Sendiherra lýsti yfir áhyggjum af neikvæðri umræðu í garð Pólverja á Íslandi

Sendi­herra Póllands lýsti yfir áhyggjum af nei­kvæðri umræðu í garð Pólverja hér á landi á fundi sínum með Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni utan­rík­is­ráð­herra síð­asta föstu­dag. Ráðherra segir smit­skömmun ekki eiga að líð­ast.

Guðlaugur Þór og Gerard Pokruszyński sendiherra Póllands á fundinum á föstudag.
Guð­laugur Þór og Gerard Pokruszyński sendi­herra Póllands á fund­inum á föstu­dag. Mynd: Utanríkis- og þróunarsamvinnuráðuneytið

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­ríkis- og þró­un­ar­sam­vinnu­ráð­herra átti fund með Gerard Pokruszyński sendi­herra Póllands á Íslandi síð­asta föstu­dag og tjáði honum að smit­skömmun í garð Pólverja á Íslandi væri ólíð­andi, en pólski sendi­herr­ann hafði á fund­inum látið í ljós áhyggjur af nei­kvæðri umræðu í garð Pólverja á Íslandi í tengslum við kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu í dag. Þar segir einnig að Guð­laugur Þór hafi á fund­inum áréttað mik­il­vægi þess að íbúum Íslands væri ekki mis­munað í tengslum við COVID-19, hvorki pólskum né öðrum af erlendum upp­runa.

„Far­ald­ur­inn hefur kallað fram marga góða eig­in­leika í fari þjóð­ar­innar en líka slæma. Einn þeirra er smit­skömm­unin, sem á und­an­förnum vikum hefur beinst að íbúum lands­ins af erlendum upp­runa. Við getum ekki liðið að fólki sé mis­munað á slíkum grund­velli enda fer veiran ekki í mann­grein­ar­á­lit. Pólska sam­fé­lagið hér á landi hefur bæði auðgað þjóð­lífið og átt ríkan þátt í skapa hag­sæld und­an­far­inna ára og umræða und­an­far­inna daga í þess garð er bæði óvægin og ósann­gjörn,“ er haft eftir Guðlaugi Þór í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins.[links]

Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn vakti máls á því á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna síð­asta fimmtu­dag að Pól­verjar á Íslandi hefðu fengið ljót skila­boð að und­an­förnu, eftir að hópsmit komu upp í sam­fé­lag­inu í kjöl­far þess að örfáir ein­stak­lingar héldu ekki sótt­kví.

„Við höfum oft talað um að veiran sé and­stæð­ing­ur­inn í þessu, það ætlar eng­inn að smit­ast og það ætlar eng­inn að smita annan. En nú erum við að fá upp­lýs­ingar um það að börn og full­orðnir sem hafa tengst hópsmitum og lent í því að vera hluti af þeim, eru að fá öfga­full skila­boð, rasísk og mjög ljót skila­boð. Þau eru líka að verða fyrir nán­ast ein­elti úti á götu. Eingöngu, virð­ist vera, vegna þess að þau koma frá til­teknu landi. Ekki dæma alla fyrir eitt­hvað sem örfáir hafa gert,“ sagði Víðir.

[adspot]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár