Vaxandi hiti færist í innflytjendaumræðuna á Bretlandseyjum

Fjöl­miðlar í Bret­landi fjöll­uðu nýverið um per­úskan flótta­manna sem flúði heima­land sitt í kjöl­far eyði­legg­ingar jarð­skjálfta. Hann smyglaði sér á skipi til Bret­lands í leit að betra lífi, kom til lands­ins ólög­lega og fékk húsa­skjól hjá hinni góð­hjört­uðu Brown fjöl­skyld­unni sem fann hann umkomu­lausan á lest­ar­stöð í London. Hann er dásamaður fyrir vald sitt á enskri tungu og áhuga hans og ástríðu fyrir bresku mar­melaði.

Hert afstaða gegn auknum straumi innflytjenda


Hér er að sjálf­sögðu um að ræða frá­sögn af bíó­mynd­inni um breska bangs­ann Padd­ington en ekki dæmi úr raun­veru­leik­anum. Í vik­unni bár­ust þó raun­veru­legar fréttir af því að breska inn­an­rík­is­ráðu­neytið hafi hafnað ferða­manna­á­ritun simbabveskra hjóna sem hugð­ust sækja jarða­för barna­bars síns sem lést í bílslysi í Eastbourne í lok síð­asta árs. Þrátt fyrir boð Stephen Lloyd, þing­manns Frjáls­lyndra demókrata, um að gang­ast í per­sónu­lega ábyrgð fyrir því að hjónin skili sér aftur til Simbabve hefur ráð­herra inn­flytj­enda­mála staðið fast á að neita þeimum áritun þar sem þau upp­fylla ekki ströng skil­yrði um eignir og fyrri ferða­lög. Taldar voru of miklar líkur á að hjónin íleng­ist ólög­lega í Bret­landi og þeim því end­an­lega neitað um ferða­manna­á­rit­un­ina.

[quote font="0" align="right"]Hug­myndir hafa verið viðr­aðar um mögu­leik­ann á að vísa rík­is­borg­urum ESB ríkja úr landi ef þeir hafa ekki fundið vinnu hálfu ári eftir kom­una til lands­ins.[/quote]

Hiti hefur verið að fær­ast í umræð­una um inn­flytj­enda­mál í Bret­landi síð­ustu miss­eri og margir stjórn­mála­menn farnir að taka harða afstöðu gegn auknum straumi inn­flytj­enda til lands­ins. Þetta teng­ist að sama skapi hinni eilífu umræðu um veru Bret­lands í Evr­ópu­sam­band­inu (ESB). Skiptar skoð­anir eru meðal almenn­ings um hvort heppi­legra sé að segja sig frá sam­starf­inu eða ekki.

Tugþúsundir Breta á bótum víðsvegar um Evrópu


Philip Hammond utan­rík­is­ráð­herra Bret­lands sagði í vik­unni að landið værið galopið fyrir mis­notkun á frjálsum flutn­ingi fólks innan ESB (auk ann­ara landa evr­ópska efna­hags­svæð­is­ins, EES) og mik­il­vægt væri að koma í veg fyrir bóta­túrisma Evr­ópu­búa innan Bret­lands og ann­ara landa sam­starfs­ins. Hug­myndir hafa verið viðr­aðar um mögu­leik­ann á að vísa rík­is­borg­urum ESB ríkja úr landi ef þeir hafa ekki fundið vinnu hálfu ári eftir kom­una til lands­ins. Ráð­herr­ann hefur talað um að Bretland sé ber­skjaldað fyrir mis­notkun af hálfu þeirra sem falla undir frjálsa för innan EES. Að mati ráð­herr­ans er Bretland í allt annarri stöðu en til að mynda Þýska­land eða Svíþjóð, suð­ur­hluti Englands sé nú þegar einn þétt­byggð­asti hluti Evrópu og nátt­úru­leg fjölks­fjölgun eigi sér stað þar burt séð frá fjölda inn­flytj­enda.

[caption id="attachment_17940" align="alignnone" width="601"] Philip Hammond utan­rík­is­ráð­herra Bret­lands.[/caption]

Philip Hammond utanríkisráðherra Bretlands.
Philip Hammond utan­rík­is­ráð­herra Bret­lands.

Á sama tíma hefur dag­blaðið Guardian birt úttekt á þeim fjölda Breta sem þiggja bætur í öðrum löndum innan ESB. Kald­hæðnin er sú að sam­kvæmt úttekt­inni er heild­ar­upp­hæð bóta sem Bretar þiggja í rík­ari löndum sam­bands­ins hærri en sú sem greidd er til bóta­þega frá þeim löndum hér í Bret­landi. Samtals um 30 þús­und Bretar eru á atvinnu­leys­is­bótum víðs­vegar um Evrópu. Líkt og úttekt blaðs­ins sýnir þá eru um 23 þús­und Bretar á bótum í Finn­landi, Svíþjóð, Danmörku, Belgíu, Lúx­em­borg, Þýska­landi, Aust­ur­ríki, Frakk­landi og Írlandi á móti um 8.700 borg­urum þess­ara landa sem eru á bótum í Bret­landi. Þá má líka hafa í huga að bætur sem þessar í rík­ari löndum ESB oft á tíðum mun hærri en hér í Bret­landi. Rétt er þó að taka fram að ef horft er til Póllands, sem oft er í aðal­hlut­verki í umræðum sem þessum, kemur fram að um 15 þús­und Pól­verjar nýta sér mögu­leik­ann á bótum í Bret­landi á móti tveimur Bretum í Póllandi. Úttekt sem þessi dregur því fram örlítið flókn­ari mynd en stjórn­mála­menn reyna að mála dags dag­lega.

Innflytjendur og minnihlutahópar skotmörk


Meðan orð­ræða stjórn­mála­manna hefur færst í átt­ina að því að skapa, oft á tíðum, ímynduð vanda­mál úr inn­flytj­endum sem koma til lands­ins vegna náms og vinnu hefur andúð á ýmsum minni­hluta­hópum auk­ist. Minni­hluta­hópar og inn­flytj­endur upp­lifa for­dóma í auknum mæli og kemur það skýrt fram í könnun fyr­ir­tæk­is­ins YouGov fyrir sam­tökin „Campaign Against Anti-Semitism“ um gyð­inga­andúð í land­inu. Þar kemur fram að for­dómar gegn gyð­ingum eru að aukast og staðalí­myndir um t.d. áhuga á auð­söfnun þeirra lifa góðu lífi. Þar fara kjós­endur breska sjálf­stæð­is­flokks­ins UKIP fremstir í flokki og taka 39 pró­sent þeirra undir þá staðalí­mynd. Þetta má svo setja í sam­hengi við umræð­una um hryðju­verka­árás­irnar í París þar sem eitt af skot­mörk­unum var kos­her stór­mark­aður í suð­ur­hluta borg­ar­innar. Theresa May, inn­an­rík­is­ráð­herra, lof­aði í fram­haldi af þessum umræðum að lög­gæsla verði aukin við bæna­hús og skóla gyð­inga.

Frans Timmermans vara­for­seti fram­kvæmda­stjórnar ESB viðr­aði einnig áhyggjur sínar af mál­inu í vik­unni og setti þróun mála í sam­hengi við fram­tíð Evr­ópu­sam­starfs­ins. Hann tók skýrt fram að í Evrópu eigi að vera pláss fyrir alla óháð upp­runa og kyn­þætti, en það sé eitt af grunn­gildum sam­bands­ins.

[caption id="attachment_17941" align="alignnone" width="640"] Frans Timmermans, vara­for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins.[/caption]

Frans Timmermans, varaforseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.
Frans Timmermans, vara­for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins.

Á sama tíma sköp­uð­ust heitar umræður um bréf sem Eric Pickles, ráð­herra sveita­stjórnar- og trú­mála, skrif­aði á dög­unum bréf til trú­ar­leið­toga múslima í Bret­landi. Þar hvatti hann til þess að múslimar tæk­ust á við öfga­menn innan sinna raða og að lagði hann enn­fremur áherslu á að kenna þurfi ungu fólki hvað það þýðir að vera Breti. Í fram­haldi svör­uðu full­trúar einna stærstu sam­taka múslima í Bret­landi „Muslim Council of Britain“ bréf­inu og gagn­rýndu full­trúa rík­is­stjórn­ar­innar fyrir mál­flutn­ing sem eigi meira líkt með mál­flutn­ingi hægri öfga­afla. Full­trúar sam­tak­anna voru því ekki par sáttir við íhlutun ráð­herr­ans og reitti bréfið marga trú­ar­leið­toga innan raða múslima til reiði.

Innflytjenda- og trúmál í brennidepli fyrir kosningar


David Cameron, for­sæt­is­ráð­herra, nýtti því tæki­færið á mánu­dag í heim­sókn til slátt­ur­véla­verk­smiðju í Ipswich og sló á gagn­rýni sam­tak­anna og þvertók fyrir það að sam­hljómur væri með rík­is­stjórn­inni og hægri öfga­öflum í land­inu. For­sæt­is­ráð­herr­ann impraði jafn­framt á mik­il­vægi þess að ala ekki á sundr­ungu í sam­fé­lag­inu. Af þessu má því reikna með að inn­flytj­enda- og trú­mál verði áfram í brennid­epli fjöl­miðla í Bret­landi fram að þing­kosn­ingum í maí á þessu ári. Hvort Padd­ington Brown verði hand­samaður og sendur úr landi fyrir ólög­lega veru sína og tak­mark­aða getu til að halda sér uppi fjár­hags­lega skal þó ósagt látið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár