Forsetinn boðar Katrínu á Bessastaði í dag

Guðni Th. Jóhann­es­son hefur boðað Katrínu Jak­obs­dóttur, for­mann Vinstri grænna, á Bessa­staði til fundar við sig klukkan 16 í dag.

Guðni Th. Jóhann­es­son, Forseti Íslands, hefur boðað Katrínu Jak­obs­dóttur, for­mann Vinstri grænna, til fundar við sig á Bessa­stöðum í dag, fimmtu­dag­inn 2. nóv­em­ber, kl. 16:00. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá skrif­stofu for­seta Íslands.

Við því má búast að Katrín fái þar umboð til að mynda nýja rík­is­stjórn.

Að und­an­förnu hafa full­trúar stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna á síð­asta þingi, Vinstri grænna, Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, Fram­sókn­ar­flokks­ins og Pírata, rætt um það hvort flötur sé á rík­is­stjórn­ar­sam­starfi milli flokk­anna undir for­ystu Katrínar.

Full­trúar flokk­anna, þar á meðal for­menn þeirra, hafa fundað í Alþing­is­hús­inu í morgun. Þeir fund­uðu einnig langt fram eftir kvöldi í gær.

Flokk­arnir sam­mála um áherslur

Líkt og Kjarn­inn hefur áður greint frá þá eru stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir flestir sam­mála um breiðu mál­efna­lín­­urnar í mög­u­­legu sam­­starfi. Þ.e. aukin fjár­­út­­lát í heil­brigð­is- og mennta­­mál og að ráð­­ast í mjög öfl­­uga sókn í fjár­­­fest­ingum í inn­við­­um. Þá leggur Fram­­sókn mikla áherslu á end­­ur­­skipu­lagn­ingu banka­­kerf­is­ins og það að reynt verði að vinda ofan af sölu á hlutum í Arion banka til vog­un­­ar­­sjóða. Þá eru allir með­­vit­aðir um að kom­andi kjara­­samn­ingar verða mjög mik­il­vægir í bar­átt­unni fyrir því að við­halda því efna­hags­á­standi sem hér ríkir nú áfram.

Við­­mæl­endur Kjarn­ans segja það skýrt frá bæði Fram­­sókn­­ar­­flokknum og Vinstri grænum að ýta Evr­­ópu­­sam­­bands­­málum út af borð­inu. Sam­fylk­ing­in, sem er sá flokkur í stjórn­ar­and­stöð­unni sem hefur sterk­ustu Evr­ópu­stefn­una, hefur ekki gert málið að frá­gangs­sök og er talin sveigj­an­leg gagn­vart því að setja það til hliðar náist saman um önnur atriði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár