Hlýnar um 1,3 til 2,3 gráður á Íslandi næstu árin

Verði losun mikil gæti hlýnun til loka ald­ar­innar numið meira en 4°C, með ríf­legum óvissu­mörkum þó. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu vís­inda­nefndar um lofts­lags­breyt­ingar.

Lang­tíma­hitafars­breyt­ingar á Íslandi frá lokum síð­asta jök­ul­skeiðs, eða í rúm 10 þús­und ár, hafa verið um 4°C sem er mun meira en hnatt­rænar breyt­ingar á sama tíma. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu vís­inda­nefndar um lofts­lags­breyt­ingar sem kynnt var í dag.

Í skýrsl­unni er talið lík­legt að fram að mið­biki ald­ar­innar hlýni á land­inu og haf­svæð­inu umhverfis það og að árin 2046 til 2055 verði að með­al­tali 1,3 til 2,3°C hlýrri en árin 1986 til 2005. Umfang hlýn­unar ráð­ist aðal­lega af losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.

Verði losun mikil gæti hlýnun til loka ald­ar­innar (með­al­tal áranna 2091 til 2100) numið meira en 4°C, með ríf­legum óvissu­mörkum þó. Gangi Par­ís­ar­sam­komu­lagið eftir, þar sem minna er losað af gróð­ur­húsa­loft­teg­undum, gæti hlýn­unin til loka ald­ar­innar verið á bil­inu 1,5 til 2,4°C.

Líklegt er að hlýn­unin verði meiri að vetri til en að sumri og nemur mun­ur­inn um helm­ingi af hlýnun á árs­grund­velli. Vís­bend­ingar eru um að hlýn­unin verði meiri norð­an­lands en sunnan og víða um landið verði meira en helm­ingur sum­ar­daga við lok ald­ar­innar hlýrri en 15°C.

Meiri óvissa er um úrkomu­breyt­ingar en breyt­ingar á hita en gera má ráð fyrir að úrkoma auk­ist um að minnsta kosti 1,5 pró­sent fyrir hverja gráðu sem hlýnar. Í sumum reikni­lík­önum er aukn­ingin allt að 4,5 pró­sent fyrir hverja gráðu. Vís­bend­ingar eru um að úrkomu­á­kefð geti einnig auk­ist og að þrátt fyrir aukna heild­ar­úr­komu geti þurrka­dögum einnig fjölgað.

Hnattrænar breytingar

Hnattræn hlýnun við lok ald­ar­innar verður lík­lega á bil­inu 0,3 til 4,8°C og fer mjög eftir því hversu mikið verður losað af gróð­ur­húsa­loft­teg­undum. Meg­in­lönd munu hins vegar hlýna meira en úthöfin og hlýn­unin verður áköfust á heim­skauta­svæðum norð­urs­ins. Nánast öruggt er að á flestum svæðum mun heitum dögum fjölga og köldum dögum fækka að sama skapi. Líklegt er að hita­bylgjur verði lengri og tíð­ari, en eftir sem áður má stöku sinnum búast við köldum vetrum á hærri breidd­argráðum. Draga mun úr úrkomu á þurrum svæðum á sama tíma og hún eykst á svæðum sem þegar eru úrkomu­söm.

Í skýrsl­unni segir að hlýnun jarðar sé óum­deil­an­leg og bendi margar athug­anir til breyt­inga frá því um mið­bik síð­ustu aldar sem séu for­dæma­lausar hvort sem litið er til ára­tuga eða árþús­unda. Loft­hjúp­ur­inn og heims­höfin hafi hlýnað, dregið hafi úr magni og útbreiðslu snævar og íss, auk þess sem sjáv­ar­borð hefur hækkað og styrkur gróð­ur­húsa­loft­teg­unda auk­ist.

„Enn­fremur hefur sýru­stig sjávar lækkað um 0,1 pH stig frá iðn­bylt­ingu og ummerki þess á líf­ríki eru þegar merkj­an­leg. Athafnir manna, sér­stak­lega bruni jarð­efna­elds­neytis, hafa aukið styrk gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í loft­hjúpnum og er hann nú mun meiri en vitað er að hann hafi verið að minnsta kosti síð­ustu 800 þús­und ár. Styrkur CO2 í loft­hjúpnum hefur auk­ist um 40 pró­sent frá því fyrir iðn­bylt­ingu. Heims­höfin hafa tekið við um 30 pró­sent af koldí­oxíðslos­un­inni og veldur það súrnun þeirra. Nýlegar rann­sóknir benda til þess að frá mið­biki 8. ára­tugs síð­ustu aldar hafi hlýnun numið um 0,17– 0,19°C á ára­tug og sveiflur yfir styttri tíma­bil víki ekki mark­tækt frá því. Hlýnun síð­ustu ára­tuga er töl­fræði­lega mark­tæk.“

Ábendingar um aðgerðir og skort á þekkingu

Í síð­ustu skýrslu Vís­inda­nefndar árið 2008 var bent á að umtals­verðar afleið­ingar lofts­lags­breyt­inga á Íslandi verði ekki umflúnar. Þetta yki þörf á vöktun og rann­sóknum á ýmsum þáttum nátt­úru­fars. Ljúka þyrfti öflun grunn­upp­lýs­inga um nátt­úru­far lands­ins og efla lang­tíma­vöktun á umhverf­is­þáttum og líf­ríki hafs og lands. Þá var bent á að vöktun er lang­tíma­verk­efni sem krefst stöðugra fjár­veit­inga og hentar ekki til fjár­mögn­unar úr sam­keppn­is­sjóðum.

Síðan sú skýrsla kom út hefur dregið úr almennri vöktun á nátt­úru­fari lands­ins, og gildir það jafnt um veð­ur­at­hug­anir sem og vöktun á líf­ríki lands og sjávar. Vís­inda­nefnd telur í skýrslu sinni mik­il­vægt benda á að skipu­leg við­brögð við lofts­lags­breyt­ingum þurfi að byggja á hald­bærum rann­sóknum og þekk­ingaröflun. Marg­vís­legar rann­sóknir hafa þegar verið gerðar sem gefa vís­bend­ingar um áhrif lofts­lags­breyt­inga á ýmsa nátt­úru­þætti.

Engin áætlun er þó til um vöktun á lyk­il­þáttum íslenskrar nátt­úru. Sér­stak­lega vanti rann­sóknir þar sem tengsl við lofts­lags­breyt­ingar eru við­ fangs­efni, en ekki er reynt að skýra út orsaka­sam­hengi breyt­inga á umhverf­is­þáttum og nátt­úru­fari eftir á. Bæta þurfi vöktun sér­stak­lega á þeim þáttum sem lík­leg­astir eru taldir til að breyt­ast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár