Bibbi bloggar úr Evróputúr Skálmaldar: Köln

Skálmöld er nú á tæp­lega 7 vikna túr um Evrópu. Dagarnir eru afskap­lega við­burða­ríkir og aðstæður oft afskap­lega skemmti­legar. Snæbjörn, bassa­leik­ari og texta­höf­undur sveit­ar­innar, heldur úti dag­legu bloggi á vef Kjarnans þar sem hann lýsir hinu goð­sagna­kennda rokk­ara­lífi. Táfýla, blóð, sviti, tár og auð­vitað rokk & ról beint í æð.

Frídagur mannskyns í gær. Ég er búinn að liggja á fjög­urra stjarna hót­eli meira og minna síðan síð­ast. Ég og Baldur fengum skutl á hót­elið til okkar kær­ustu og þessi sam­vera var víst alls ekki hugsuð sem túrismi. Við skoð­uðum svo sem Kölnar-borg í ein­hverri míkró­mynd en þennan einn og hálfa sól­ar­hring var ég mest í rúm­inu. Aðeins í sturt­unni, pínu í stól en mest í rúm­inu. Gott rúm. Þetta kallar maður að hlaða batt­erýin. Það er komin bumba og allt. Ég er í senn geislandi glaður og alger­lega að skíta á mig af skelf­ingu.

Að þessu öllu saman sögðu skoð­uðum við nú borg­ina aðeins, þau eiga voða­lega dóm­kirkju sem er hel­víti kúl, veit­inga­staði og um þessar mundir alveg skítnóg af jóla­mörk­uðum. Vinaleg borg. Ég væri alveg til í að tékka á þessu aftur. En núna er klukkan tveimur sól­ar­hringum síðar, 23.05 og við á leið­inni til Prag. Þangað er langt.

[caption id="attachment_12959" align="alignnone" width="4564"] Jón Geir trommari sést hér einn og yfir­gef­inn á tóm­legum stað. Örvæntið ekki, hann varð ekki eftir þarna.[/caption]

Ég pass­aði mig eins og ég gat á því að hafa ekk­ert sam­band við strák­ana meðan á dvöl­inni stóð. Enda var ljóm­andi gaman að hitta þá aftur í dag. Samveran á túrum sem þessum er alger, og enda þótt okkur komi ljóm­andi vel saman er góð regla að nýta allar mögu­legar stundir til að brjóta munstrið upp og hrein­lega forð­ast vini sína. Mér skilst að strák­arnir hafi líka skoðað kirkj­una, Böbbi og Flex fóru í versl­un­ar­ferð og keyptu eitt­hvað græju­kyns til að ein­falda okkur dag­lega vinnu en almennt voru allir bara að slæp­ast. Robert skrapp og hitti vini sína í Bonn og kom frekar hress til baka í dag. Þetta var góður dagur og alvöru frí­dagur. Og við betri félags­skapur eftir.

Svo tók hvers­dags­leik­inn auð­vitað bara við aftur. Við mættum eins og venju­lega á tón­leika­stað­inn, en Vera og Agnes reyndar með okkur. Það var gaman. Agnes hafði ferjað eins og eina Skálmaldar-hettu­peysu hingað handa Marci, hann tók bros­andi við henni og klædd­ist hið snarasta. Aukapar af grifflum frá mömmu rataði strik­beint á lopp­urnar á Flexa, og svo höfðu þær auð­vitað komið með fullt af nammi og búsi og Brenni­víni og hákarli og alls­konar. Sumt er nú þegar komið í notkun, annað bíður betri tíma. Þetta voru upp­grip. Alls­herjar upp­grip.

Gítarinn hans Böbba er búinn að vera eitt­hvað voða­legur síð­ustu daga og djúpi e-streng­ur­inn tók upp á því að bössa öllum að óvörum. Við reyndum af veikum mætti að greina vand­ann er mistókst herfi­lega. Túrmanager­inn hann Tibor er líka gítar-tekk Svissana og við bárum upp við hann um dag­inn hvort hann myndi kíkja á vand­ann. Hann tók sér­lega vel í það og gekk í verkið í dag. Og vanda­málið var vit­an­lega eitt­hvað allt annað en við höfðum haldið. Því miður eig­in­lega alvar­legra, en þó þess eðlis að hægt verður að kippa því í lið­inn með kaupum á vara­hlutum. Stóllinn hefur sem sagt sorf­ist niður, eða rétt­ara sagt söð­ull­inn á stólum sem ber e-streng­inn uppi. Eftir þessa grein­ingu fékk ég vitrun. Böbbi er með varagítar með sér, Gibson Les Paul Custom ’87 sem er í minni eigu. Sjálfur notar hann nýlegan Gibson SG og vill vit­an­lega halda sig við sinn eigin gítar sé þess kostur. Svo vill til að þessir tveir gít­arar inni­halda svo­lítið af sams­konar pörtum og meðal ann­ars er stóll­inn eins á þeim báðum. Við rifum þess vegna 12 strengi lausa og svissuðum stólum. Og viti menn, gít­ar­inn hans Böbba varð svona ljóm­andi eftir á. Tíma­bundin lausn, en lausn engu að síður.

Og svo kom sánd­tékk. Þetta var allt frekar skrýtið. Einn gaur sem hljóp um og gerði mis­gáfu­lega hluti, hljóð­kerfi sem ég hefði haldið að ætti frekar heima í stórri félags­mið­stöð og að auki surg­aði og suð­aði í öllu sem við reyndum að kveikja á. Þetta var allt til vand­ræða. Við gerðum auð­vitað bara okkar besta, lukum tékk­inu og stigum af sviði. Giggið sjálft var svo auð­vitað bara ljóm­andi. Fullt af fólki saman komið sem við náðum ágæt­lega á okkar band og mikil stemn­ing. En ég verð búinn að gleyma þessu giggi eftir nokkra daga. Þetta var bara þannig gigg. Jú, reyndar gaman að hafa stelp­urnar í salnum, en að öðru leyti var þetta alger­lega meh.

Reyndar heim­sótti okkur maður að nafni Frank sem vinnur fyrir trommu­fram­leið­and­ann Pearl. Þeir hafa stutt dug­lega við bakið á Jóni Geir und­an­farið og skemmti­legt að tengja and­lit við alla bjúrókrasí­una. Ég átti nú ekki langt spjall við hann en þeim Jóni kom mjög vel saman. Næs strákur.

Við fengum boli í dag senda á venjúið sem var eins gott því við vorum ger­sam­lega búnir með allt saman. Við skiptum út plötu­kover­bol­unum og tókum inn alger­lega óldskúl boli, svarta með hvítu Skálmaldar-logoi. Mér finnst þeir töff. Beisik er best. Við áttum reyndar að fá diska líka en þeir töfð­ust víst í toll­inum. Þeir eiga að skila sér eftir nokkra daga í stað­inn, Cat ætlar að sjá til þess, en það verður líka hennar síð­asta verk því þetta var hennar síð­asta gigg á túrnum. Ég vona inni­lega að við fáum ein­hvern verð­ugan arf­taka á morgun, hún hefur staðið sína plikt alger­lega óað­finn­an­lega og reynst okkur vel. Ég held að Böbbi sé búinn að semja við hana um að koma með okkur á túr­inn í febr­úar, en ég er svo sem ekk­ert alveg viss.

Svo áttum við smá stund með stelp­unum en urðum að leggja snemma af stað. Við spilum í Prag á morgun og þangað er langt. Mjög langt. Kannski ell­efu tíma akstur. Það er ekk­ert mjög gaman. Við erum allir hér frammí og við erum í stuði. Það var súrt að kveðja stelp­urnar en nú stytt­ist víst alveg örugg­lega í heim­komu. Tvær og hálf vika sirka. En hell­ingur af giggum þar til auð­vitað.

Núna er það spjall, smá fyll­erí, íslenskt nammi og stuð sem ég tek þátt í þegar ég hætti þessu pikki hérna. Halli bar sig ágæt­lega eftir gigg númer tvö og til að fagna því hefur hann gengið í Manager-hóp­inn. Mér skilst að hann sé að þjálfa Kidd­erm­in­ster í ensku deild­inni fjórðu. Þetta er orðið teymi aldeilis. Nú legg ég frá mér tölv­una og drekk þar til ég velt í koju. Engar fjórar stjörnur hér lengur.

Meist­ara­legt dags­ins: Hlutir á hót­eli.

Sköll dags­ins: Að kveðja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár