komið hefur fram að ekki verði sér­stak­lega fal­ast eftir íslensku starfs­fólki en erfitt að sjá að hægt sé að reka stórst sjúkra­hús hér­lendis allt árið um kring, með ein­göngu aðfluttu erlendu starfs­fólki. Ljóst er að það er úti­lokað að manna tvö stór sjúkra­hús á suð­vest­ur­horn­inu með þeim fjölda heil­brigð­is­starfs­manna sem nú eru í boði hér­lendis.“

Íslenskt heil­brigð­is­kerfi er ein­fald­lega ekki aflögu­fært um einn ein­asta starfs­mann, eins og staðan er í dag, segja lækn­arnir. „Við teljum því að svona umfangs­mikil ný starf­semi gæti orðið veru­leg ógn við heil­brigð­is­kerfi sem er á við­kvæmum stað í end­ur­reisn­ar­ferli.“

Stefnir mikilvægum jöfnuði í hættu

Lækn­arnir fjalla einnig um þær fyr­ir­ætl­anir að Íslend­ingar, sem vilja og hafa efni á því að greiða fyrir, eigi að geta sótt sér þjón­ustu á þessum nýja spít­ala. „Þetta skapar auð­vitað mögu­leika á að þeir efna­meiri muni sitja við annað borð en aðrir. Það stefnir þeim jöfn­uði sem er svo mik­il­vægur í heil­brigð­is­kerf­inu okkar í voða. Það væri gjör­breyt­ing á íslenskri heil­brigð­is­þjón­ustu og stang­ast illi­lega á við þá hug­mynda­fræði sem er und­ir­staðan að vel­ferð­ar­kerf­inu okkar.“

Þá vekur það athygli lækn­anna að sótt verður um rík­is­styrki til fram­kvæmd­anna vegna umfangs­ins, eins og Kjarninn hefur greint frá að gert verði. Und­ir­bún­ingur fyrir bygg­ingu nýs Land­spít­ala sé í fullum gangi og fyr­ir­hugað að fram­kvæmdir hefj­ist fljót­lega. „Hvaða áhrif hefur það á fyr­ir­hug­aðar fram­kvæmdir á LSH og jafn­vel á efna­hags­legan stöð­ug­leika hér­lendis ef ráð­ist er í tvær stórar spít­ala­bygg­ingar sam­tímis?“ spyrja lækn­arnir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár