Gervihnattagögn sýna að OPEC-aðgerðirnar virka

Framboð á olíu hefur dreg­ist saman um minnst 16 pró­sent síðan um ára­mót, sam­kvæmt nýstár­legri gagna­veitu.

Olía er gamaldags verslunarvara og tæknin sem notuð er til þess að versla með hana er af gamla skólanum.
Olía er gam­al­dags versl­un­ar­vara og tæknin sem notuð er til þess að versla með hana er af gamla skól­anum. Mynd: Pexels

Gögn sýna að fram­leiðslu­sam­dráttur OPEC-ríkj­anna, sam­taka olíu­fram­leiðslu­ríkja, á hrá­olíu hefur haft áhrif á fram­boð af olíu í heim­inum.

Samkvæmt gögnum Vortexa, nýs fyr­ir­tækis sem fylgist með flutn­ingi olíu á sjó í heim­inum, sýna að magn olí­unnar sem flutt er með skipum hefur minnkað um allt að 16 pró­sent síðan í upp­hafi árs­ins. Financial Times fjallar um þetta í dag.

[links]Ákvörðun OPEC-ríkj­anna um að tak­marka fram­leiðslu­magnið var sögu­leg fyrir þær sækir að það var í fyrsta sinn í átta ár sem þessi ríki náðu sam­komu­lagi um að draga úr fram­leiðslu.

Salvar Þór Sig­urð­ar­son er einn þeirra sem starfar hjá fyr­ir­tæk­inu sem útbýr gögnin sem sýna fram á þetta. Fyr­ir­tækið Vortexa er sprota­fyr­ir­tæki þar sem, ásamt Salvari, starfa fyrr­ver­andi stjórn­endur hjá breska olíu­ris­anum British Petr­olium, BP og banda­ríska bank­anum JPMorgan.

„Þeir sem eru að kaupa og selja olíu hafa hingað til haft mjög lélega yfir­sýn yfir hvað er í gangi,“ segir Salvar Þór í sam­tali við Kjarnann. Hann á sér­stak­lega við um þá sem eru að kaupa heilu skips­farmana af hrá­olíu sem verður síðan að bens­íni á bíla og flug­véla­elds­neyti. „Þetta er ekki eins og fjár­mála­heim­ur­inn þar sem þú getur fylgst með öllu í raun­tíma og hvaða vísi­tölur eru að fara hingað og þangað.“

[adspot]

Vilja nútímavæða gamaldags markað

Salvar segir að nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækið Vortexa hafi orðið til fyrir til­stuðlan mun betri aðgengis að gervi­hnatta­upp­lýs­ingum úr ótrú­lega mörgum gervi­hnöttum. Þetta hafi skapað tæki­færi til þess að taka allar þessar upp­lýs­ingar saman og selja áfram til þeirra sem versla með hrá­olíu. „Tólið sem er lang mest notað til að kaupa og selja olíu í heim­inum er Yahoo-messen­ger og sími, án djóks,“ segir Salvar Þór.

„Það ger­ist ekk­ert í raun­tíma í þessum heimi. Menn skoða skýrslur fyrir síð­asta mánuð eða síð­ustu tvær vikur. Ef þú vilt vita hvað hefur gerst síðan þá, þá hringir þú í aðra svona olíu­brask­ara og spilar þennan upp­lýs­ingapóker. Þú vilt samt ekki segja hvað þig vantar því þá ertu búinn að missa samn­ings­stöð­una.“

Með tól­inu sem Vortex kynnti á ráð­stefnu á vegum Financial Times í Sviss á dög­unum býðst þeim sem kaupa aðgang að gagna­bank­anum að fylgj­ast með fram­boði og eft­ir­spurn á hrá­olíu í raun­tíma.

Næstu skref verða að víkka út sjón­ar­sviðið og reyna að birta sam­bæri­legar og not­hæfar upp­lýs­ingar um unna olíu­vöru, svo sem bensín, dísil og aðrar afurðir olíu­vinnslu­stöðva. „Síðan þurfum við að finna leið til þess að leysa vanda­mál við að fylgj­ast með öllu því sem er ekki flutt með skipum,“ segir Salvar Þór.

Jafnvel þó olíu­dreif­ing á landi komi hvergi við sögu í gögn­unum sem Vortexa veitir þá gefa gögnin nokkuð góða mynd af fram­boð­inu. Fyr­ir­tækið greinir nokkuð stórt hlut­fall mark­að­ar­ins. Sem dæmi má nefna Sádi-arabíu sem er stærsti ein­staki fram­leið­andi olíu innan OPEC-ríkj­anna. Þrír fjórðu olí­unnar sem kemur upp úr jörð­inni þar er dælt á skip og flutt sjó­leið­ina þangað sem olían er brennd.

Salvar segir mark­mið Vortexa vera skýrt: „Við ætlum að reyna að ná heild­ar­yf­ir­sýn yfir fram­boð og eft­ir­spurn eftir orku í heim­inum og birta það í raun­tíma.“

Bandaríkin halda olíuverðinu niðri

Þrátt fyrir fram­leiðslu­tak­mark­anir OPEC-ríkj­anna, sem gerðar voru til þess að hækka fallandi heims­mark­aðs­verð með olíu, þá hefur fatið af olíu ekki kostað mikið meira en 50 doll­ara á þessu ári. Það er að hluta til talið vegna auk­innar fram­leiðslu Banda­ríkj­anna á olíu sem hefur öfug áhrif á mark­að­inn; aukið fram­boð leiðir til lægra verðs.

Þetta hefur ollið því að mark­aðs­rýnar hafa áhyggjur af því að fram­leiðslu­tak­mörk­unin verði afnumin. Samn­ing­ur­inn um tak­mörk­un­ina hefur þegar verið fram­lengdur einu sinni og rennur út 1. jan­úar 2018.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár