Sigmundur Davíð stillir sér upp með fólkinu á gólfinu - snúin staða

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hefur að und­an­förnu sýnt mikla og ein­dregna sam­stöðu með kröfum verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar um að hækka laun þeirra lægst laun­uðu umtals­vert. Kröfur hafa komið fram, meðal ann­ars hjá Starfs­greina­sam­band­inu, um að lægstu laun hækki úr 214 þús­und í 300 þús­und, og að hinir lægst laun­uðu fái „mynd­ar­lega“ krónu­tölu­hækkun á launum. Eins og greint hefur verið frá í frétta­skýr­ingum Kjarnans um þessi mál að und­an­förnu, þá horfir for­ysta verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar til þess að laun verði hækkuð um 20 til 30 pró­sent, og eru samn­ingar íslenska rík­is­ins við lækna, þar sem laun voru hækkuð um meira en 20 pró­sent, oft nefnd sem við­miðun. Á föstu­dag­inn verða 45 kjara­samn­ingar launa­fólks lausir.

Sig­mundur Davíð hefur opin­ber­lega sagt að ekki eigi að horfi til samn­ings­ins við lækna, þegar komi að kjara­samn­ingum almennt á vinnu­mark­aði. Þar þurfi að horfa meira á sér­tæk atriði, því samn­ing­ur­inn við lækna, og raunar kenn­ara­stéttir einnig, snú­ist ekki ein­göngu um launin heldur líka vinnu­fyr­ir­komu­lag. En þrátt fyrir það þá sé vel hægt að hækka laun þeirra sem lægstu launin hafa mynd­ar­lega.

Lægstu laun hækki!


Í erindi sem hann hélt á fundi Félags Við­skipta- og hag­fræð­inga í gær, sagði hann benti á kaup­mátt­ar­aukn­ingin síð­ast­liðna tólf mán­uði, upp á 5,5 pró­sent, ætti meðal ann­ars rót í samn­ingi sem aðilar vinnu­mark­að­ar­ins hefðu gert á síð­asta ári. „Þetta er gríð­ar­legur árangur. Launa­hækkun um 6,3% nýt­ist næstum að öllu leyti í kaup­mátt þegar verð­bólgan er undir einu pró­senti. Stóran þátt í þessum árangri eiga stöð­ug­leika­samn­ingar sem aðilar vinnu­mark­að­ar­ins gerðu á síð­asta ári. Þetta hefur leitt til þess að kaup­máttur launa hefur aldrei verið hærri en nú,“ sagði Sig­mundur Davíð. Hann nefndi einnig að dyr rík­is­stjórn­ar­innar stæðu opnar til skrafs og ráða­gerða fyrir aðila vinnu­mark­að­ar­ins. „Ég vil því nota tæki­færið og hvetja aðila vinnu­mark­að­ar­ins til að taka þátt í virku sam­tali við rík­is­stjórn­ina þar sem færi gefst til að skipt­ast á skoð­unum, leggja línur og veita upp­lýs­ingar. Við þurfum sam­eig­in­lega að við­halda stöð­ug­leik­anum því hann er vís­asti veg­ur­inn til að auka kaup­mátt,“ sagði Sig­mundur Davíð.

Áhyggjur af of miklum hækkunum


Óhætt er að segja að Samtök atvinnu­lífs­ins horfi ekki sömu augum á lands­lagið á vinnu­mark­aði og for­ysta verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar, og hefur raunar sagt að lítið svig­rúm sé til launa­hækk­ana. Að hámarki sé hægt að hækka laun um 3,5 til 5 pró­sent. Ef þetta ger­ist ekki þá muni óða­verð­bólga leika vinnu­mark­að­inn grátt, bæði þá sem hafa lág laun og þá sem hafa há laun. Hafa Samtök atvinnu­lífs­ins meðal ann­ars unnið sviðs­mynda­grein­ingu sem sýnir hvað muni ger­ast ef samið verður um ákveðna launa­hækkun. Fari svo að laun verði hækkuð um meira en 20 pró­sent, telja sam­tökin að verð­bólga muni aukast mikið

Verka­lýðs­hreyf­ingin, sem að vissu leyti hefur nú fengið for­sæt­is­ráð­herr­ann í fylk­ingu sína, segir þessa sýn SA ekki ganga upp. Horfi þurfi á málið út frá öðrum for­sendum. Í ákveðnum greinum sé svig­rúm til hækk­ana fyrir hendi, meðal ann­ars í gjald­eyr­is­skap­andi greinu, eins og segir orð­rétt í kröfu­gerð Starfs­greina­sam­bands­ins, sem hefur tólf þús­und félags­menn innan sinna vébanda. Þess vegna þurfi að líta til þess að nýta svig­rúmið, sem er fyrir hendi, á þeim stöðum þar sem það er sann­ar­lega að finna.

[caption id="attachment_16654" align="alignnone" width="3013"] Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er í snú­inni stöðu vegna þess hve erfið staða er nú á vinnu­mark­aði.[/caption]

Hvar stendur Sjálfstæðisflokkurinn?


Kjara­samn­ingar eru yfir­leitt mikið sprengju­svæði, en aðstæð­urnar nú eru óvenju­lega eld­fimar, ef marka má sýn við­mæl­enda Kjarnans í þessum efnum. Samtök atvinnu­lífs­ins telja sig vera að boða „hina ábyrgu afstöðu“, það er að leggja til lausnir sem mið­ast við það hverju efna­hags­þróun hag­kerf­is­ins getur staðið undir til lengri tíma. Verka­lýðs­hreyf­ingin telur sig einnig vera að gera þetta, en að horfa þurfi sér­tækar á stöðu mála. Hvernig kök­unni er skipt, hvað fólkið í gólf­inu er að fá af því sem til aflögu er.

Ráðuneyti Bjarna Benediktssonar segir að enginn nýr haftahópur hafi verið skipaður þótt til skoðunar sé að stækka hann.
Ráðu­neyti Bjarna Bene­dikts­sonar segir að eng­inn nýr hafta­hópur hafi verið skip­aður þótt til skoð­unar sé að stækka hann.

Innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins eru skiptar skoð­anir um þessi mál, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, þó margir taki undir með Samtökum atvinnu­lífs­ins um nauð­syn þess að semja ekki um laun­hækk­anir sem síðan reyn­ist ekki inni­stæða fyrir. Bjarni Bene­dikts­son, efna­hags- og fjár­mála­ráð­herra og for­maður flokks­ins, þarf því enn einu sinni að feta sig áfram eftir póli­tískum stíg þar sem ólíkar raddir flokks­manna heyr­ast í kringum hann. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er mun frekar sam­stilltur á bandi verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar, og telur skyn­sam­legt að nýta þann árangur sem hefur náðst að und­an­förnu til þess að byggja undir hag hinn lægst laun­uðu. Þeirra tími sé kom­inn.

Þjóðarsátt - í hverju felst hún?


Margir ræða um nauð­syn þess að ná nýrri þjóð­ar­sátt, þar sem hin póli­tísku vopn eru lögð niður og lausn fundin á snú­inni stöðu. Ef hún verður hinn gullni með­al­vegur ólíkra sjón­ar­miða, sem uppi eru nú, þá gæti hún falist í því að laun hinna lægst laun­uðu verði hækk­uðu mest, en að ein­hver sveigj­an­leiki verði í samn­ing­unum sem miði að því að bregð­ast við í tíma, ef það fara að sjást merki um að verð­bólgu­draug­ur­innn sé laus. Stjórn­völd þurfa vafa­lítið að eiga aðkomu að slíku, með bæði verka­lýðs­hreyf­ing­unni og atvinnu­rek­endum. Allir þurfa vænt­an­lega að gefa eitt­hvað eftir af sínum ítr­ustu kröfu, en þegar svo mikið ber í milli þá er erfitt að segja til um hvernig mál­unum verður að end­ingu lent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár