Sóttvarnalæknir hvetur rjúpnaveiðimenn til að halda sig heima

Sótt­varna­læknir og almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra vilja því hvetja alla að vera heima og taka þannig öll þátt í bar­átt­unni, líka rjúpna­veiði­menn.

Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnardeild ríkislögreglustjóra, og Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir.
Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá almanna­varn­ar­deild rík­is­lög­reglu­stjóra, og Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir. Mynd: Lögreglan

Sótt­varna­læknir og almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra vilja því hvetja alla að vera heima og taka þannig öll þátt í bar­átt­unni, líka rjúpna­veiði­menn.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir og almanna­varn­ar­deild rík­is­lög­reglu­stjóra hvetja rjúpna­veiði­menn til að vera heima og halda ekki til veiða. Rjúpna­veiði­tíma­bilið hefst 1. nóv­em­ber, eða á morgun, og stendur út mán­uð­inn.

[links]Í til­kynn­ingu frá þeim segir að þó rjúpna­veiði sé holl hreyf­ing og frísk­andi úti­vera þá séu ferða­lögin og sér­stak­lega ferðir á milli lands­hluta ekki í anda þess sem núver­andi reglur í bar­átt­unni við Covid-19 standa fyrir. „Þessar hörð­ustu sam­komu­tak­mark­anir í lýð­veld­is­sög­unni eru til þess að draga úr allri starf­semi og sam­neyti fólks meðan við förum í gegnum erf­ið­asta hjall­ann. Staða heil­brigð­is­kerf­is­ins er erfið og álag vegna ýmissa mála, ekki bara Covid-19 valda því að ekki er á það bæt­andi. Sótt­varna­læknir og almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra vilja því hvetja alla að vera heima og taka þannig öll þátt í bar­átt­unni.“

Hertar sótt­varna­ráð­staf­anir voru kynntar í blaða­manna­fundi í Hörpu í gær og tóku gildi á mið­nætti. Helstu breyt­ingar frá fyrri ráð­stöf­unum eru þær að ein­ungis tíu manns mega koma saman í stað 20 áður, aukin áhersla verður á grímunotk­un, íþrótta­starf leggst alveg af og sviðs­listir sömu­leið­is.

[adspot]Ein­ungis apó­tek og mat­vöru­versl­anir eru und­an­þegnar þessum fjölda­tak­mörk­un­um, en þar mega 50 manns vera innan sama rýmis og að hámarki 100 ef versl­anir eru mjög stór­ar. Tíu manna fjölda­tak­mark­anir gilda um aðrar versl­an­ir.

Sund­laugar verða áfram lok­aðar og krár og skemmti­staðir einnig og öll þjón­usta sem krefst nálægðar og hefur verið bönnuð und­an­farnar vikur er áfram bönn­uð.

Veit­inga­staðir þurfa að loka dyrum sínum kl. 21 á kvöld­in. Börn fædd 2015 og síðar eru þau einu sem verða und­an­þegin reglum um grímu­skyldu, fjölda­tak­mörk­unum og tveggja metra reglu.

Skólar verða áfram opn­ir, en von er á nán­ari útfærslu á sér­stakri reglu­gerð um skóla­starf eftir helgi. Búast má við því að eitt­hvað rask verði á skóla­starfi, sér­stak­lega í elstu bekkjum grunn­skóla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár