Ragnheiður Ríkharðsdóttir hættir - Elín Hirst sækist eftir sætinu

Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, ætlar ekki að gefa kost á sér áfram fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Elín Hirst ætlar að sækj­ast eftir öðru sæt­inu á eftir Bjarna Bene­dikts­syni.

Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, ætlar ekki að gefa kost á sér í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir næstu Alþing­is­kosn­ingar. Hún greindi frá þessu á Facebook-síðu sinni í kvöld.

Ragn­heiður er annar þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, næst á eftir Bjarna Bene­dikts­syni, for­manni flokks­ins.

Elín Hirst, sem skip­aði fimmta sæti flokks­ins í sama kjör­dæmi í síð­ustu kosn­ingum, til­kynnti svo nú í kvöld að hún hefði ákveðið að sækj­ast eftir öðru sæt­inu í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hún greinir frá því að próf­kjörið verði haldið í lok ágúst eða byrjun sept­em­ber.

Elín þakkar Ragn­heiði fyrir „heið­ar­leika, stefnu­festu og dugnað í sínum störfum“ í frétta­til­kynn­ingu sem hún sendi frá sér.

Ef Ragn­heiður er hætt í stjórn­málum verður hún tíundi sitj­andi þing­mað­ur­inn sem ákveður að hætta á þingi. Áður hafði sam­flokks­maður hennar Einar K. Guð­finns­son greint frá því að hann hygð­ist hætta. Það höfðu einnig Bryn­hildur Pét­urs­dóttir og Róbert Marshall í Bjartri fram­tíð til­kynnt, sem og Frosti Sig­ur­jóns­son, Páll Jóhann Pálsson og Sigrún Magn­ús­dóttir, þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins, Katrín Júl­í­us­dóttir og Kristján Möller, þing­menn Sam­fylk­ing­ar­innar og Ögmundur Jónasson, þing­maður VG.

Minnst fjórir þing­menn til við­bótar hafa ekki ákveðið hvort þeir hyggj­ast reyna að halda áfram á þingi eða ekki. Það eru þau Guð­mundur Stein­gríms­son, Haraldur Ein­ars­son, Karl Garð­ars­son og Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir, auk Lilju Alfreðs­dóttur, sem er ráð­herra utan þings. Kjarninn tók þetta saman í ítar­legri frétta­skýr­ingu á dög­unum, sem lesa má hér.

Fréttin hefur verið upp­færð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár