Tíu milljarðar farnir í Hörpu frá 2011

Þegar tap Hörpu frá árinu 2011 er lagt saman við fram­lög ríkis og borgar vegna skulda hennar og rekstr­ar­fram­lags eig­enda þá er sam­talan um tíu millj­arðar króna. Þegar hefur tæpur hálfur millj­arður í við­bót verið settur inn á þessu ári.

Harpa tón­list­ar- og ráð­stefnu­hús ohf., sem er rekstr­ar­fé­lag Hörpu, hefur sam­tals tapað 3.232 millj­ónum króna frá byrjun árs 2011 og fram að síð­ustu ára­mót­um. Tapið í fyrra nam 668,3 millj­ónum króna.

Þá er búið að taka til­lit til sér­staks fram­lags sem ríki og Reykja­vík­ur­borg, eig­endur Hörpu greiða ann­ars vegar vegna fjár­mögn­unar á fast­eign­inni sjálfri og hins vegar vegna fram­lags til rekstrar Hörpu. Frá árinu 2011 hefur fram­lag vegna fjár­mögn­unar kostn­aðar við bygg­ingu Hörpu numið um sex millj­örðum króna. Þær greiðslur munu standa yfir til árs­ins 2046 og aukast í krónum talið ár frá ári.

Til við­bótar ákváðu eig­endur Hörpu að greiða rekstr­ar­fram­lag vegna hennar frá byrjun árs 2013 og út árið 2016. Sam­tals hefur fram­lag eig­end­anna til rekstrar Hörpu numið um 700 millj­ónum króna.

Sam­an­lagt nam því tap Hörpu, fram­lög ríkis og borgar vegna skulda hennar og rekstr­ar­fram­lag ríkis og borgar næstum tíu millj­örðum króna frá byrjun árs 2011 og til loka árs 2016.

Sú tala á bara eftir að hækka. Þann 23. maí síð­ast­lið­inn var gerður við­auki við samn­ing Hörpu við ríkið og Reykja­vík­ur­borg. Í honum felst að eig­end­urnir leggi Hörpu til 450 millj­óna króna við­bót­ar­fram­lag á síð­ari hluta þessa árs. Í árs­reikn­ingi segir: „Það leiðir til þess að lausa­fjár­staða sam­stæð­unnar er tryggð til árs­loka 2017.“

Tóku yfir Hörpu 2009

Íslenska ríkið og Reykja­vík­ur­borg sam­þykktu að taka yfir og klára bygg­ingu Hörpu snemma árs 2009. Þá höfðu fram­kvæmdir við bygg­ingu húss­ins, sem Eign­ar­halds­fé­lag­ið Portus stóð fyr­ir, stöðvast í kjöl­far banka­hruns­ins. Ástæðan var sú Portus og dótt­ur­fé­lög þess, sem voru í eigu Lands­banka Íslands og Nýsis, fóru í þrot.

Eftir yfir­töku ríkis og borgar á verk­efn­inu, sem var gerð þegar Katrín Jak­obs­dóttir var mennta­mála­ráð­herra og Hanna Birna Krist­jáns­dóttir borg­ar­stjóri í Reykja­vík, var tekið sam­banka­lán hjá íslensku bönk­unum til að fjár­magna yfir­tök­una. Í skrif­legu svari Katrínar Jak­obs­dóttur við fyr­ir­spurn þing­manns­ins Marðar Árna­sonar um Hörpu, sem birt var í mars 2011, kom mjög skýrt fram að ekki ætti að setja meira fé en þar var umsamið í Hörpu.

[adspot]

Þar sagði orð­rétt að „for­sendur fyrir yfir­töku verk­efn­is­ins voru þær að ekki þyrftu að koma til önnur fram­lög frá ríki og borg en gert var ráð fyrir í samn­ingi Aust­ur­hafnar-TR og Portusar frá 9. mars 2006".

Íslenska ríkið nú á 54 pró­sent í Hörpu en Reykja­vík­ur­borg 46 pró­sent hlut.

Í lok árs 2011 leit­uðu for­svars­menn Hörpu­-­sam­stæð­unnar til eig­enda sinna eftir brú­ar­láni, þar sem upp­haf­legt sam­banka­lán dugði ekki fyrir stofn­kostn­aði. Lánið átti að end­ur­greið­ast þegar Harpa gæfi út skulda­bréfa­flokk, og í síð­asta lagi í des­em­ber 2012. Lands­bank­inn, sem var langstærsti lán­veit­and­inn í sam­banka­lán­inu, fékk umsjón með skulda­bréfa­út­boð­inu og sölu­tryggði það.

Skulda­bréfa­út­gáfan var upp á 19,5 millj­arða króna og ber 3,55 pró­sent verð­tryggða vexti. Sam­kvæmt árs­reikn­ingi Hörpu voru skuldir vegna útgáf­unnar um 20 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót. Skulda­bréfin eru tryggð með veði í fram­lagi ríki og borg­ar, fyrsta veð­rétti í Hörpu auk hand­veð­réttar í banka­inn­stæðum félags­ins. Þegar búið er að reikna með vaxta­greiðslum á eftir að greiða um 31 millj­arð króna hið minnsta vegna þess­arar útgáfu á næstu tæpu þremur ára­tugum. Á árinu 2016 greiddu ríki og borg tæp­lega 1,1 millj­arð króna vegna þessa.

Tekjur vaxa en kostnaður vex meira

Tekjur af starf­semi Hörpu hafa vaxið ár frá ári. Í fyrra juk­ust þær um 215 millj­ónir króna og voru 1.281 millj­ónir króna. Rekstr­ar­gjöldin juk­ust þó enn meira, eða um 320 millj­ónir króna, og voru 1.766 millj­ónir króna. Rekstr­ar­tapið jókst um 86,2 millj­ónir króna á milli ára og var 635,8 millj­ónir króna. Ef ekki hefði komið til sér­stakt rekstr­ar­fram­lag ríkis og borgar upp á 191 milljón króna í fyrra þá hefði rekstr­ar­tapið verið enn meira, eða um 827 millj­ónir króna.

Einn stærsti rekstr­ar­kostn­aður Hörpu er hús­næð­is­kostn­aður. Í fyrra var hann 585 millj­ónir króna. Þar af voru fast­eigna­gjöld 269 millj­ónir króna, en stjórn­endur Hörpu hafa árum saman barist gegn hárri álagn­ingu þeirra með þó nokkrum árangri. Þótt Harpa hefði ekki greitt nein fast­eigna­gjöld í fyrra hefði tap húss­ins hins vegar samt sem áður verið um 400 millj­ónir króna.

Þessi rekstr­ar­vandi leiddi til þess að eig­in­fjár­staða Hörpu var nei­kvæð um síð­ustu ára­mót.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár