OPEC ríkin ná sögulegu samkomulagi um að draga úr framleiðslu

Getur ákvörðun OPEC ríkj­anna vakið verð­bólgu­draug­inn á Íslandi? Það er hugs­an­legt. Olía hefur rokið upp í verði í dag.

Mikil spenna var fyrir aðal­fund OPEC, sam­taka olíu­fram­leiðslu­ríkja, sem fram fór í Vín­ar­borg í dag, en vanga­veltur höfðu verið uppi um það fyrir fund­inn að sam­komu­lag um að draga úr olíu­fram­leiðslu myndi nást. Svo fór að aðild­ar­ríki sam­tak­anna, sem eru fjórtán tals­ins, náðu saman um að minnka fram­leiðslu um 1,2 millj­ónir tunna á dag niður í 32,5 millj­ónir tunna.

Rússar draga líka saman

Mohammed Bin Saleh Al-Sada, orku­mála­ráð­herra Katar, til­kynnti um ákvörð­un­ina. Rússar, sem standa utan OPEC sam­tak­anna, feng­ust ekki til að draga úr fram­leiðslu eins mikið og að hafði verið stefnt, en nið­ur­skurð­ur­inn hjá þeim er þó 300 þús­und tunnur. Vonir höfðu staðið til þess að þeir myndu minnka fram­leiðsl­una um 600 þús­und tunnur, en það náði ekki fram.

Sádí-Arabía áhrifamest

Áhrifa­­mesta ríkið innan OPEC er Sá­dí-­­Ar­a­b­ía, en til sam­tak­anna til­­heyra fjórtán olíu­­fram­­leiðslu­­rík­i. Auk Sádí-­­Ar­a­bíu eru það Alsír, Angóla, Ekvador, Gabon, Indónesía, Íran, Írak, Kúveit, Líbía, Katar, Níger­ía, Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­­dæm­in, og Venes­ú­ela. ­Saman standa ríkin undir meira en 33 pró­­sent af heims­fram­­leiðsl­unni. Olíu­­fram­­leiðslu­­rík­i eins og Brasil­ía, Banda­­rík­­in, og Nor­egur standa utan OPEC.

Verðið rýkur upp

Ákvörð­unin er sögu­leg fyrir þær sakir að þetta er í fyrsta sinn í átta ár sem OPEC ríkin ná sam­komu­lagi um að draga úr fram­leiðslu. Við­brögðin á mark­aði hafa verið mikil og hefur verð á olíu rokið upp. Dags­hækk­unin í Banda­ríkj­unum á tunn­unni af hrá­olíu nemur 9,22 pró­sentum, og er verðið nú komið í tæp­lega 50 Banda­ríkja­dali. Ennþá er það samt óra­fjarri því sem það var þegar það var hæst, í lok árs 2014. Þá var tunnan á 110 Banda­ríkja­dali.

Búist er við því að ákvörð­unin muni hafa víð­tæk áhrif á mark­aði. Mesti þung­inn í fram­leiðslu­minnkun­inni er hjá Sádí-Arabía. Þar mun nið­ur­skurð­ur­inn nema 486 þús­und tunnum. Í Írak verður fram­leiðslu­minnkunin 200 þús­und tunnur og í Kúveit 139 þús­und, sam­kvæmt umfjöllun Bloomberg.

Vaknar verðbólgudraugurinn?

Á alþjóða­mörk­uðum hefur þróun olíu­verðs mikil áhrif á hrá­vöru­verð almennt og óbeint þannig á vöru­verð. Þróun olíu­verðs­ins hefur verið Íslandi hag­felld und­an­farin miss­eri og hefur verð­fallið á olíu dregið úr verð­bólgu­þrýst­ingi. Í um þrjú ár hefur verð­bólga hald­ist undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­aði en hún mælist nú 2,1 pró­sent. Að mati Seðla­banka Íslands hefur það skipt miklu máli að und­an­förnu, að inn­flutt verð­bólga hefur verið lítil. Olíu­verðs­hækkun, vegna ákvörð­unar OPEC-ríkj­anna, gæti vakið verð­bólgu­draug­inn hérá landi á nýjan leik, eða í það minnsta ýtt undir aukna inn­flutta verð­bólgu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár