Hlerunarskýringar Spicers sagðar rakalaus della

Fjölmiðla­fulltrúi Donalds J. Trump Bandaríkja­forseta stendur í ströngu við að verja forsetann eftir að hann ásakaði Barack Obama um að fyrir­skipa hleranir gagnvart sér.

Sean Spicer, upplýsingafulltrúi Hvíta hússins.
Sean Spicer, upp­lýs­inga­full­trúi Hvíta húss­ins. Mynd: EPA

Ekkert bendir til þess að njósnað hafi verið um Donald Trump, Bandaríkja­forseta, í Trump-turninum í New York samkvæmt rannsókn þing­nefndar öldunga­deildar Banda­ríkjaþings og hafa allar lykil­stofnanir Banda­ríkjanna, sem hefðu þurft að koma að hlerununum með einum eða öðrum hætti, neitað með öllu að hleranir hafi farið fram.

Á meðal þeirra fjölmörgu sem hafa borið þessar ásakanir til baka eru James Comey, yfirmaður FBI, John Brennan, fyrr­verandi yfirmaður CIA, og David Nunes, formaður leyni­þjónustu­nefndar Banda­ríkjaþings.

Donald Trump hélt því fram á Twitter aðgangi sínum að Barack Obama hefði fyrir­skipað hleranir í kerfi Trump turnsins í New York, þar sem hann er með skrif­stofu.

Sean Spicer, fjölmiðla­fulltrúi Trumps, sagði á fundi sínum með blaða­mönnum gær að Obama hafi leitað út fyrir Banda­ríkin til að njósna um Trump. Hann hafi fengið aðstoð bresku eftirlits­stofnunarinnar GCHQ.

Þessu hafa forsvars­menn stofnunarinnar algjör­lega hafnað og sagt áskanir Spicers rakalausa dellu. Ekkert sé til í því sem Spicer hafi sagt og stofnunin hafi ekki með neinum hætti komið að því að hlera síma Trumps í aðdrag­anda kosninga, að því er segir í umfjöllun BBC.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár