Tillaga um að draga ESB-umsókn til baka kemur fram á næstu dögum

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins gerir ráð fyrir því að til­laga um að draga aðild­ar­um­sókn að Evr­ópu­sam­band­inu til baka komi fram á Alþingi á næstu dögum. Þetta kom fram í svari Bjarna við fyr­ir­spurn Guð­mundar Stein­gríms­sonar, þing­manns Bjartrar fram­tíðar, um málið í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma sem nú er á Alþingi.

Á síð­ustu vikum hafa Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra og Bjarni allir tjáð sig um fram­lagn­ingu þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að draga aðild­ar­um­sókn að Evr­ópu­sam­band­inu til baka. Tillagan var lögð fram á síð­asta þingi.

Sig­mundur Davíð sagð­ist í upp­hafi árs búast við því að ný til­laga yrði lögð fram á vor­þingi, Gunnar Bragi sagði að afstaða hans hafi ekki breyst frá því hann lagði til­lög­una fram síð­ast og Bjarni sagði að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn myndi styðja til­lög­una kæmi hún fram. Gunnar Bragi hefur þó sagt að mögu­lega verði gerðar ein­hverjar breyt­ingar á til­lög­unni.

Nokkur þús­und manns mót­mæltu nokkrar helgar í röð í febr­úar og mars á síð­asta ári í kjöl­far þess að Gunnar Bragi lagði fram til­lög­una þá. Málið vakti líka miklar deilur innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins þar sem margir lyk­il­menn voru því mót­fallnir. Þeirra á meðal voru Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Vil­hjálmur Bjarna­son, þing­maður flokks­ins, og Þor­steinn Pálsson, fyrrum for­maður hans.

Frum­varpið var lagt fram í kjöl­far birt­ingar skýrslu sem Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands gerði fyrir stjórn­völd um við­ræð­urnar. Samkvæmt henni voru veru­lega litlar líkur á því að Ísland geti fengið undan­þágur frá grunn­reglu­verki ESB. Skömmu síðar kom út skýrsla Alþjóða­stofn­unar Háskóla Íslands sem sýndi allt aðra nið­ur­stöðu og sagði að Ísland hefði þegar náð fram ýmis konar und­an­þágum.

Skipu­leggj­endur mót­mæl­end­anna og margir þátt­tak­end­anna í þeim töldu að stjórn­ar­flokk­arnir tveir, Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur, hefðu lofað því fyrir síð­ustu kosn­ingar að slíta ekki við­ræðum við ESB nema að und­an­geng­inni þjóð­ar­at­kvæð­ar­greiðslu um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár