Meira af hugsanlegu braki MH 370 finnst á Réunion

Leit­ar­sveitir á frönsku eyj­unni Réunion í vest­an­verðu Ind­lands­hafi hafa fundið meira af flug­véla­braki á ströndum eyj­unnar heldur en brotið úr væng Boeing 777-þotu Mala­ysian Airlines sem hvarf 8. mars í fyrra. Ekki er víst að nýfundið brakið til­heyri MH 370 þó stað­fest hafi verið að væng­brotið hafi til­heyrt þot­unni.

Réunion-eyja er undan aust­ur­strönd Madaga­skar og því hinu megin í Ind­lands­hafi frá leit­ar­svæð­inu undan ströndum Ástralíu. Sam­hæf­ing­ar­mið­stöð Ástralíu gaf frá sér yfir­lýs­ingu þegar brakið fannst sem segir að sér­fræð­ingar séu vissir um að vélin hafi farið í hafið á skil­greindu leit­ar­svæði, miðað við haf­strauma í Ind­lands­hafi. Í grófum dráttum liggja þeir rang­sælis í hring í haf­inu, upp með strönd Ástralíu og Indónesíu, vestur fram hjá Indlandi og suður með strönd Afríku.

Hvarf MH 370 á korti


Smelltu á lit­uðu flet­ina til að lesa meira.

Leit­ar­svæðið er þó um 4.000 kíló­metra frá Réunion. Svæðið var síð­ast stækkað í apríl og þá tvö­faldað í 120.000 fer­kíló­metra. Tony Abbott, for­sæt­is­ráð­herra Ástralíu, hefur sagt að leitin kosti nú þegar meira en 100 millj­ónir ástr­al­skra doll­ara, sem nemur um það bil 100 millj­örðum íslenskra króna. „Allar þær hund­ruð millj­óna mann­eskja sem fljúga eiga þetta inni hjá okkur. Það er undir okkur komið að reyna að tryggja að flug­ferðir séu eins öruggar og hægt er, til þess þurfum við að kom­ast til botns í þessum ömur­lega harm­leik,“ sagði Abbott.

Eftir að brakið fannst fyrir helgi, var það sent til Toulouse í Frakk­landi til rann­sóknar á her­rann­sókn­ar­stofu. Frönsk yfir­völd vildu hins vegar ekki stað­festa að brakið væri úr MH 370 jafn­vel þó aðeins ein Boeing 777-þota hafi farist í sög­unni. Najib Razak, for­sæt­is­ráð­herra Malasíu, full­yrti þó að þarna hefðu fyrstu vís­bend­ing­arnar um þetta dul­ar­fulla hvarf fund­ist.

Þessi mis­vísandi svör og sú óvissa sem þau skilja eftir hefur reitt aðstand­endur þeirra sem fór­ust með mala­sísku þot­unni. „Ég hef ekki heyrt stað­reyndir. Ég hef ekki heyrt neitt,“ sagði eig­in­maður konu sem var um borð. „Svo ég velti fyrir mér hvort hér hafi fólk kastað sér á fyr­ir­fram gefna nið­ur­stöðu í kapp­hlaup­inu um skýr­ingar.“

Ástæða þess að frönsk yfir­völd vilja ekki taka af allan vafa um að hér sé um brak úr MH 370 að ræða er að svo virð­ist sem að ekk­ert sýni­legt rað­númer sé á brak­inu. Það kemur hins vegar heim og saman við þjón­ustu­bækur Mala­ysian Airlines, til þess að sann­reyna þetta þarf hins vegar frek­ari rann­sóknir.

Þá er allt eins mögu­legt að brakið sé úr ann­ari flug­vél, enda eng­inn skortur á flug­véla­braki á floti í heims­höf­unum. BBC greinir frá því að þó nokkrar þotur hafi farist í Ind­lands­hafi og í nágreni Réunion síð­ustu tvo ára­tugi. Tvær stórar þotur hafa farist á þessu svæði; Yemensk þota af gerð­inni Airbus 310 fórst 2009 og eþjópísk Boeing 767-þota fórs árið 1996.

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Ástr­alskir leit­ar­flokkar hafa kempt haf­flöt­inn vestan Ástralíu í leit að braki úr vél­inni. Sú leit hefur engan árangur borið.[/caption]

 

Verður ráðgátan leyst?


Brakið úr vél­inni sem fannst er svo­kallað væng­barð sem fest er aftan á væng þotu. Brakið sem hefur síðan fund­ist eru minni hlutir eins og glugga­hlífar og sætispúðar en strendur eyj­unnar Réunion eru nú kembdar eftir frek­ari vís­bend­ingum.

Haf­fræð­ingar hafa reiknað líkön af því hvar brak vél­ar­innar ætti að hafa lent. Þar spila vindar, haf­straumar og öldur saman. David Griffin, haf­fræð­ingur hjá ástr­al­skri rann­sókn­ar­stofnun, segir strendur Madaga­skar hafa verið lík­leg­asta lend­ing­ar­stað flug­véla­braks­ins. „Réunion er ekki svo langt frá því, séu hlut­irnir settir í sam­hengi,“ sagði hann.

Dæmi eru um bát sem hvarf undan vest­ur­strönd Ástralíu í fyrra og fannst átta mán­uðum síðar, nærri heill vestan Madaga­skar. Svo leit­ar­sveitir eru nú nokkuð sann­færðar um að þær séu að leita á réttum stað, með són­ar­tækjum, á skil­greinda leit­ar­svæð­inu. Þar telja þeir að skrokkur vél­ar­innar sé.

Talið er að ýmis­konar brak úr vél­inni sé á floti á risa­stóru svæði í Ind­lands­hafi. Ástæðan fyrir því að væng­barðið er komið svo lang er vegna þess að það er holt að innan, svo það flýtur vel. Stað­setn­ing þessa braks gæti því hjálpað til við að áætla nán­ari brot­lend­ing­ar­stað­setn­ingu.

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Són­ar­tækni er notað til að kanna hafs­botn­inn í leit að skrokki vél­ar­innar sem enn er talið að sé á fyr­ir­fram skil­greindu leit­ar­svæði, þrátt fyrir fund braks úr vél­inni í mörg þús­und kíló­metra fjar­lægð.[/caption]

Það eitt er hins vegar mik­ill vandi. „Ég hef rakið ferðir braks á hafi og fundið stað­setn­ingu skips­flaka, en þá hefur aðeins liðið einn til tveir dagar,“ segir David Mearns, skips­skaða­fræð­ingur, og bendir á að nú séu nærri 16 mán­uðir síðan MH 370 fórst.

Ljóst er að ekki verður kom­ist til botns í því hvað fór úrskeiðis þegar flug MH 370 hvarf fyrr en flug­ritar vél­ar­innar finn­ast. Stöku brak úr þot­unni mun ekki leysa neinar ráð­gátur, segir Greg Waldon, hjá flug­frétta­vefnum Flight­global, í sam­tali við BBC.

Eftir að flug­vélin og allir um borð hurfu spor­laust fyrir nærri einu og hálfu ári síðan spruttu margar kenn­ingar um hvað gerð­ist. Sé brakið sann­ar­lega úr þotu Mala­ysian Airlines eru margar þeirra ólík­leg­ustu úr sög­unni. Kjarninn tók saman helstu kenn­ing­arnar um hvarf vél­ar­innar stuttu eftir að hún hvarf.

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Malasian Airlines hefur misst tvær af vélum sínum með full­fermi far­þega síð­ustu 16 mán­uði. MH 370 hvarf spor­laust 8. mars 2014 og MH 17 var skotin niður yfir Donetsk í Úkraínu 17. júlí 2014. 537 fór­ust með þessum tveimur vélum. Í júlí 2015 var nýr fram­kvæmda­stjóri ráð­inn til flug­fé­lags­ins og hefur hann sagt félagið „tækni­lega gjald­þrota“ og að árið 2017 verði allt merki fyr­ir­tæk­is­ins end­ur­skoðað.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár