Þvinga fram betri nýtingu með lögum - Deilibylting flýtir fyrir

Í sumar ákvað franska þingið að lög­festa bann við því að henda mat. Í fyrstu munu lögin ná til versl­ana og stór­mark­aða og er þeim gert að gefa mat til góð­gerð­ar­starfs, t.d. í sam­fé­lags­hjálp­ar­verk­efni eða til bág­staddra, eða í dýra­fóður. Lögin þykja vera merki­legt skref í átt að sjálf­bærni, ekki síst í fjöl­mennum borg­ar­sam­fé­lögum þar sem mat­ar­sóun er risa­vaxið vanda­mál sem erfitt hefur reynst að tækla með góðum vilja og kynn­ing­ar­starfi.

Allt að tveggja ára fangelsi


Lögin taka gildi í júní á næsta ári og skyldar þá sem eru með 400 fer­metra hús­næði undir starf­semi sína, eða meira, til þess að nýta betur mat sem ann­ars hefði verið hent með því að gefa hann til þeirra sem hafa fyrir hann þörf, eða í versta falli í dýra­fóður.

Viðurlög eru í versta falli tveggja ára fang­elsi fyrir þá sem bera ábyrgð á því að mat­ur­inn sé nýttur í takt við það sem lögin segja til um.

Mikill vandi á heimsvísu


Í Frakk­landi er um 7,1 millj­ónum tona af mat hent árlega, 67 pró­sent af þeirri tölu falla undir stór­mark­aði og neyt­endur, 15 pró­sent eru hjá veit­inga­húsum og síðan 11 pró­sent hjá öðrum búðum. Afgang­ur­inn dreif­ist á marga smærri. Á heims­vísu er um 1,3 millj­örðum tonna af mat hent árlega, sem ann­ars hefði verið mögu­legt að nýta, að því er The Guardian greinir frá.

Frakkar hafa gengið lengra í að skoða þessi mál heldur en margir aðrir, bæði með því að taka saman mikið magn af upp­lýs­ingum um neyt­enda­hegðun þegar kemur að mat­ar­inn­kaupum. Stjórn­völd í Frakk­landi telja að neyt­endur henti 20 til 30 kílóum á ári af mati sem væti hægt að nýta, þar af sjö kílóum af mati sem er enn í umbúð­unum. Kostn­aður sam­fé­lags­ins í Frakk­landi, með rúm­lega 64,3 millj­ónir íbúa, vegna þess­arar slæmu nýt­ingar er tal­inn nema um 25 millj­örðum evra á ári.

Markaðir sem hafa selt mat sem telst upp­fylla skil­yrði sem líf­rænt rækt­aður, hafa beitt sér mikið í þessum efnum, ekki síst í Banda­ríkj­unum, enda þeirra hagur og bein­línis við­skipta­hug­mynd, að neyt­endur séu með­vit­aðir um mat­inn sem þeir kaupa og hvernig hann verður til. Allt ýtir þetta undir betri nýt­ingu og meiri gæði við mat­væla­fram­leiðslu, og inn­kaup. Stór­mark­að­irnir hafa ekki sama hvata í sínum rekstri, enda mark­miðið þar fyrst og fremst að selja sem mest, hvað sem tautar og raular. Eða þannig horfir þetta við frönskum stjórn­völdum, í það minnsta.


Ekki allir sáttir við lögin

Versl­un­ar­ráðið í Frakk­landi, og sam­tök stór­mark­aða, telja lögin vera alltof ströng og að þau muni ekki bæta miklu við það sem þegar hefur verið gert. Í versta falli muni þau hækka verð á mat, og valda mörgum rekstr­ar­erf­ið­leikum vegna þess hve erfitt verður að hafa eft­ir­lit með lög­unum. Þá hafa sam­tökin bent á að 4.500 versl­ana­keðjur í Frakk­landi séu nú þegar með samn­inga við góð­gerð­ar­sam­tök og aðra, um að gefa frá sér mat sem ekki selj­ist. Undir þetta megi ýta með öðrum hætti en að bein­línis lög­festa skipun um að gefa mat­inn.

Deilibyltingin ýtir undir vakningu

Eitt af því sem hefur ýtt undir umræðu um mat­ar­nýt­ingu er deili­hag­kerfið alþjóð­lega sem nú þegar hefur fest rótum með þjón­ustu eins og AirBnb, þar sem heim­ili eru leigð til ferða­manna. Það sama má segja um nýt­ingu á bíl­ferðum í borgum, þar sem borg­arar deila bílum til að spara kostnað. Svo eitt­hvað sé nefnt.

Það sama ætti að geta gilt um mat­inn, og hafa vef­síður sprottið fram að und­an­förnu, meðal ann­ars í Þýska­landi, þar sem mark­miðið er að nýta betur mat. Vandinn sem snýr að slæmri nýt­ingu á mat er yfir­þyrm­andi stór, og kostn­að­ar­samur fyrir sam­fé­lög heims­ins. Líklega mun þó þróun í þessum efnum ekki verða jafn hröð eins og reyndin hefur verið með leigu og deil­ingum á heim­ilum fólks, enda eru alls ekki allir til­búnir að deila mat.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár