Tæplega sjö þúsund manns í einangrun eða sóttkví yfir jólin

Á tveimur dögum greindust alls 982 manns með kór­ónu­veiruna á Íslandi. Þessir tveir dagar eru langstærstu smit­dagar far­ald­urs­ins til þessa. Fyrir vikið munu þús­undir eyða jól­unum í ein­angrun eða sótt­kví.

Greindum smitum hefur fjölgað gríðarlega undanfarna daga.
Greindum smitum hefur fjölgað gríð­ar­lega und­an­farna daga. Mynd: Bára Huld Beck

Alls greindust 488 manns með COVID-19 smit í gær, á Þor­láks­messu. Það er næst mesti fjöldi sem greinst hefur á einum degi. Metið var sett dag­inn áður, 22. des­em­ber, þegar 494 greindust með kór­ónu­veiruna.

Smitin í gær voru lang­flest inn­an­lands en þó fjöl­mörg á landa­mær­unum eða 40. Tíu liggja á sjúkra­húsi með COVID-19 þar af þrír á gjör­gæslu og eru þeir allir í önd­un­ar­vél.

Samkvæmt bráða­birgða­tölum frá Almanna­varn­ar­deild rík­is­lög­reglus­stjóra eru 2.969 ein­stak­lingar í ein­angrun vegna smita í dag og 3.812 til við­bótar í sótt­kví. Það þýðir að 6.781 manns eyða jól­unum annað hvort í ein­angrun eða sótt­kví.

[adspot]Í til­kynn­ingu Almanna­varn­ar­deildar segir ​​að fjöldi PCR sýna sem tekin voru í gær muni ekki kom fram á sið­unni covid.is fyrr en á mánu­dag, þegar hún verður næst upp­færð. Yfir hátíð­is­dag­anna verði hins vegar sendar út til­kynn­ingar til fjöl­miðla með bráða­birgða­tölum.

Fyrsta til­fellið af kór­ónu­veirunni var stað­fest hér á landi 28. febr­úar árið 2020. Síðan þá eru liðnir 22 mán­uðir og frá þeim tíma hafa 22.575 smit greinst. 37 hafa lát­ist á Íslandi vegna COVID-19.

Ástæða þess að smitum hefur fjölgað skarpt er útbreiðsla ómíkron-afbrigðis veirunnar hér­lendis.

[links]Það afbrigði hefur dreifst á leift­ur­hraða um ver­öld víða, um nokkuð tak­marka­laus sam­fé­lög manna ólíkt því sem gerð­ist í delta-­bylgj­unni, höfum við ekki enn fengið stað­fest­ingu á því hversu skað­legt það er.

Það sem vís­inda­menn hafa þó sagt er að jafn­vel þótt ómíkron valdi almennt mild­ari sjúk­dóms­ein­kennum en delta gæti sú bylgja sem nú rís sligað heil­brigð­is­kerfi af þeirri ein­földu ástæðu að þegar gríð­ar­lega margir smit­ast sam­tímis mun fjölga í hópi þeirra sem þurfa sjúkra­hús­inn­lögn – hvort sem veiran kall­ast ómíkron eða delta.

Arnar Páls­son erfða­fræð­ing­ur sagði við Kjarnann í fyrra­dag að fjölg­un­ar­geta ómíkron sé meiri en delta, ann­arra afbrigða og upp­runa­legu gerðar veirunn­ar. „Það þýðir að með tíð og tíma verður ómíkron alls­ráð­andi í öllum stofn­um, það er að segja á öllum svæðum þar sem veiran geis­ar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár